Segir frambjóðendur nýstofnaðs stjórnmálaafls óttast fjölmiðla

Tilkynnt var um fram­boð Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins til Alþing­is­kosn­inga í gær. Formaður flokks­ins, Guð­mundur Franklín Jónsson, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, segir flokk­inn ætla að birta lista og stefnu­skrá sein­astur allra flokka af ótta við fjöl­miðla og að aðrir stjórn­mála­flokkar steli af flokknum hug­myndum.

Segir frambjóðendur nýstofnaðs stjórnmálaafls óttast fjölmiðla

Frjáls­lyndi Lýð­ræð­is­flokk­ur­inn undir stjórn Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar, fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda, seg­ist ekki ætla að birta þá sem koma til greina á lista flokks­ins fyrr en allir flokkar hafa birt lista, af ótta við fjöl­miðla. Flokk­ur­inn hefur fengið úthlutað lista­bók­stafnum O og verður því auð­kenndur sem X-O.

„Það kemur ekki til greina að birta list­ann núna. Það er fullt af fólki á honum og það er svo hrætt við fjöl­miðla og fjöl­miðlar rífa fólk niður og fara að rann­saka hvað það hefur gert,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Stundina en flokk­ur­inn til­kynnti um fram­boð sitt í gær. 

Sama segir Guð­mundur eiga við stefnu­skrá flokks­ins en með því að fresta því að birta hana segir hann flokk­inn vera koma í veg fyrir að aðrir steli hug­myndum þeirra. „Við ætlum að vera síð­astir á vett­vang og við ætlum að vera síð­astir til að birta stefnu­skrána. Við ætlum ekki að láta stela af okkur hug­myndum, sem hefur komið fyrir mig áður af Hægri grænum,“ segir Guð­mundur.

Öfgafull orðræða

Nýlega birti Stundin grein um öfga­fulla orð­ræðu í kjöl­far skotárásar á bif­reið Dag B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra. Á umræðu­vett­vangi Frjáls­lynda Lýð­ræð­is­flokks­ins birt­ust færslur og ummæli sem rétt­lættu skotárás­ina. „Við erum búin að fá nóg af þessu spillta pakki. Farið að vinna vinn­una ykkar. Þá væri ekki skotið á ykkur. Hvað, halda þau að við fáum ekki ógeð á þessu elítu­pakki. Gott mál að hrista aðeins í ykkur,“ segir í einum ummælum sem finna má á umræðu­vett­vangnum.

Þá birti Guð­mundur sjálfur færslu þar sem ábyrgðin á skotárásinni er færð yfir á stjórn­mála­menn. „Það er þyngra en tárum taki að vita til þess að ein­hver sé orðin svo alvar­lega staddur að við­kom­andi sér ekki annað í stöð­unni en að beita „hnef­anum“ og í þessu til­felli skot­vopni. En það er ennþá sár­ara að horfa upp á mik­ils­metið fólk skella skuld­inni á harð­ari orð­ræðu. Við skulum alger­lega hafa sök­ina þar sem hún liggur, en ástæðan fyrir vax­andi harð­ari umræðu og vax­andi ofbeldi, eru ára­tuga svik póli­tíkusa, slóð brost­inna vona þar sem öll lof­orð um bættan hag þeirra verst settu eru ALLTAF svikin og spill­ing í íslensku stjórn­kerfi,“ segir þar.

Getur ekki borið ábyrgð á ummælum

Guð­mundur seg­ist ekki geta borið ábyrgð á ummælum sem birt­ast á síð­unni, þrátt fyrir að vera stjórn­andi síð­unnar. Varðandi það að hafa deilt færslu sem færir ábyrgð­ina yfir á stjórn­mála­menn segir Guð­mundur að hann deili öllu sem hann fær sent. „Ég deili öllu sem á mig er sent. Þetta eru opin skoð­ana­skipti, það geta allir bara haft allar sínar skoð­anir. Ég þarf ekki að vera sam­mála þeim eða ekki en menn verða að passa sig hvað þeir segja,“ segir hann og kveðst vera ósam­mála færsl­unni sem hann deildi. 

„Við ætlum ekki að láta stela af okkur hug­myndum, sem hefur komið fyrir mig áður af Hægri  grænum“

Aðspurður hvers vegna hann deili færslum sem hann er ósam­mála á umræðu­vett­vangi flokks undir hans forrystu segir hann mál­frelsi vera í land­inu svo lengi sem það „meiði ekki aðra“. Sömu­leiðis segir hann mjög strangar reglur vera á síð­unni. „Það eru mjög harðar reglur á síð­unni að það má ekki blóta og það má ekki vera með hat­urs­orð­ræðu og ef það eru erlendar fréttir þá verða þær að vera þýddar og ef eittt­hvað brýtur þetta er það tekið út strax. Ég hef þurft að taka út hell­ing af dóti sem aðrir eru að setja þarna inn,“ segir hann. Guð­mundur blótar hins vegar oft í pistlum sínum og brýtur þar með reglur síð­unnar. 

Þá seg­ist hann enfremur hræði­legt að skotárásin hafi átt sér stað en svona sé þetta. „Það eru allir að verða brjál­aðir,“ segir hann.

Lokuð síða vegna ótta um skemmdarverk

Í einum af mörgum pistlum sem Guð­mundur deildi inn á vett­vang­inn, dag­settum þann 31. jan­úar 2020, sagði hann að hver sem er geti sent hvað sem er inn og stjórn­endur síð­unnar ákveði hvort það verði birt eða ekki. „Við birtum til dæmis ekki klám,“ sagði hann í pistl­inum. 

„Það eru allir að verða brjál­aðir“

Vett­vang­ur­inn er lok­aður og ekki er hægt að deila því sem fer þar fram. Ástæðuna segir Guð­mundur vera skemmd­ar­verk. „Við getum ekki haft síð­una opna út af skemmd­ar­verkum. Þeir sem eru með opnar síður geta lent í því að ein­hver maður sem þolir ekki þetta sem þú ert að gera, setur inn ein­hverja ógeðs­lega færslu um eitt­hvað og tengir alla sem eru á síð­unni inn í það og tekur síðan mynd af því. Og (maður) getur síðan fattað það og ákveðið að henda því út en hann myndi síðan koma með það: Sjáið þið hvað er inn á síð­unni hérna hjá þeim. Sjáið hvað þau eru ógeðs­leg, sjáið hvað þau eru að tala um. Svona vinnur fólk. Þeir sem eru aða­l­ega í þessu eru stjórn­mála­menn­irnir. Þeir eru með marga statusa og ganga undir mörgum nöfnum, eru að njósna um sig, eru að skrifa fal­legar greinar um sig, koma með fal­leg komment um sig og þeir eru að tala illa um hvorn annan og flokk­ana sína,“ segir Guð­mundur Franklín. Hann er einnig ósáttur við Rík­is­út­varpið. 

„Og síðan er það Rík­is­út­varpið sem stendur í ströngu í að nið­ur­níða þjóð­ar­leið­toga út í heimi og fólk. Þeir ráð­ast á fyr­ir­tæki ein­stak­linga og þjóð­ar­leið­toga. Þannig að mér finnst skrýtið í allri þess­ari umræðu, hat­ursum­ræðu og öllu þessu bulli, af hverju er ekki horft á Rúv?“ sagði í einum pistlum hans. 

Guð­mundur Franklín vakti athygli síð­asta sumar þegar hann var eini mót­fram­bjóð­andi Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta. Hann kvaðst vilja vinna gegn spill­ingu ótil­greindrar elítu og auka vald­heim­ildir for­seta. Guð­mundur Franklín hefur ítrekað lýst stuðn­ingi við Donald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, og segir hann vera „alvöru leið­toga“.

Guð­mundur hlaut 7,8% atkvæða í for­seta­kosn­ingum á síð­asta ári, en Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti hlaut 92,2% atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár