392. spurningaþraut: Hver hefur allra lengst verið Íslandskóngur?

392. spurningaþraut: Hver hefur allra lengst verið Íslandskóngur?

Hér er þrautin frá í gær! En hérna er aftur á móti þrautin frá í fyrra­gær, sem öll snýst um Ítalíu.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er ungi afreks­mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 2010 var stofnuð hljóm­sveit í Reykja­vík. Meðal með­lima hennar þá og enn í dag eru Ragnar Þór­halls­son, Brynjar Leifsson, Kristján Páll Krist­jáns­son og Arnar Rósenkranz Hilm­ars­son. Árni Guð­jóns­son var líka í hljóm­sveit­inni um tíma. Hvað heitir hljóm­sveitin?

2.  Í upp­taln­ing­una hér að ofan vantar reyndar einn með­lim hljóm­sveit­ar­innar. Hvað heitir sá? Hér dugar for­nafn.

3.  Árið 1588 tók ungur karl við kon­ungs­tign í Danmörku og þar með á Íslandi líka. Hann gegndi svo kon­ungs­tign­inni í rétt tæp 60 ár og hefur eng­inn verið Dana­kóngur lengur. Framan af ól hann með sér mikla stór­veld­is­drauma en þeir fóru flestir í vaskinn, þrátt fyrir vask­lega fram­göng kóngs­ins sjálfs. Hvað hét hann? Hér þarf að hafa bæði nafn og númer rétt, er ég hræddur um.

4.  Hver er breið­asti fjörður/flói/vík/vogur á Íslandi sem eng­inn þétt­býl­is­staður stendur við?

5.  Hvar á land­inu hefur íþrótta­fé­lagið Breiða­blik aðsetur?

6.  Breiða­blik var í hinni fornu nor­rænu goða­fræði aðsetur eins guð­anna. Hver var sá?

7.  Eitt af til­efnum síð­ari heims­styrj­aldar 1939 voru deilur um borg­ina Danzig sem þá tald­ist svo­nefnd frí­borg. Hvað heitir borgin núna?

8.  Hver sagði: „We shall go on to the end, we shall fight in France, we shall fight on the seas and oceans, we shall fight with growing confidence and growing strength in the air, we shall def­end our Island, whatever the cost may be, we shall fight on the beaches, we shall fight on the land­ing grounds, we shall fight in the fields and in the streets, we shall fight in the hills; we shall never sur­render!“

9.  Þrjár konur hafa gegnt emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra Íslands. Hvað hét sú fyrsta sem tók við starf­inu 2006?

10.  En hver hefur lengst allra gegnt þessu starfi, karl eða kona? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fána hvaða ríkis má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Of Monsters and Men.

2.  Nanna Bryndís.

3.  Kristján 4.

4.  Hér­aðs­flói.

5.  Í Kópavogi.

6.  Baldur.

7.  Gdansk.

8.  Churchill.

9.  Val­gerður Sverr­is­dóttir.

10.  Halldór Ásgríms­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá norður-írska fót­bolta­kapp­ann George Best (1946-2005) sem gerði um tíma garð frægan með liði Manchester United.

Á neðri mynd­inni er fáni Portú­gals.

***

Og þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár