441. spurningaþraut: Hvar er Ketill skrækur?

441. spurningaþraut: Hvar er Ketill skrækur?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir fjörð­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða leik­riti kemur fyrir per­sónan Ketill skrækur?

2.  Söng­konan GDRN lék nýlega eitt helsta hlut­verkið í sjón­varps­þátt­unum Kötlu. Hvað heitir hún fullu nafni? — (eða næstum því fullu nafni, nöfnin þurfa að vera þrjú ...)

3.  Í hvaða landi er borgin Acapulco?

4,  Nokkrar konur eru í banda­rísku rík­is­stjórn­inni, fyrir utan vara­for­set­ann. Æðsta ráð­herra­emb­ætti kvenna gegnir Janet Yellen. Hvaða ráð­herra er hún?

6.  Í bresku rík­is­stjórn­inni eru harla fáar konur, eða aðeins fimm af þeim 27 sem Wikipedia telur eiga sæti í sjálfri rík­is­stjórn­inni. Æðsta ráð­herra­emb­ætti þess­ara kvenna gegnir Priti Patel. Hvernig ráð­herra er hún?

7.  En hvað eru margar konur í íslensku rík­is­stjórn­inni?

8.  Talið er að loft­steinn utan úr geimnum hafi átt mik­inn þátt í að útrýma risa­eðl­unum. Á eða við hvaða skaga lenti hann?

9.  Hvenær var hann á ferð­inni? Hér má muna fjórum millj­ónum ára til eða frá.

10.  Einn land­náms­manna sem fornar íslenskar heim­ildir greina frá hét Herj­ólfur Bárð­ar­son. Hvar er hann sagður hafa numið land?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ofsa­káta barn er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skugga-Sveini.

2.  Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir. Nóg er að nefna ann­að­hvort Eyfjörð eða Jóhann­es­dóttir.

3.  Mexíkó.

4.  Fjár­mála­ráð­herra.

6.  Inn­an­rík­is­ráð­herra.

7.  Fimm.

8.  Yucatan.

9.  Hann lenti fyrir því sem næst 66 millj­ónum ára, svo rétt er allt frá 70 til 62 millj­ónum ára.

10.  Í Vest­manna­eyjum.

*** 

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Vopna­fjörð.

Á neðri mynd­inni má sjá Lionel Messi fót­bolta­guð meðan hann var bara lít­ill guð­lingur.

***

Lítið svo á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár