Víðir varar við: Fólk reynir að komast á gossvæðið og gæti fest sig

Fólk hefur streymt að afleggjar­anum að Keili, sem liggur í átt að mögu­legu gossvæði. Kvika er að brjóta sér leið upp á yfir­borðið.

Víðir varar við: Fólk reynir að komast á gossvæðið og gæti fest sig

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum, segir að margir reyni nú að kom­ast að mögu­legu gossvæði við Keili, um afleggjar­ann frá Reykja­nes­braut. Veginum að Keili hefur nú verið lokað.

Víðir sendi skila­boð til fólks á fundi almanna­varna seinni part­inn í dag.

„Okkur langar til að beina því til fólks sem er að reyna að fara á stað­inn: Það er mikil umferð um Reykja­nes­braut­ina og mikið af fólki að reyna að fara inn á afleggjar­ann að Keili. Við erum með dálítið af vís­inda­fólki og öðrum að vinna á svæð­inu og þurfum að fá vinnu­frið fyrir það. Að auki er ekk­ert að sjá, það er ekki byrjað gos. Og síðan hafa það í huga að aðstæður eru þannig að það er mjög blautt og það verður mjög fljótt sem fólk getur lent í vand­ræðum ef það fer út fyrir veg­inn eða annað slíkt. Biðjum bara alla að slaka á, bíða. Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár