399. spurningaþraut: Hvers son er Vladimir Pútin? Þetta vita allir!

399. spurningaþraut: Hvers son er Vladimir Pútin? Þetta vita allir!

Hjer er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Kona sem nú er orðin virt og verð­launuð kvik­mynda­stjarna var all­lengi að ná athygli fólks og lék fjölda smá­hlut­verka í fremur smá­vægi­legum verkum lengi framan af ferli sínum. Árið 2007 lék hún til dæmis lítið hlut­verk í bresku grín-löggu­mynd­inni Hot Fuzz. Hvað heitir þessi kvik­mynda­stjarna, en hana má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvers son er Vladimir Pútin?

2.  Gegn hverju berj­ast Stígamót?

3.  Eftir að íslenska ríkið féllst loks á að end­ur­skoða Guð­mundar- og Geir­finns­mál var ákveðið öllum sak­born­ingum (eða erf­ingjum þeirra) bætur, nema einum. Hver var það?

4.  Þann 30. sept­em­ber 1966 flutti Vil­hjálmur Þ. Gíslason erindi í sjón­varpið. Hvað var í frá­sögur fær­andi við þetta erindi?

5.  Daginn eftir birt­ist frétt í Morg­un­blað­inu um að út væri komin ný bók eftir Guðberg Bergsson, sann­kölluð met­sölu­bók. Hvað nefnd­ist sú bók fullu nafni?

6.  Hvað eiga Amma Mús og Mary Poppins sam­eig­in­legt?

7.  Syðsti oddi Græn­lands heitir á græn­lensku Uummannarsuaq. Hvað er hann kall­aður á íslensku?

8.  Marg­ar­etha Geertruida Zelle fædd­ist í Hollandi árið 1876. Hún and­að­ist aðeins 41s árs árið 1917 en var þá kunn undir öðru nafni. Hvaða nafn var það?

9.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­unum Hross í oss og Kona fer í stríð?

10.  Hún er talin hafa verið ein áhrifa­mesta konan sem búið hefur í Hvíta hús­inu í Washington, þar sem hún hélt til í tólf ár, en þó var hún ekki for­seti. Hvað hét hún? 

***

Seinni auka­spurn­ing snýst, eins og sú fyrri, um leik­list. Á mynd­inni hér að neðan sést atriði úr sýn­ingu á heims­frægu gömlu leik­riti sem sett var upp í Georgíu árið 2016. Ekki fylgir sög­unni hvað leik­ar­inn heitir en hann er einn af virt­ustu karl­leik­urum af eldri kyn­slóð­inni í Georgíu. En í hvaða leik­riti skyldi hann vera að leika þetta dramat­íska atriði?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Vla­dimirs­son. Upp á rúss­nesku heitir hann fullu nafni Vladimir Vla­dimirovitsj Pútin.

2.  Kyn­ferð­is­of­beldi.

3.  Erla Bolla­dóttir.

4.  Þetta var fyrsta erindið sem flutt var í íslensku sjón­varpi. Fyrsta útsend­ing þess var þann dag.

5.  Tómas Jónsson met­sölu­bók. „Met­sölu­bók“ var partur af titli hennar.

6.  Að hafa flogið eða alt­ént feykst til á regn­hlífum.

7.  Hvarf.

8.  Mata Hari.

9.  Benedikt Erlings­son.

10.  Eleanor Roosevelt.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Film­stjarnan á efri mynd­inni er Olivia Colman.

Senan á neðri mynd­inni er vit­an­lega úr Lé kon­ungi eftir Shakespe­are. Gamall kall að æða um á eyði­legum slóðum í óveðri og örvænt­ingu — Lér er að minnsta kosti það fyrsta sem fólk ætti að giska á.

***

Hlekkur hjer á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár