Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið

Skjálftar um og yfir 5 á Richter hafa riðið yfir Reykja­nesið. Stað­setn­ingin er í kringum Fagra­dals­fjall. Sá fyrsti mæld­ist 5,7 að stærð, 3,3 kíló­metrum suðsuð­vestur af Keili. Skjálft­arnir teygja sig í átt að höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum Veð­ur­stof­unnar.

Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið
Fyrsti skjálft­inn Veð­ur­stofan stað­festir að fyrsti skjálft­inn var 5,7 á Richterskvarða.

Öflugir jarð­skjálftar finn­ast nú á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Reykja­nes­inu. 43 skjálftar yfir 3 að stærð hafa fund­ist síðan í morgun og enn heldur hrinan áfram.

Fyrsti skjálft­inn er stað­festur 5,7 að stærð, stað­settur 3,3 kíló­metra suðsuð­vestur af Keili. Óttast er að enn stærri skjálfti sé ókom­inn.

Skjálfta­hrinan teygir sig til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þannig er einn þeirra, 3,6 að stærð á slag­inu hálf­ell­efu, sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum stað­settur 4,6 kíló­metra aust-suð­austur af Straums­vík.

Vefur Veð­ur­stof­unnar liggur niðri með hléum. Samkvæmt vef Veð­ur­stof­unnar dreifast stórir skjálftar yfir Reykja­nesið. Stað­setn­ing þeirra er í kringum Keili og Fagra­dals­fjall, þar sem órói hefur verið und­an­farin miss­eri.

Fregnir eru af því að myndir hafi dottið niður í Vest­ur­bænum. Í Hlíðunum þótti íbúa sem bíll hefði keyrt á húsið. Skjálft­arnir fund­ust vel á Sel­tjarn­ar­nesi og í Hvera­gerði. Mest finna þó íbúar í Grinda­vík og nágrenni fyrir skjálft­unum.

Enn annar jarð­skjálfti reið yfir klukkan 10.16. Samkvæmt frum­nið­ur­stöðum Veð­ur­stof­unnar voru þeir tveir með mín­útu milli­bili, 3,5 á Richter.

Fyrstu tveir sjálft­arnir eru metnir 4,5 og 4,7 að stærð klukkan 10.05 með fimmtán sek­úndna milli­bili. 

Klukkan 10.20 mæld­ist skjálfti upp á 4,9, sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum Veð­ur­stof­unnar. Annar kom mín­útu síðar, 4,3 og enn annar 10.23, 4,6 að stærð.  Enn halda skjálft­arnir áfram og eru þeir sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum stað­settir í kringum Fagra­dals­fjall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár