439. spurningaþraut: Sofia, Basil Búlgarabani, Harðskafi, skyr, gler

439. spurningaþraut: Sofia, Basil Búlgarabani, Harðskafi, skyr, gler

Fyrri auka­spurn­ing.

Hver er mann­eskjan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Sofia?

2.  Í hvaða horfna ríki réði Basil Búlgara­bani ríkjum fyrir rúmum þús­und árum?

3.  Hver gaf út skáld­sög­una Harð­skafi árið 2007?

4.  Barna­bóka­verð­laun Guðrúnar Helga­dóttur fyrir yfir­stand­andi ár fékk fyrr­ver­andi alþing­is­maður sem heitir ...?

5.  „Skyr“ og „gler“ eru ekki mjög skyldir hlutir. Bæði orð eru samt for­skeyti fyrir ákveðna fæðu­teg­und, sem hefur raunar mis­jafnt orð á sér. Hver er sú fæðu­teg­und?

6.  Á hvaða land­svæði bjuggu hinir fornu Filistear?

7.  Hver bað guð að gefa sér Mercedes Benz?  

8.  Hvaða tvö öfl­ugu fót­boltalið karla munu mæt­ast á morgun í úrslita­leik Suður-Amer­íku­keppn­innar, eða Copa America? Hafa verður bæði lönd rétt.

9.  Hvaða þjóð snæðir „kos­her“ mat?

10.  Hver orti: „Hún var fal­leg og hún var góð, / hún var betri en þær. / Og þegar hún sefur við síð­una á mér, / þá sef ég góður og vær.“

***

Síðari auka­spurn­ing.

Skoðið mynd­ina hér að neðan. Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Búlgaríu.

2.  Býsans-rík­inu, eða Aust­ur­róm­verska rík­inu, eða Mikla­garði. Róma­veldi er hins vegar alls ekki rétt svar.

3.  Arnaldur Ind­riða­son.

4.  Margrét Tryggva­dóttir.

5.  Hákarl.

6.  Í Palest­ínu. Ísrael er form­lega séð ekki rétt svar, en látum það ganga í þetta sinn.

7.  Janis Joplin

8.  Brasilía og Argent­ína.

9.  Gyðingar.

10.  Megas.

***

Svör við auka­spurn­ingum!

Á efri mynd­inni er kona Lots, nýorðin að salt­stólpa fyrir að hafa laum­ast til að horfa á loft­árás Guðs á Sódómu.

Á neðri mynd­inni er Möbius-borði. Sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár