Fólkið frá rauðu löndunum kemur í Farsóttarhúsið

Gylfi Þór Þor­steins­son, umsjón­ar­maður Far­sótt­ar­húss­ins, sér fram á langa vinnu­daga um kom­andi páska en á skír­dag mun hann í fyrsta skipti taka á móti þeim aðilum í hús sem koma frá rauðum svæðum sam­kvæmt Almanna­vörnum.

Fólkið frá rauðu löndunum kemur í Farsóttarhúsið
Fær nán­ast aldrei frí Gylfi í Far­sótt­ar­hús­inu fær nán­ast aldrei frí frá störfum sínum og eyðir þar flestum vöku­stundum hvort sem það eru jól eða páskar Mynd: Heiða Helgadóttir

Páskana tengja margir við nota­lega stund með fjöl­skyld­unni og óhóf­legt magn af súkkulaði. Föstu­dag­inn langa tengja enn aðrir við písl­ar­göngu Krists, kross­fest­ingu hans og dauða á krossi. Dagurinn er mesti sorg­ar­dagur kirkju­árs­ins og í tím­anna rás hefur skemmt­ana­hald verið bannað á þessum degi en orðið skemmtun er einmitt dregið af orð­inu skammur og merkir í raun eitt­hvað sem styttir mönnum stundir. 

Föstudagurinn langi verður mjög langur

Fyrir Gylfa Þór Þor­steins­son, umsjón­ar­mann Far­sótt­ar­húss­ins á Rauð­ar­ár­stíg, verður dag­ur­inn hvorki skammur né skemmti­legur. Hann verður að hans sögn óvenju langur. „Föstu­dag­ur­inn langi verður mjög langur,“ segir Gylfi og bætir við að fimmtu­dag­ur­inn, skír­dagur, verði það líka en það er fyrsti dag­ur­inn sem Gylfi mun taka á móti far­þegum sem þurfa að dvelja í sótt­kví á vegum Far­sótt­ar­húss­ins við kom­una til lands­ins. 

„Þetta gætu orðið hund­ruð, þetta gætu orðið þús­undir manna sem þurfa að dvelja hjá okkur“

Gylfi býst við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár