433. spurningaþraut: Frá Óðni til Gjögurs með viðkomu í Frakklandi og víðar

433. spurningaþraut: Frá Óðni til Gjögurs með viðkomu í Frakklandi og víðar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er fastur í lausu lofti á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað köllum við þann viku­dag sem í nor­rænum málum er kenndur við Óðin?

2.  Á lat­ínu var þessi dagur hins vegar kall­aður „dagur Merkúr­í­usar“. Hvers konar guð var Merkúr­íus?

3.  Eins og ævin­lega er, þá á róm­verski guð­inn Merkúr­íus sér hlið­stæðu í grísku goða­fræð­inni. Hvað hét hinn forn­gríski starfs­bróðir Merkúr­í­usar?

4.  Bretar voru gefnir fyrir að gefa her­skipum sínum nöfn úr hinni klass­ísku goða­fræði og í apríl 1982 var flug­véla­móð­ur­skip með nafni gríska guðs­ins flagg­skip breska flot­ans í langri sigl­ingu sem end­aði ... hvar?

5.  Tvö flug­véla­móð­ur­skip eru nú í breska flot­anum. Fjögur önnur Evr­ópu­ríki halda úti eig­in­legum flug­véla­móð­ur­skipum. Það eru Rússland (eitt), Frakk­land (eitt), Ítalía (tvö) og ... hvaða riki?

6.  Franska flug­véla­móð­ur­skipið heitir eftir leið­toga hinna svo­nefndu „frjálsu Frakka“ í síð­ari heims­styrj­öld­inni, sem síðar varð for­seti Frakk­lands. Hvað hét hann?

7.  Macron núver­andi for­seti Frakk­lands á eig­in­konu sem Birgitte heitir. Þau kynnt­ust fyrst við nokkuð svo­lítið aðstæður af hjónum að vera. Hverjar voru þær aðstæður?

8.  Önnur frönsk Birgitte nálg­ast nú nírætt en ekki er vitað annað en hún sé við hesta­heilsu. Reyndar ætti kannski að nefna önnur dýr en hesta í tengslum við hana því þótt hún helg­aði sig dýra­vernd almennt, þá var hún og er kunn­ust fyrir bar­áttu sína í þágu einnar dýra­teg­undar. Hver er sú?

9.  Hvað er ann­ars eft­ir­nafn þess­arar Birgitte?

10.  Barátta hennar í þágu þess­arar dýra­teg­undar gerði hana umdeilda og í við­tali ég tók við hinn kunna veiði­mann Axel Thoraren­sen á Gjögri árið 1980 fór hann ekki hlý­legum orðum um hana. En hvar er ann­ars veiði­stöðin Gjögur? Hér þarf þokka­lega nákvæmt svar.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá aðal­leikon­una í vænt­an­legri mynd Valdi­mars Jóhanns­sonar, Lambi. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mið­viku­dag.

2.  Sendi­boði guð­anna.

3.  Hermes.

4.  Við Falklandseyjar.

5.  Spánn.

6.  Charles de Gaulle.

7.  Hún var kenn­ar­inn hans í mennta­skóla. Kennari dugar samt.

8.  Selir.

9.  Bardot.

10.  Í Árnes­hreppi á Ströndum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Boris Johnson.

Á neðri mynd­inni er sænska leik­konan Noomi Rapace.

***

Skoðið hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár