389. spurningaþraut: Við hvaða götu stendur Alþingishúsið?

389. spurningaþraut: Við hvaða götu stendur Alþingishúsið?

Gær­dags­þraut­ar­hlekkur!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Burundi?

2.  Fyrsta opin­bera kappakst­ur­keppni sög­unnar var háð milli Parísar og Bordeaux í Frakk­landi — en hvaða ár? Var það 1895, 1900, 1905 eða 1910?

3.  Hvaða fuglar verpa stærstu eggj­unum?

4.  Áður en farið var að mæla vind­hraða í metrum á sek­úndu var not­ast við vind­stiga­mæli, þar sem 12 vind­stig voru versta veðrið. Hvað nefnd­ist slíkt veður á þessum skala?

5.  Hver réði draum um sjö feitar kýr og sjö magrar?

6.  Hvað hét hinn ein­eygði æðsti guð nor­rænna manna til forna?

7.  Brokey heitir eyja ein í mynni ... hvaða fjarðar?

8.  Íslands­heim­sókn hvaða vin­sælu hljóm­sveitar varð kveikjan að lag­inu Immigr­ant Song?

9.  Hver var söngv­ari þeirrar ágætu hljóm­sveitar?

10.  Alþing­is­húsið stendur á horni Templ­ara­sunds og ... hvaða götu?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Glaðlega konan á mynd­inni hér að neðan heitir Desiree og fædd­ist árið 1986. Fæðingu hennar var haldið vand­lega leyndri en faðir hennar er heims­frægur tón­list­ar­maður og móðir hennar söng­kona sem vann með honum um tíma. Fyrir utan nán­ustu aðstand­endur vissi eng­inn af til­veru Desiree fyrr en hún var orðin 15 ára. Árið 2014 gekk Desiree í hjóna­band með unn­ustu sinni, og þá vakti athygli að hinn heims­frægi og marg­verð­laun­aði pabbi hennar lét ekki sjá sig í brúð­kaup­inu. Hvað heitir durt­ur­inn, pabbi hennar Desiree?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afríku.

2.  1895.

3.  Strútar.

4.  Fárviðri.

5.   Jósef.

6.  Óðinn.

7.  Hvamms­fjarðar.

8.  Led Zeppelin.

9.  Plant.

10.  Kirkju­strætis.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Imelda Marcos. Eft­ir­nafnið dugir.

Pabbi hennar Desiree á neðri mynd­inni er Bob Dylan.

***

Og hlekkur á þrautin frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár