390. spurningaþrautin: Hér snýst allt um Ítalíu

390. spurningaþrautin: Hér snýst allt um Ítalíu

Þrautin frá í gær.

***

Allar spurn­ing­arnar snú­ast um Ítalíu eða Ítali. Fyrri auka­spurn­ingin er svona:

Á mynd­inni hér að ofan er einn af fræg­ustu Ítölum 20. aldar. Hann er lát­inn fyrir all­mörgum árum en hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er næst fjöl­menn­asta borg Ítalíu?

2.  Ítalía á landa­mæri að alls ... hve mörgum ríkjum?

3.  Gari­baldi hét Ítali einn. Hvað gerði hann sér til frægðar?

4.  Hvaða ár grófst borgin Pompeii undir ösku frá eld­fjall­inu Vesúvíusi? Var það árið 179 fyrir Krist, 79 fyrir Krist, 79 eftir Krist eða 179 eftir Krist?

5.  Úr því minnst er á Krist: Hve margir af postulum hans tólf eru taldir hafa orðið písl­ar­vottar frels­ar­ans í Rómaborg sjálfri?

6.  Hvað heitir stærsta borgin á Sikiley?

7.  Hvernig kjet á að nota í alvöru osso bucco?

8.  Hvaða Ítali samdi óper­una La Boheme?

9.  Hvað heitir fjall­garð­ur­inn sem liggur niður eftir Ítal­íu­skaga?

10.  Tvær ítalskar leikkonur hafa fengið Ósk­arsverð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki. Nefnið að minnsta kosti aðra þeirra. Ef þið getið nefnt báðar fáiði sér­stakt auka­stig — lár­við­ar­stigið svo­kall­aða!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar á Ítalíu var myndin hér að neðan tekin? Umsjón­ar­maður spurn­inga­þraut­ar­innar vill endi­lega koma því á fram­færi að hann tók sjálfur þessa mynd!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mílanó.

2.  Sex (Frakk­landi, Sviss, Aust­ur­ríki, Slóveníu, San Marinó, Vatík­an­inu).

3.  Átti mik­inn þátt í sam­ein­ingu Ítalíu.

4.  79 eftir Krist.

5.  Einn. Það var Pétur. Páll er sagður hafa verið kross­festur í Róm en hann var ekki einn hinn tólf post­ula.

6.  Palermo.

7.  Kálfa­kjöt.

8.  Puccini.

9.  App­enína­fjöll.

10.  Sophia Loren og Anna Magnani.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er kvik­mynda­leikstór­inn Fellini.

Neðri mynd­ina tók ég við Kaprí.

***

Þrautin frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár