Ofbeldisumræða heldur áfram eftir skotárásina

Skotárás á bif­reið Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra við heim­ili hans er höfð í flimt­ingum á umræðu­vett­vöngum stjórn­mála­flokka á sam­fé­lags­miðlum. Þar er hvatt til frek­ari skotárása á stjórn­mála­menn.

Dæmi eru um að með­limir í Facebookhópum Frels­is­flokks­ins, Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar og Frjáls­lynda Lýð­ræð­is­flokks­ins, undir stjórn Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar for­seta­fram­bjóð­anda, rétt­læti eða hvetji til skotárásar eins og þeirrar sem gerð var á bif­reið Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í síð­ustu viku.

Maður á sex­tugs­aldri er grun­aður um að hafa skotið á bif­reið Dags við heim­ili hans á Óðins­götu í síð­ustu viku. Honum var sleppt úr gæslu­varð­haldi seinni part­inn á föstu­dag.

Í aðdrag­anda skotárás­ar­innar hefur átt sér stað langvar­andi umræða um að Dagur hefði fengið einka­bíla­stæði frá borg­inni og að um hálfan millj­arð hafi kostað að gera upp torg nærri heim­ili hans. Ásak­an­irnar komu meðal ann­ars frá Vigdísi Hauks­dóttur, borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, sem las inn á mynd­band þess efnis. Í kjöl­far skotárás­ar­innar kom fram í yfir­lýs­ingu Reykja­vík­ur­borgar að hið rétt væri að kostn­aður við Óðins­torg hefði verið um 60 millj­ónir, en fram­kvæmdir víðar í hverf­inu hafi kostað hálfan millj­arð. Þá hafi Dagur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár