391. spurningaþraut: Óvenju margar spurningar um skáldsögur, en allar fisléttar, trúi ég

391. spurningaþraut: Óvenju margar spurningar um skáldsögur, en allar fisléttar, trúi ég

Ítal­íu­þrautin í gær, hér er hlekkur á hana.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan, sem hér að ofan mundar skot­vopn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Vængja­sláttur í þak­rennum?

2.  Í hvaða hljóm­sveit er Árný Fjóla Ásmunds­dóttir?

3.  Hvað heitir hafn­ar­borg Aþenu, höf­uð­borgar Grikk­lands?

4.  Hvaða dýr var tákn gyðj­unnar Aþenu?

5.  Hvaða tón­list­ar­maður hefur gefið út plöt­urnar Planet Waves (1974), Saved (1980) og Together Through Life (2009)?

6.  Í vin­sælli bók sem skrifuð var á 19. öld segir frá skip­inu Pequod og marg­vís­legum ævin­týrum og raunum sem áhöfn skips­ins lendir í. Hvers konar skip var Pequod?

7.  Í hvaða bæ býr Daði Freyr prímus mótor Gagna­magns­ins?

8.  Hvað hét gjald­mið­ill Ítalíu áður en evran var þar upp tekin?

9.  „For­set­inn á ekki sjö dag­ana sæla – það getur verið flókið að vera þjóð­höfð­ingi. En nú hefur hann fengið góða gesti frá útlöndum: Kóng, drottn­ingu og prinsessu! Sautj­ándi júní nálg­ast og þá á að veita alls konar dug­legu fólki fálka­orðu. En ótal­margt ger­ist áður en fálka­orðu­veislan getur byrjað.“ Hvað heitir bókin sem svo er lýst?

10.  Víti í Vest­manna­eyjum, Auka­spyrna á Akureyri, Rang­stæður í Reykja­vík, Gula spjaldið í Gauta­borg, Barist í Barcelona. Hver stuðl­aði svo fag­ur­lega heitin á bókum sínum?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi hljóm­sveit frá Selfossi, sem vann Mús­íktil­raunir 2012?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Einar Már.

2.  Gagna­magn­inu.

3.   Píreus.

4.  Ugla.

5.  Bob Dylan.

6.  Hval­veiði­skip.

7.  Berlín.

8.  Líra.

9.  Prinsessan á Bessa­stöðum.

10.  Gunnar Helgason.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er kvik­mynda­stjarnan Charlize Theron.

Á neðri mynd­inni er hljóm­sveitin RetRoBot. Daði Freyr er annar frá hægri.

***

Þrautin því í gær frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár