436. spurningaþraut: Hér er spurt um Dufþak og Geirröð, Skjaldbjörn, Halldór og Drafditt.

436. spurningaþraut: Hér er spurt um Dufþak og Geirröð, Skjaldbjörn, Halldór og Drafditt.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast dýrið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tíu voru menn, en aðeins fimm þeirra eru nefndir á nafn. Þeir hétu Dufþakur og Geir­röður, Skjald­björn, Halldór og Draf­dittur. Hverjir voru þeir?

2.  Hvað nefnd­ist tungu­málið, sem talað var í Róm hinni fornu?

3.  Hvað hét heit­kona Eyvindar úti­legu­manns?

4.  En hvað hét sá frægi „úti­legu­þjófur“ sem lengst var í sam­floti með þeim skötu­hjúum?

5.  Hvaða hljóm­sveit hefur sent frá sér plötur eins og Modern Life is Rubbish, Parklife, The Great Escape, 13 og Think Tank?

6.  Fleiri en einn hafa þanið radd­böndin í hljóm­sveit­inni Nýd­anskri. En hvaða söngv­ari hefur alltaf verið með?

7.  Fyrir nokkrum dögum var til­kynnt um óvæntan heiður sem féll Nýd­anskri í skaut. Hvað gerð­ist?

8.  Hver er stærsta eyjan í Evrópu?

9.  Hvaða íslenski stjórn­mála­maður sagði sem frægt varð: „Minn tími mun koma.“

10.  Stjórn­mála­mað­ur­inn hafði rétt fyrir rétt, og varð að lokum for­sæt­is­ráð­herra. Hvaða ár?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða vin­sælu sjón­varps­s­eríu er myndin hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þrælar Hjör­leifs land­náms­manns.

2.  Latína.

3.  Halla.

4.  Arnes.

5.  Blur.

6.  Björn Jörundur.

7.  Manna­nafna­nefnd úrskurð­aði að for­eldrum væri heim­ilt að skíra dóttur sína þessu nafni. Sjá hér.

8.  Bretland.

9.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

10.  2009.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá háhyrn­ing.

Á neðri mynd­inni eru per­sónur (eða leik­endur) í sjón­varps­þátt­unum Friends.

***

Og hér að neðan má finna hlekki á eldri þrautir, og þær nýrri líka, þegar fram í sækir!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár