Sigmar Guðmundsson hættur á RÚV og farinn í framboð

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son skipar annað sæti á lista Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar. Hann hefur und­an­farin ár stýrt Morg­un­út­varpi Rásar 2 en áður var hann rit­stjóri Kastljós. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, leiðir list­ann.

Sigmar Guðmundsson hættur á RÚV og farinn í framboð
Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son hefur átt langan feril í íslenskum fjöl­miðlum, lengst af hjá Rík­is­út­varp­inu. Mynd: Viðreisn

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son er kom­inn í póli­tík og skipar 2. sæti á lista Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­kona og for­maður flokks­ins, leiðir list­ann.

Leið­tog­innÞor­gerður Katrín er for­maður og odd­viti Við­reisnar. Hún leiddi flokk­inn fyrir síð­ustu kosn­ingar.

„Já ég er hættur á RÚV og sagði upp í gær og eðli­lega held ég ekki áfram í neinum útsend­ingum eða slíku. Það á bara eftir að ganga frá hefð­bundnum praktískum lausnum sem fylgja starfs­lokum,“ segir Sigmar.

„Fyrir mig er þetta stór ákvörðun að taka. Þó maður sé inni í póli­tík­inni með ákveðnum hætti þegar maður er að fjalla um hana, þá er allt annað þegar maðru tekur beint þátt í henni.“

Löngum ferli lokið

Sigmar hefur starfað í fjöl­miðlum í þrjá ára­tugi. Lengst af á RÚV sem stjórn­andi ýmissa vin­sælla þátta, bæði í skemmti­dag­skrá og fréttum. Hann var rit­stjóri Kast­ljóss um tíma en und­an­farin ár hefur hann stýrt Morg­un­út­varpi Rásar 2.

Hann segir að nú hafi verið góður tími til að skipta um kúrs.

„Núna er starfsævin hálfnuð, kannski rúm­lega, það, og þá þarf maður að standa frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort maður vilji vera þar alla ævi eða prófa eitt­hvað nýtt,“ segir hann.

„Ég veit þetta er starf sem hentar mér vel og ég hef áhuga á því. Síðan er þetta bara löng­unin til að prófa eitt­hvað nýtt, fara í nýjar áttir og takast á við nýjar áskor­anir, það er svona per­sónu­lega hliðin á þessu.“

Ekki haft áhrif

Sigmar segir stefnu Við­reisnar hafa átt vel við sínar eigin skoð­anir. En hefur það haft áhrif á umfjöllun hans hjá RÚV?

„Allir blaða­menn hafa sínar skoð­anir og allir blaða­menn sem ég þekki nota kosn­inga­rétt­inn og greiða atkvæði í kosn­ingum. En skoð­anir eru eitt og fag­leg umfjöllun annað.” segir hann og bætir við: „Þessu tvennu blandar fólk auð­vitað ekki saman í fréttum og blaða­mennsku.“

„Skoðanir eru eitt og fag­leg umfjöllun annað“

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi flokks­ins, hafði freistað þess að vera í for­ystu­sæti á list­anum en var hafnað af flokknum. Honum bauðst síð­asta sæti list­ans, sem gjarnan er nefnt heið­urs­sæti, en hafn­aði.

Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra fyrir Sjálf­stæð­is­flokk, skipar það sæti list­ans. 

Aðrir sem eru ofar­lega á lista Við­reisnar fyrir kom­andi kosn­ingar eru Thomas Möller, verk­fræð­ingur og ráð­gjafi, í 4. sæti, Ástrós Rut Sig­urð­ar­dóttir þjón­ustu­full­trúi 5. sæti, og Rafn Helgason, umhverfis- og auð­linda­fræð­ingur, í 6. sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár