394. spurningaþraut: Lönd í Suður-Ameríku, borg í Asíu, vindmyllur

394. spurningaþraut: Lönd í Suður-Ameríku, borg í Asíu, vindmyllur

Hér er þrautin frá í gær, ef þið skylduð bara misst af henni.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mynd­ina af kennslu­stund í líf­færa­fræði hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir stærsta ríkið í Suður-Ameríku?

2.  En hvað heitir það næst­stærsta?

3.  Og af því allt er þá er þrennt er, hvað heitir þá þriðja stærsta ríkið í Suður-Ameríku?

4.  Tashkent heitir borg ein í Mið-Asíu, höf­uð­borg í til­teknu ríki sem hlaut sjálf­stæði 1991. Hvaða ríki er það?

5.  Khaleda Zia heitir kona ein sem varð for­sæt­is­ráð­herra í heima­landi sínu 1991 og gegndi emb­ætti til 1996, og svo aftur frá 2001 til 2006. Þetta var til tíð­inda talið þar sem Zia býr í fjöl­mennu ríki þar sem múslimar eru yfir­gnæf­andi og konur hafa löngum átt undir högg að sækja. Hvað heitir ríki hennar?

6.  Víkjum nú að íslenskri landa­fræði. Upp úr hvaða dal kemur sá sem keyrir norður Holta­vörðu­heiði?

7.  Rhea Perlman og Shelly Long eru banda­rískar leikkonur, nú rúm­lega sjö­tugar, sem voru í byrjun níunda ára­tug­ar­ins frægastar fyrir að leika helstu kven­hlut­verkin í frægri sjón­varps­þátta­röð sem var ein hin vin­sælasta í heimi um þær mundir. Serían var lengi sýnd hér á landi. Hvaða sería var þetta?

8.  Á hvaða tungu­máli skrif­uðu þau Aristofa­nes og Saffó verk sín?

9.  Lewandowski heitir einn mesti marka­skor­ar­inn í karla­fót­bolt­anum þessi miss­erin. Undir hvaða fána spilar hann lands­leiki?

10.  Hver barð­ist við vind­myllur? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Brasilía.

2.  Argent­ína.

3.  Perú.

4.  Úsbekistan.

5.  Bangla­desj.

6.  Norð­ur­ár­dal.

7.  Cheers eða Staupa­steinn.

8.  Grísku.

9.  Póllands.

10.  Don Kíkóti.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Krufn­ing­una mál­aði Rembrandt.

Karlinn á neðri mynd­inni er Rembrandt. Hann mál­aði mynd­ina reyndar sjálfur.

***

Og lox, aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár