Stjórnarþingmenn andvígir ákvæðum stjórnarskrárfrumvarps

Þingmenn úr röðum Sjálfstæðis­flokks og einnig Framsóknar­flokks hafa gagnrýnt ýmis ákvæði stjórnar­skrár­frumvarps Katrínar Jakobs­dóttur sem gengið er til nefndar.

Gagnrýna ákvæði frumvarpsins
Gagnrýna ákvæði frum­varps­ins Stjórn­ar­þing­menn utan VG sem ræddu frum­varpið gagn­rýndu allir ein­stök ákvæði þess.

Tæpt verður að ná meirihluta um ýmis ákvæði stjórnar­skrár­frumvarps Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra nema stuðningur stjórnar­andstöðunnar komi til. Stjórnar­þingmenn, flestir úr röðum Sjálfstæðis­flokksins, hafa meðal annars gagnrýnt ákvæði frum­varpsins um forseta Íslands, náttúru­vernd og auðlindir í umræðum um málið á Alþingi.

Katrín lagði frum­varpið fram sem þingmanna­frumvarp, en ekki stjórnar­frumvarp, sem þingmenn úr röðum Sjálfstæðis­flokks, samstarfs­flokks hennar í ríkis­stjórn, bentu ítrekað á í umræðunum. Áttu formenn allra stjórn­málaflokka á Alþingi fjölda funda á kjör­tímabilinu, en ekki náðist samstaða um að þeir stæðu saman að stjórnar­skrár­frumvarpi til að leggja fram fyrir þing­kosningar í ár.

Hefur frum­varpið hlotið nokkra gagnrýni frá þing­mönnum stjórnar­andstöðu­flokkanna, meðal annars á þeim grund­velli að ekki sé litið nægilega til tillagna stjórnlaga­ráðs sem kosið var um í þjóðar­atkvæða­greiðslu 2012. Hafa þingmenn úr röðum Samfylkingar og Pírata lýst sig tilbúna til að styðja ákveðin ákvæði frum­varpsins, meðal annars ákvæði um náttúru og umhverfi, en leggjast gegn auðlinda­ákvæðinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár