Ábendingar um harðræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000
Við upp­haf rekst­urs Varp­holts Hjónin Ingj­aldur og Áslaug voru for­stöðu­menn Varp­holts sem opn­aði árið 1997. Mynd: Tímarit.is / Dagur-Tíminn

Ábendingar um harðræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000

Kvartað var undan fram­göngu Ingjalds Arn­þórs­sonar sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands strax árið 2000 til Barna­vernd­ar­stofu. Umboðs­maður barna fékk fjölda ábend­inga um ofbeldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­unum árið 2001, bæði frá stúlkum sem þar dvöldu eða höfðu dvalið og frá for­eldrum. Svo virð­ist sem ásak­an­irnar sem voru settar fram hafi lítt eða ekki verið rann­sak­aðar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu. Ingj­aldur starf­aði sem for­stöðu­maður Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hafnar ásök­unum.

Með­ferð­ar­heim­ilið Varpholt, sem síðar var flutt að Lauga­landi, hóf starf­semi í Eyja­firði sum­arið 1997 undir stjórn for­stöðu­manns­ins Ingjalds Arn­þórs­sonar. Heimilið var rekið sem fjöl­skyldu­heim­ili og bjuggu Ingj­aldur og kona hans, Áslaug Brynjars­dóttir, á heim­il­inu með tveimur börnum sínum ásamt skjól­stæð­ingum, sem fyrst voru sex en fjölg­aði með tím­anum í átta. Utan­að­kom­andi starfs­menn unnu þar einnig, mis­margir eftir tíma­bilum. Einungis stúlkur voru vistaðar á heim­il­inu frá árinu 1998, með þeim rökum að með því næð­ist meiri ró fyrir stúlk­urnar „til að byggja upp og styrkja eigin sjálfs­mynd“, líkt og segir á vef Barna­vernd­ar­stofu.

Ingj­aldur og Áslaug kona hans höfðu bak­grunn í með­ferð vímu­efna­neyt­enda, Ingj­aldur hafði þannig starfað hjá SÁÁ og áfeng­is­skor Land­spít­al­ans. „Ég hef starfað sem áfeng­is­ráð­gjafi í 12 ár og hef alltaf haft trölla­trú á AA-mód­el­inu sem með­ferð fyrir fíkla á öllum aldri,“ sagði Ingj­aldur í við­tali við Dag-Tímann í júní 1997 þegar verið var að opna með­ferð­ar­heim­ilið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár