438. spurningaþraut: Eftirlætisbók heimasætunnar á Fæti undir Fótarfæti

438. spurningaþraut: Eftirlætisbók heimasætunnar á Fæti undir Fótarfæti

Munið að hlekki á aðrar þrautir er að finna hér neðst.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Billie Jean King er nú komin undir átt­rætt en hún var á sínum tíma ein fræg­asta íþrótta­kona heims­ins. Í hvaða grein?

2.  Ever Given — hvað var það nú aftur?

3.  Hvað heitir söng­konan sem gert hefur garð frægan með hljóm­sveit­inni Hjalta­lín?

4.  Hvar er Hjalta­dalur?

5.  Þjóð­verjar munu velja nýjan kansl­ara í sept­em­ber þegar Angela Merkel lætur af emb­ætti. Fyrir hvaða stjórn­mála­flokk hefur hún gegnt emb­ætt­inu?

6.  Ef engar stór­kost­legar breyt­ingar verða næstu tvo mán­uði er ósenni­legt að önnur kona taki við kansl­ara­emb­ætt­inu af Merkel. En þó á Annalena Baerbock ein­hverja svolitla mögu­leika. Hún var einu sinni keppn­is­mann­eskja á trampólíni í fim­leikum en lærði síðan stjórn­mála­fræði. Hún yrði fyrsti kansl­ara síns flokks, en hvaða flokkur er það?

7.  Í hvaða skáld­sögu kemur fyrir heima­sætan Magnína á bænum Fæti undir Fót­ar­fæti?

8.  Magnína heima­sæta dáði sjálf eina bók meira en aðrar bækur. Hvað hét sú bók?

9.  Maður nokkur fædd­ist 1837. Hann hét Alois Schicklgruber en rétt um fer­tugt fór hann til hins opin­bera og bað um að fá að taka upp ætt­ar­nafn stjúp­föður síns. Hvað nefnd­ist hann síðan?

10.  Hvaða þáver­andi rit­stjóri Þjóð­vilj­ans skrif­aði bók­ina Mið­viku­dagar í Moskvu?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Á mynd­inni hér að neðan má sjá eitt allra fræg­asta íbúð­ar­hús í heimi. Hvað hét arti­tekt­inn? Lár­við­ar­stig er í boði fyrir að vita hvað húsið heitir!

***

Svör við aðal­spurn­ingum.

1.  Tennis.

2.  Skipið sem strand­aði í Súes­skurð­inum.

3.  Sigríður Thorlacius.

4.  Innan af Skaga­firði.

5.  Kristi­lega demókrata.

6.  Græn­ingja.

7.  Heims­ljósi.

8.  Fel­sen­borg­ar­sögur.

9.  Hitler.

10.  Árni Bergmann.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Skjá­skotið er úr bíó­mynd­inni Mary Poppins eins og glöggt má sjá á regn­hlíf­inni sem sést hluti af hægra megin.

Hér er annað og ögn stærra skjá­skot.

Íbúð­ar­húsið teikn­aði Frank Lloyd Wright. Eft­ir­nafnið dugar alveg. Lár­við­ar­stigið fæst fyrir að vita að húsið heitir Fallingwater.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár