434. spurningaþraut: Broadway, Uganda, Evrópumótið 2016 ... og fleira

434. spurningaþraut: Broadway, Uganda, Evrópumótið 2016 ... og fleira

Fyrri auka­spurn­ing.

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hver er karl­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Nokkurn veg­inn hversu löng er leik­hús­gatan Broadway í New York-borg frá upp­hafi til enda? Er hún 50 metrar, 500 metrar, 5 kíló­metrar eða 50 kíló­metrar?

2.  Hvaða íslenski stjórn­mála­maður fékk á dög­unum heið­urs­merki Sam­tak­anna 78?

3.  Afr­íku­ríkið Uganda er lýð­veldi með þjóð­kjörnum for­seta. Innan landamæra þess er hins vegar gam­alt kon­ungs­ríki þar sem er sér­stakur kóngur, þótt tign hans sé núorðið fyrst og fremst tákn­ræn og hann hafi ekki raun­veru­leg völd. Hvað heitir þetta kon­ungs­ríki innan landamæra Uganda?

4.  Hvaða annað nafn er gjarnan notað yfir Miklatún í Reykja­vík?

5.  Á EM í fót­bolta karla 2016 vann Ísland tvo leiki. Eftir tvö jafn­tefli vann Ísland þriðja leik sinn í riðla­keppn­inni 2-1 gegn ... hverjum?

6.  Þar með komst Ísland í 16 liða úrslit og vann ein­hvern sinn frækn­asta sigur, líka 2-1, gegn ... hverjum?

7.  Þar með var sig­ur­göngu Íslands hins vegar lokið og liðið tap­aði 2-5 í átta liða úrslitum gegn ... hverjum?

8.  Hver er sá frétta­þulur á Stöð 2 sem lengst hefur starfað?

9.  Hvaða íslenski tón­list­ar­maður sendi fyrir 15 árum frá sér lagið Please Don't Hate Me? Lista­manns­nafnið dugar.

10.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Hrafninn flýgur árið 1984? 

***

Seinni auka­spurn­ing.

Útlínur hvaða ríkis má sjá hér fyrir neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Broadway er alls um 50 kíló­metrar.

2.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

3.  Buganda.

4.  Klambratún.

5.  Aust­ur­ríki.

6.  Englandi.

7.  Frökkum.

8.  Edda Andr­és­dóttir.

9.  Lay Low. Hún heitir fullu nafni Lovísa Elísabet Sig­rún­ar­dóttir.

10.  Hrafn Gunn­laugs­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá skáldið Sjón.

Hér sést myndin öll af skáld­inu.

Á neðri mynd­inni má hins vegar greina útlínur Póllands.

Og hér er að sjá Pólland og næsta nágrenni.

***

Lítið svo á hlekk­ina hér neðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár