437. spurningaþraut: Um hvaða fræga stað syngja Master KB og Nomcebo?

437. spurningaþraut: Um hvaða fræga stað syngja Master KB og Nomcebo?

Fyrri auka­spurn­ing.

Hver er sá reffi­legi karl­maður sem þarna má sjá í La Scala-óperu­hús­inu í Mílanó? Eft­ir­nafnið dugar.

***

1.  Tón­list­ar­maður sem kallar sig Master KG og söng­konan Nomcebo slógu ræki­lega í gegn á síð­asta ári með lagi þar sungið er um til­tek­inn stað á jarð­ar­kringl­unni, og Nomcebo biður þá sem hlusta að hjálpa sér að kom­ast þangað. Hvert vill hún kom­ast?

2.  Hvað heitir sá gít­ar­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar The Rolling Stones sem hefur verið í hljóm­sveit­inni frá upp­hafi?

3.  Gunnar Smári Egilsson hefur feng­ist við sitt af hverju um ævina, var lengi blaða­maður og rit­stjóri, og stýrði fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum um tíma. Nú ætlar hann í fram­boð til Alþingis. Fyrir hvaða flokk?

4.  Hvað er merki­legt við hina svoheit­andi Maríönnu­gjá eða Mariana Trench?

5.  Hver er fjöl­menn­asti þétt­býl­is­staður í Húna­vatns­sýslum?

6.  Hvað heitir söng­leik­ur­inn um ævi Bubba Morthens sem frum­sýndur var á síð­asta ári og sýn­ingar hefj­ast brátt á að nýju?

7.  Stytta af hvaða Íslend­ingi er fyrir framan stjórn­ar­ráðs­húsið við Lækj­ar­torg?

8.  Til hvaða ríkis telst eyjan Honshu?

9.  Hvað gerði Tatum O'Neal þegar hún var bara tíu ára árið 1974? (Vænt­an­lega gerði hún margt á því ári. En hér er spurt um það sem helst er í frá­sögur fær­andi.)

10.  Hvaða fræga saga endar á því að norn er brennd til ösku?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hver er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Til Jer­úsalem. Hér má hlýða á þau syngja og leika um borg­ina góðu. 

2.  Keith Richards.

3.  Sós­í­alista­flokk­inn.

4.  Dýpsta haf­svæði á jarð­ar­kringl­unni.

5.  Blönduós.

6.  Níu líf.

7.  Hannes Hafstein.

8.  Japans.

9.  Fékk Ósk­arsverð­laun. Þau voru fyrir besta leik í auka­hlut­verki.

10.  Hans og Gréta.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni er danski fót­bolta­mað­ur­inn Christian Eriksen, Myndin er tekin þegar fót­boltaliðið Inter Milan til­kynnti með við­höfn um komu hans til liðs­ins.

Á neðri mynd­inni er Hexia de Trix.

Sú göldrótta og ill­skreytta önd gerir Jóakim Aðalönd lífið leitt í Andr­és­blöð­unum.

Á ensku — frum­máli Andr­és­blað­anna — kall­ast Hexía Magica de Spell, svo það svar er vit­an­lega rétt líka.

Hér að neðan er hlekkur á næstu þraut á undan — sem og þá næstu þegar hún birt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár