Landsréttarmálið hefur kostað 141 milljón og enn bætist við

Ólögleg skipan dóm­ara í lands­rétt reyn­ist kosrn­að­ar­söm. Kostn­aður vegna settra dóm­ara við Lands­rétt vegur þyngst eða 73 millj­ónir króna. Kostn­aður vegna mála­rekst­urs og dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu nam 45,5 millj­ónum króna

Landsréttarmálið hefur kostað 141 milljón og enn bætist við
Kostn­að­ar­söm dóm­ara­skipan Skipan Sigríðar Andersen á dóm­urum við Lands­rétt hefur reynst kostn­að­ar­söm. Mynd: RÚV

Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt nemur 141 milljón króna. Vegur þar þyngst kostn­aður vegna settra dóm­ara í fjar­veru fjög­urra dóm­ara í leyfi frá Lands­rétti en kostn­aður vegna þess nam í árs­lok 2020 rúmum 73 millj­ónum króna. Sér­fræði­ráð­gjöf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í aðdrag­anda og kjöl­far nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu og yfir­deildar dóms­ins nema 36 millj­ónum króna.

Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Sem kunn­ugt er lagði Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, fram til­lögur um skipan fimmtán dóm­ara við rétt­inn árið 2017 en vék frá nið­ur­stöðu nefndar um hæfi dóm­ar­ar­efn­anna. Alþingi sam­þykkti til­lögu Sigríðar 1. júní 2017 með atkvæðum þáver­andi meiri­hluta flokka, Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Tveir umsækj­end­anna fjög­urra sem verið höfðu í fimmtán manna hópnum sem nefndin hafði talið hæf­asta en Sigríður hafði skipt út stefndu síðan íslenska rík­inu, þeir Ástráður Har­alds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son. Ríkið var sýknað af kröfu þeirra um skaða­bóta­skyldu í Hæsta­rétti en þeim voru hins vegar dæmdar bætur vegna ólög­mætrar máls­með­ferðar. Hinir umsækj­end­urnir tveir, Jón Hösk­ulds­son og Eiríkur Jónsson stefndu rík­inu einnig og var íslenska ríkið dæmt skaða­bóta­skylt í málum þeirra.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður fór fram á það að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, ein dóm­ar­anna fjög­urra sem Sigríður hafði bætt inn á fimmtán manna list­ann, viki sæti í dóms­máli á hendur skjól­stæð­ingi hans, Guð­mundar Andra Ást­ráðs­sonar, vegna van­hæfis. Þegar ekki var fall­ist á það skaut Vil­hjálmur mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem kvað upp þann úrskurð í mars árið 2019 að skipun dóm­ara í Lands­rétt væri and­stæð mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Yfir­deild dóms­ins stað­festi þá nið­ur­stöðu í des­em­ber síð­ast­liðnum. Eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sinntu dóm­ar­ar­inir fjórir sem Sigríður bætti inn á list­ann yfir dóm­ara­efnin að sinna ekki dóm­störfum og fóru í leyfi, á launum.

Enn gæti bæst við kostnaður

Í svörum dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu kemur fram að dæmdur máls­kostn­aður vegna kæru­mála sem tap­ast hafa fyrir íslenskum dóm­stólum, það er í málum Ástráðar, Jóhann­esar Rúnars, Jóns og Eiríks nemi 10,6 millj­ónum króna. Þá er dæmdur máls­kostn­aður vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins 20 þús­und evrur sem eru um 3,1 milljón króna á gengi dags­ins í dag.

Þá voru dæmdar miska- og skaða­bætur til umsækj­enda um dóm­ara­störfin sam­tals rétt tæpar 11 millj­ónir króna. Hæsta upp­hæðin eru skaða­bætur til handa Jóni Hösk­ulds­syni, 8,5 milj­ónir og miska­bætur honum til handa upp á eina milljón og eru þá ótaldir vextir og drátt­ar­vextir. Þá við­ur­kenndi Hæsti­réttur skaða­bóta­skyldu í máli Eiríks Jóns­sonar en enn á eftir að ákvarða hverjar þær kunna að verða. Þá var jafn­framt gerð sátt við Eirík um greiðslu miska­bóta upp á 700 þús­und krónur.

Sem fyrr segir vega greiðslur vegna settra dóm­ara við Lands­rétt þyngst, sem og sér­fræði­ráð­gjöf vegna mála­rekst­urs­ins fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Ofan á það bæt­ist við þýð­inga­kostn­aður, bæði vegna málareskt­urs­ins og vegna dóms­ins, alls 6,4 millj­ónir króna. Þá segir í svari dóms­mála­ráð­herra að ótal­inn sé kostn­aður vegna dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara, kostn­aður vegna aug­lýs­inga og annar til­fallandi kostn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár