Um 47% blaðamanna á Íslandi segja að sér hafi verið ógnað

Sjö pró­sentum blaða­manna á Íslandi hefur oft eða mjög oft verið ógnað eða hótað. Þá hafa 12% blaða­manna verið beittir kyn­ferð­is­legri áreitni eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, langstærstur hluti þeirra konur.

Um 47% blaðamanna á Íslandi segja að sér hafi verið ógnað
Búa við áreiti Helgi Seljan, frétta­maður Kveiks, hefur lýst því hvernig hann hefur þurft að þola áreiti og ógn­andi hegðun vegna starfa sinna. Við hlið hans er Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks. Mynd: Kristinn Magnússon

Um 40% blaða­manna á Íslandi segja að sér hafi ein­hvern­tím­ann verið ógnað eða hótað á starfs­ferli sínum. Þá segja 7% blaða­manna á Íslandi að þeim hafi verið oft eða mjög oft ógnað eða hótað. Þetta eru nið­ur­stöður alþjóð­legs rann­sókn­ar­verk­efnis á vegum Worlds of Journalism Study (WJS), sem íslenskur rann­sókn­ar­hópur er þátt­tak­andi í. Frá þessu er greint í nýjasta tölu­blaði Blaða­manns­ins, blaðs Blaða­manna­fé­lags­ins. 

13% blaðamanna á Íslandi verið lögsóttir síðustu fimm ár

Samkvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­verk­efn­is­ins á vegum WJS hafa 13% blaða­manna  sem tóku þátt í könn­un­inni verið lög­sóttir. Alls tóku 248 íslenskir blaða­menn þátt í könn­un­inni. Þá hafa 12% blaða­manna verið beittir kyn­ferð­is­legri áreitni eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, langstærstur hluti þeirra konur.

Þá sýna nið­ur­stöður rann­sókn­ar­verk­efn­is­ins að staða blaða­manna hér á landi er ekki mikið frá­brugðið frá þeirri stöðu sem þekk­ist meðal blaða­manna í Evrópu.

Þjóðverjar gera sáttmála til að vernda blaðamenn

Í Þýska­landi ákváðu fag­fé­lög blaða­manna og sam­tök sem berj­ast fyrir fjöl­miðla­frelsi að koma sér saman og gera sátt­mála um hvernig megi vernda blaða­menn sem starfa þar í landi. Þar er að finna til­lögur sem grípa beri til þegar blaða­mönnum er hótað eða ógnað á ein­hvern hátt vegna mála sem þeir eru að fjalla um. Þá hefur Evr­ópu­ráðið einnig látið sig þetta varða og nú í vor stóðu ýmis sam­tök þýsks fjöl­miðla­fólks að sér­stakri yfir­lýs­ingu eða sátt­mála, þar sem mælst var til að útgef­endur þar í landi tækju upp á sína arma að tryggja öryggi og heilsu starfs­manna sinna.

Yfir 900 blaðamenn látið lífið á síðustu 10 árum vegna starfa sinna

Á síð­asta ári lét­ust 50 blaða­menn í heim­inum vegna starfa sinna, sam­kvæmt sam­tök­unum Blaða­manna án landamæra (RFS). Fjöldi blaða­manna sem deyja árlega hefur minnkað, þá sér­stak­lega í löndum þar sem stríðs­á­stand ríkir. En fleiri blaða­menn eru nú drepnir í löndum sem ekki ríkir stríðs­á­stand. Á árunum 2011 til 2020 lét­ust alls 937 blaða­menn víðs vegar um heim­inn. Verstu árin voru 2011 og 2012, en þá lét­ust rúm­lega 290 blaða­menn. Samkvæmt RFS voru 84% allra morða á blaða­mönnum árið 2020 skipu­lögð. Árið 2020 hafa 387 blaða­menn verið hand­teknir, teknir gísl­ingu eða hafa horfið spor­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár