398. spurningaþraut: Hver var í hjónabandi 72 daga?

398. spurningaþraut: Hver var í hjónabandi 72 daga?

Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ingin:

Hvað fer fram í húsi því sem sést hér á mynd­inni að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tryggvi nokkur Gunn­ars­son lét nýlega af störfum sem ... hvað?

2.  Hvað heitir gamla her­skipið sem er til sýnis í Portsmouth á Englandi, var hleypt af stokk­unum 1765 og var flagg­skip Nelsons flota­for­ingja í frægri sjóorr­ustu við Trafal­far 1805?

3.   Hvaða tón­list­ar­maður gekk gjarnan undir gælu­nafni Satchmo?

4.  Donna Cruz sló í gegn í aðal­hlut­verki kvik­myndar árið 2019. Myndin hét reyndar eftir per­són­unni sem hún lék. Hvað hét þá myndin?

5.  Árið 1970 varð eld­gos þar sem heita Skjólkvíar. Gosið er þó oft­ast talið hluti af eld­gosa­sögu eins af kunnri eld­fjöllum lands­ins. Hvaða eld­fjall var það?

6.  Hvað er stærsta úthaf Jarðar?

7.  Hvað nefnum við deo­xýrí­bósa·kjarn­sýru venju­lega?

8.  Hvað er þekktasta tón­verk Svein­björns Svein­björns­sonar?

9.  Í hvaða borg var Eurovision keppnin haldin um dag­inn?

10.  Kris Hump­hries er fyrr­ver­andi körfu­bolta­maður í Banda­ríkj­unum. Árið 2011 var hann kvæntur einn helstu fjöl­miðla­stjörnu heims­ins í 72 daga, en þá skildu þau. Hver var eig­in­kona Hump­hries þessa daga?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fjörð­ur­inn/víkin/vog­ur­inn/fló­inn sem sést á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Umboðs­maður.

2.  Victory.

3.  Louis Arm­strong.

4.  Agnes Joy.

5.  Hekla.

6.  Kyrra­hafið.

7.  DNA.

8.  Þjóð­söng­ur­inn.

9.  Rott­er­dam.

10.  Kim Kar­dasian.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Í húsi á efri mynd­inni eru fluttar óperur. Það er í Sydney í Ástralíu.

Neðri myndin sýnir Aðalvík á Horn­ströndum.

***

Og aptur hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár