395. spurningaþraut: Það hlaut að koma að því að ég spyrði um Ankara!

395. spurningaþraut: Það hlaut að koma að því að ég spyrði um Ankara!

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hverrar þjóðar var rit­höf­und­ur­inn Gabriel García Márquez?

2.  Hvað heitir fræg­asta skáld­saga þessa Nóbels­verð­launa­höf­undar?

3.  Hvað hét fóst­bróðir Ingólfs Arn­ar­sonar sam­kvæmt fornum heim­ildum?

4.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Ankara?

5.  Mikið stór­fyr­ir­tæki fyrir fáeinum ára­tugum nefnd­ist PanAm. Hvers konar fyr­ir­tæki var það?

6.  Jónas Jónsson varð dóms­mála­ráð­herra 1927 og gegndi starf­inu í fjögur ár. Hann var jafnan kenndur við bæinn þar sem hann var fæddur. Hvað hét sá bær? 

7.  Hljóm­plata sem kom út 2011 er mest selda plata 21stu aldar, hún hefur þegar selst í meira en 31 milljón ein­taka. Hvaða tón­list­ar­maður sendi frá sér þessa plötu?

8.  Hvað heitir næst­lengsta áin sem fellur um lönd í Afríku?

9.  Skáld­kona ein gaf nýlega út bók­ina Kyrra­lífs­myndir um líf fólks í kóf­inu, en hafði áður meðal ann­ars sent frá sér bæk­urnar Smáa letrið, Frelsi (til­nefnd til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs), Frost­fiðr­ildi, Öll fal­legu orðin og Bláþráð — auk skáld­sög­unnar Lygasögu. Hvað heitir hún?

10.  Fyrir hvaða fót­boltalið hefur Cristiano Ronaldo spilað und­an­farin ár?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan sem situr hér í bíl vinstra megin á mynd­inni? Fornafn hennar dugar.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kólumbíu.

2.  Hundrað ára ein­semd.

3.  Leifur, Hjör­leifur.

4.  Tyrk­landi.

5.  Flug­fé­lag.

6.  Hrifla.

7.  Adele.

8.  Kongó.

9.  Linda Vil­hjálms­dóttir.

10.  Juventus.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn á efri mynd­inni mynd­inni hét Magnús Steph­en­sen.

Konan í bílnum við hlið Bob Dyans er vit­an­lega fyrri eig­in­kona hans, Sara að nafni.

Hér er lagið um hana Söru, sem þið skuluð nu öll hlusta á.

***

Og hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár