435. spurningaþraut: Tveir Nóbelsverðlaunahafar Menntaskólans í Reykjavík

435. spurningaþraut: Tveir Nóbelsverðlaunahafar Menntaskólans í Reykjavík

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi reffi­legi karl sem hreykir sér á mynd­inni að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þjóð sló heims­meist­ara Frakka út af Evr­ópu­mót­inu í fót­bolta karla á dög­unum?

2.  Í hvaða fjalli er Þver­fells­horn vin­sæll áfanga­staður?

3.  Hvað heitir leik­fanga­kúrek­inn í Toy Story?

4.  Hvernig eru fiðr­ildin á lit­inn sem fljúga fyrir utan glugga?

5.  Hvað hét ris­inn sem Davíð sigr­aði?

6.  Í hvaða bæ á Englandi fædd­ist William Shakespe­are?

7.  Ómerktar fjölda­grafir hafa á síð­ustu vikum og mán­uðum fund­ist við heima­vist­ar­skóla í til­teknu landi. Hvaða land er það?

8.  Tveir Nóbels­verð­launa­hafar hafa stundað nám við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og/eða fyr­ir­renn­ara hans. Hvorugur lét mjög að sér kveða í keppni um hinar hæstu ein­kunnir og annar þeirra hætti meira að segja námi án þess að ljúka námi. En það kom sem sagt ekki að sök því Nóbels­verð­laun fékk hann árið 1955. Hvað hét hann?

9.  Hinn Nóbels­verð­launa­haf­inn lauk að vísu stúd­ents­prófi en var 11. í röð­inni af 15. nem­endum. Það mátti þó kall­ast ágætt því hann hafði ekki kunnað neina íslensku þegar hann kom til lands­ins nokkrum árum fyrr, þótt faðir hans væri íslenskur. Þetta var árið 1882 og skól­inn kall­að­ist þá Lærði skól­inn. Hann fékk Nóbels­verð­laun árið 1903 en átti þá bara eitt ár eftir ólifað. Hvað hét hann?

10.  Hvaða starfi gegnir  Halla Bergþóra Björns­dóttir um þessar mundir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá leikkon­una Emmu Stone í nýrri bíó­mynd, sem fjallar um upp­runa skað­ræðiskvendis, sem er sér­stak­lega þekkt úr teikni­mynd frá 1961. Hvað heitir per­sónan sem Stone leikur — og nýja bíó­myndin heitir reyndar eftir per­són­unni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sviss­lend­ingar.

2.  Esjunni.

3.  Woody eða Viddi.

4.  Hvít.

5.  Golíat.

6.  Strat­ford.

7.  Kanada.

8.  Halldór Laxness.

9.  Niels Finsen. Eft­ir­nafnið dugar.

10.  Hún er „lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“. Að nefna Reykja­vík er sem sé ekki rétt.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Haile Selassie keis­ari Eþíópíu góðan hluta af 20. öld.

Á neðri mynd­inni er Stone í hlut­verki Cruellu, ill­menn­is­ins úr Disney-mynd­inni 101 Dalma­tíu­hundur. Nýja bíó­myndin heitir líka Cruella.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár