Hvernig skyldu þeir vera, aðgerðafundirnir hjá Samherja?
Forráðamenn fyrirtækisins, örugglega forstjórinn sjálfur, nokkrir handlangarar, líklega einn gamall rannsóknarlögreglumaður, nokkrir fyrrverandi fjölmiðlamenn af því tagi sem hefja viðtöl við dæmda bankamenn í fangelsi með orðunum: „Nú eruð þið allir alveg gífurlega klárir menn …“
Og þau sitja við fundarborðið og einhver fer í gegnum pappírsbunka með nýjustu fréttum.
„Það er soldill bömmer suðrí Namibíu. Við erum sökuð um mútur og fleira skuggalegt. Okkar menn þar suður frá meirog minna komnir í fangelsi. Hverju eigum við að svara?“
„Já, ljótt er það,“ segir yfirmaðurinn. „En gáum hvort fólk gleymir þessu ekki ef við ráðumst á Helga Seljan.“
„Önnur fregn, litlu skárri,“ segir sá fyrsti. „Fjármálaflækjurnar okkar þarna á Máritíus, þær eru líka komnar fram í dagsljósið.“
„Nú,“ segir yfirmaðurinn hugsandi. „Hvað leggiði til?“
„Það mætti kannski herða árásir á Helga Seljan,“ áræðir gömul rannsóknarlögga að stinga upp á.
„Gott múv,“ segir yfirmaðurinn. „Herða árásir á Helga Seljan. Hvað næst?“
„Ja,“ segir maðurinn með pappírsbunkann. „Skúffufyrirtækið okkar á Kýpur, það er í vondum málum.“
„Nú?“ segir yfirmaðurinn. „Ólukka er þetta. En hvernig væri að koma því á flot að Helgi Seljan hafi einu sinni verið fullur á balli fyrir austan?“
Allir við fundarborðið kinka kolli yfir þessu snjallræði.
„Frábært,“ segir lögfræðingur, „það gleyma allir Kýpur þegar þessi saga verður komin á kreik.“
„En svo er að lokum eitt,“ segir maðurinn með fréttirnar. „Hugsanlega er að komast upp um okkur í Færeyjum!“
Örþrifaráð
„Nei, heyrðu mig nú,“ segir yfirmaðurinn. „Nú þarf greinilega að grípa til örþrifaráða gegn Helga Seljan. Spurning um að hafa samband við siðanefndina? Fleiri vídjó? Og er ekki hægt að ræsa út fleiri á Facebook? Nú verðum við aldeilis að taka Helga Seljan í gegn.“
Þessi fundur í aðgerðahópnum SHHS („Samherji gegn Helga Seljan) er auðvitað tilbúningur, en vitiði – ég er ekkert frá því að nokkurn veginn svona fari þetta fram í raun og veru.
Það hefur að minnsta kosti farið afar lítið fyrir nokkrum öðrum vörnum Samherja í þeim málum sem sprottið hafa síðustu árin um fjármál fyrirtækisins í Namibíu og víðar, nema ráðist er á Helga Seljan.
Koma Samherjamál einhvern tíma fyrir dómara?
Og svo reyndar líka Jóhannes Stefánsson uppljóstrara.
En jafnvel atlögurnar að honum falla í skuggann af árásum á Helga.
Ég skil eiginlega varla af hverju Samherji lætur svona. Hann ætti að berjast í bókhaldinu ef hann er ekki sáttur við uppljóstranir undanfarinna missera. Ef Samherjamál koma einhvern tíma fyrir dómara hér á landi (en um það er ég raunar farinn að efast), þá mun ekki skipta nokkru einasta máli hvað Helgi Seljan kunni einhvern tíma að hafa sagt á Facebook um Samherja eða jafnvel Eldaðu rétt.
Ólítill þáttur
Þannig að til hvers er fyrirtækið að eyða allri þessari orku – og orðspori svo margra sinna manna – til að hjakkast á Helga sýnkt og heilagt?
Er það bara hefnd, af því Helgi hefur með dugnaði sínum og heiðarleika átt ólítinn þátt í að koma Samherjamálum af stað?
Eða á að kenna lexíu öðrum fjölmiðlamönnum, öðrum fjölmiðlum, öðrum verðandi uppljóstrurum? Á að reyna að hræða Ríkisútvarpið frá því að styðja þennan sinn besta mann?
Samherji smækkar
Hvað sem veldur, þá smækka Samherji og hersveitir hans í hvert sinn sem ný atlaga er gerð. Það er orðið svo lágkúrulegt að sjá fyrirtæki sem veit ekki aura sinna tal og hefur ótal feita þjóna á sínum snærum, að sjá það ausa peningum og orku í að ráðast af heift á einstakling sem sinnir bara vinnunni sinni.
Svoleiðis lágkúra gleymist heldur ekki, hvorki siðanefndarúrskurðurinn né önnur lágkúra.
Athugasemdir