393. spurningaþraut: Hvaða vinsæla leikfang kom til sögunnar 1974?

393. spurningaþraut: Hvaða vinsæla leikfang kom til sögunnar 1974?

Þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá skjá­skot af litlum hluta af til­teknu hljóm­plötu­umslagi. Hvaða tón­list­ar­maður gaf út þá plötu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hve margir Íslend­ingar hafa orðið stór­meist­arar í skák í karla­flokki? Að þessu sinni eru ekki taldir með Daninn Henrik Dani­el­sen né Bobby Fischer sem báðir urðu íslenskir rík­is­borg­arar eftir að þeir áunnu sér stór­meist­ara­titil. Hér má skeika einum stór­meist­ara til eða frá.

2.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borgin í Rúss­landi?

3.  Árið 1974 hófst sala á til­teknum leik­föngum sem þýski hug­vits­mað­ur­inn Hans Beck hafði þá verið að þróa í þrjú ár. Honum fannst mest um vert að leik­fangið væri hvorki of sveigj­an­legt né of stíft fyrir börnin, og hann­aði stærð þess vand­lega til að passa í lófa barns. Sala á leik­föng­unum fór hægt af stað en árið 2009 höfðu selst 2,2 millj­arðar svona leik­fanga. Hvaða leik­fang er þetta?

4.  Hvað heitir hin stærsta af Vest­manna­eyjum?

5.  Erlendur Sveins­son er ekk­ert óal­gengt nafn og menn sem heita þessu nafni hafa vafa­lítið feng­ist við sitt af hverju um ævina. En við hvað starf­aði hinn lang, lang fræg­asti Erlendur Sveins­son?

6.  Sylvia Plath hét kona ein banda­rísk sem féll fyrir eigin hendi aðeins þrí­tug að aldri árið 1963. Hvað fékkst hún við um daga sína alltof fáa?

7.  Ítalska hljóm­sveitin Måneskin vann Eurovision söngvakeppn­ina á laug­ar­dag­inn var með lagið Zitti e buoni. Hvað þýðir Zitti e buoni?

8.  Hvaða þjóð varð í þriðja sæti í þess­ari keppni, einu sæti ofar en Ísland?

9.  Við hvaða reiki­stjörnu eru fjögur stór tungl sem fyrst sáust í sjón­auka árið 1609 eða 1610?

10.  Hvað er helst ræktað í Þykkva­bænum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða konu, unga að árum, má sjá á neðri mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þeir eru fjórtán, svo rétt telst vera 13-15.

2.  Moskva.

3.  Playmo-kallar.

4.  Heimaey.

5.  Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður (í bókum Arnaldar Ind­riða­sonar).

6.  Hún var ljóð­skáld/rit­höf­undur.

7.  Til dæmis: „Haltu kjafti og vertu þægur“ eða „Hafðu þig hægan og hag­aðu þér vel.“ Ýmsar þýð­ingar sem fela þetta í sér koma til álita.

8.  Sviss­lend­ingar.

9.  Júpíter.

10.  Kart­öflur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá hluta af umslagi plöt­unnar Blood On the Tracks.

Þá plötu gaf afmæl­is­barn dags­ins, Bob Dylan, út á sínum tíma.

Dylan er átt­ræður í dag, og því fagna allir góðir menn!

Á neðri mynd­inni má aftur á móti sjá Díönu prinsessu á ung­lings­aldri.

***

Þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár