440. spurningaþraut: Allar þessar spurningar eru um hunda á einn eða annan hátt

440. spurningaþraut: Allar þessar spurningar eru um hunda á einn eða annan hátt

Allar spurn­ing­arnar snú­ast um hunda, á einn eða annan hátt.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hunda­teg­undin á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét fyrsti hund­ur­inn sem fór út í geim?

2.  Frægur teikni­mynda­sögu­hundur heitir Scoobie-Doo sem birt­ist fyrst í teikni­mynd Hanna og Barbera árið 1969. Hann er frægur fyrir gott skap og herópið: „Scoobie-Dooby-Doo!“ Af hvaða hunda­teg­und er Scoobie-Doo?

3.  Annar teikni­mynda­sögu­hundur er per­sóna í teikni­mynd­unum um Peanuts eða Smá­fólkið, þar sem hann skyggir oft á eig­anda sinn Charlie Brown. Hvað heitir þessi hundur?

4.  Fyrr­nefndur hundur lætur sig oft dreyma um að vera frægur flug­kappi. Hvað notar hann sem flug­vél?

5.  Hvað heitir hundur Mikka músar?

6.  Þýskur fjár­hundur — eða schäfer-hundur — var nefndur Blondi. Hver var eig­andi Blondi?

7.  Árið 1974 var frum­sýnd kvik­mynd þar sem lít­ill og loð­inn og glað­lyndur blend­ings­hundur fór með aðal­hlut­verkið, flæk­ings­hund sem lað­ast að barna­hópi í amer­ískum smábæ og hjálpar svo til að frelsa þau úr klóm mann­ræn­ingja. Síðan hefur svip­aður hundur með sama nafni troðið upp í hátt í tíu bíó­myndum og fjölda sjón­varps­þátta. Sögu­þráð­ur­inn er yfir­leitt svip­aður og mynd­irnar njóta ævin­lega vin­sælda hjá börnum. En hvað nefn­ist hund­ur­inn?

8.  Hvað hét fyrri hundur Dorritar Moussaieff og Ólafs Ragnars Gríms­sonar?

9.  Lady and the Tramp hét fræg Disney-teikni­mynd þar sem hvutt­arnir Lady og Tramp kynn­ast og fella hugi saman. Í frægu atriði eru þau bæði að snæða til­tek­inn mat og enda á því að bíta í sama stykkið svo úr verður óvæntur en hug­ljúfur „koss“ hvutt­anna tveggja. Hvað eru þau að borða?

10.  Hvaða hunda­teg­und hefur orðið til­efni hljóm­sveit­ar­nafns á Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan er karl sem vann ákveðið afrek fyrir rúmri öld og hundar spil­uðu stóra rullu við að honum tókst ætl­un­ar­verk sitt. Hvaða maður er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Laíka.

2.  Stór-Dani.

3.  Snoopy eða Snati.

4.  Hunda­húsið sitt.

5.  Plútó.

6.  Hitler.

7.  Benji.

8.  Sámur.

9.  Spagetti.

10.  Rottweiler.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Pomer­an­íu­hundur.

Á neðri mynd­inni er norski pólfar­inn Amundsen sem komst á suð­ur­pól­inn, ekki síst af því hann nýtti sér sleða­hunda sem helsti keppi­nautur hans hafði ekki vit á að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár