432. spurningaþraut: Hver er faðir tvíburasonanna Saint Leos og Thunders?

432. spurningaþraut: Hver er faðir tvíburasonanna Saint Leos og Thunders?

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að ofan gegnir einu miklu virð­ing­aremb­ætti í fjöl­mennu ríki, þótt ekki sé það valda­staða. Hún er sem sé ... hvað?

***

Aðal­spurn­ingar.

1.  Í síð­asta mán­uði fædd­ist tæp­lega hálf­fertugum íþrótta­manni tví­burar. Hann og kona hans Kasi eign­uð­ust þá tví­bura­syni og var annar skírður Saint Leo en hinn Thunder. Nafnið á Thunder litla þótti sér­lega skondið í sam­hengi við bæði nafn og fram­göngu föður hans á íþrótta­vell­inum. Hvaða íþrótta­mann er hér um að ræða?

2.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plöt­una Rubber Soul síðla árs 1965?

3.  Hvaða frægi auð­kýf­ingur, sem fædd­ist tæpu ári eftir að Gúmmí­sálin kom út, er sagður hafa lagt grunn að auð­æfum sínum með því að selja inn­fluttar gúmmí­endur, heima hjá sér?

4.  Hvaða fræga popp­stjarna — sem í bili er reyndar ekki fyrst og fremst þekkt fyrir tón­list sína — gaf út plöt­una Blackout 2007?

5.  Ajaccio er stærsta borgin á eyju einni. Hvað heitir sú eyja?

6.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Und­an­tekn­ing­una?

7.  „Frankly, my dear, I don't give a damn.“ Hvaða leik­ari mælir þessi orð í frægri kvik­mynd?

8.  En hvað heitir per­sónan, sem fær þetta framan í sig?

9.  Hvað hét síð­ari eig­in­kona Halldórs Laxness rit­höf­undar?

10.  Fyrir utan ómet­an­lega hjálp sem kona HKL veitti honum við skrift­irnar, þá kom hún við sögu við þróun á ákveðnu fyr­ir­bæri sem sumir telja æva­gam­alt en er það í raun­inni ekki. Hvað er hér átt við?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þrí­vídd­ar­líkan af hvaða frægu stór­borg má sjá hér að neðan? Ég gef ekki upp úr hvaða átt er horft.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Usain Bolt. Nafnið Thunder Bolt þýðir nokkurn veg­inn „þrumufleygur“ sem hæfir ágæt­lega syni þessa hlaupa­garps.

2.  Bítl­arnir.

3.  Roman Abramovich.

4.  Britney Spears.

5.  Korsíka.

6.  Auður Ava.

7.  Clark Gable.

8.  Scarlett O'Hara.

9.  Auður.

10.  Hið „íslenska“ mynstur lopa­peysunnar. Nefna verður mynstrið, lopa­peysan ein dugar ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er keis­ara­ynjan í Japan. Ekki er nauð­syn­legt að þekkja nafn hennar en hún heitir 雅子.

Borgin á neðri mynd­inni er Róm. Horft er yfir borg­ina nokkurn veg­inn úr vestri.

***

Og hér fyrir neðan eru hlekkir á fyrri þrautir og þá næstu, eftir að hún birt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár