Aldraðir mótmæla opnun mötuneytis og óttast Covid-19 smit

Íbúar á öldr­una­heim­il­inu Selja­hlíð eru mjög ósáttir við fyr­ir­hug­aða opnun mötu­neytis þar fyrir fólk utan heim­il­is­ins. Þau telja að með því sé verið að setja þau í hættu. For­stöðu­kona segir að um nauð­syn­lega þjón­ustu sé að ræða fyrir skjól­stæð­inga Selja­hlíðar.

Aldraðir mótmæla opnun mötuneytis og óttast Covid-19 smit
Ósátt og telja sig sett í hættu Ingi­björg segir að íbúar í Selja­hlíð vilji að beðið sé með að opna mötu­neytið fyrir utan­að­kom­andi þar til allir íbúar hafi fengið bólu­setn­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íbúar í Selja­hlíð, þjón­ust­í­búða­kjarna og hjúkr­un­ar­heim­ili, eru mjög ósáttir við fyr­ir­hug­aða opnun á mötu­neyti heim­il­is­ins fyrir fólk sem ekki býr þar. Mötu­neyt­is­þjón­usta hefur verið lokuð fyrir utan­að­kom­andi síð­ustu mán­uði til að hamla hugs­an­legu Covid-19 smiti. Nú er fyr­ir­hugað að opna mötu­neyt­is­þjón­ust­una fyrir fólki sem ekki býr inn á heim­il­inu sjálfu. Á fjórða tug íbúða í þjón­ustu­í­búðum hafa und­ir­ritað mót­mæla­skjal vegna þessa.

Rekin er mötu­neyt­is­þjón­usta inni í Selja­hlíð þar sem íbúar fá sínar mál­tíðir en aðrir aldr­aðir, sem búa utan Selja­hlíðar, hafa einnig haft kost á að koma þangað og fá mat. Tekið var fyrir þá þjón­ustu nú fyrir ára­mót til að hamla gegn útbreiðslu kór­óna­veirunnar, og raunar hafði það einnig verið gert í tvígang áður í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins. Nú er fyr­ir­hugað að opna á þessa þjón­ustu aftur, næst­kom­andi mánu­dag.

Telja sig óvarin fyrir veirunni

Ingi­björg Finn­boga­dóttir býr í þjón­ustu­í­búð í Selja­hlíð og er mjög ósátt við fyr­ir­hug­aða opnun. „Það voru tutt­ugu manns bólu­settir hér, fólk sem býr í hjúkr­un­ar­rýmum hér í Selja­hlíð. Við sem búum í þjón­ustu­í­búð­unum fengum hins vegar ekki bólu­setn­ingu, tæp­lega fimm­tíu manns, þeir yngstu á sjö­tugs­aldri en þeir yngstu um eitt­hund­rað ára. Ég verð nú að segja að ég, og við, erum frekar ósátt við það, við teljum okkur búa hér á heim­ili fyrir aldr­aða. Ég frétti síðan af því að þegar búið væri að sprauta fólk með seinni spraut­unni ætti að opna mötu­neyt­is­þjón­ust­una á ný. Við það erum við afar ósátt því við teljum að með því séum við óvarin gegn veirunni.“

Ingi­björg segir að íbúar í þjón­ustu­í­búð­unum hafi að mestu verið í sjálf­skip­aðri ein­angrun mán­uðum saman. Þau panti sér vörur með net­verslun, fari sem minnst út og fái ekki gesti. Allir fari var­lega, passi upp á sig og starfs­fólkið geri hið sama.

„Við viljum þetta bara alls ekki, það styðja mig allir í þessu og ég fæ ekki annað séð en að starfs­fólkið sé á sama máli. Ég fór til for­stöðu­kon­unnar, Mar­grétar Ósvalds­dóttur, og lýsti því að við íbú­arnir óskuðum eftir að það yrði ekki af þessu. Hún gerði nú lítið með það, svörin voru sú að Reykja­vík­ur­borg væri að opna þessa þjón­ustu.“

„Við viljum bara að það verði beðið eftir því að við höfum fengið bólu­setn­ingu svo við séum ekki sett í hættu“
Ingi­björg Finn­boga­dóttir

Ingi­björg hóf því und­ir­skrifta­söfnun til að mót­mæla opn­un­inni og óska eftir að óbreyttar reglur yrðu í gildi þar til búið væri að bólu­setja íbúa í þjón­ustu­í­búð­unum. Á einni kvöld­stund fékk Ingi­björg á fjórða tug und­ir­skrifta sem hún afhenti Margréti. „Þá fengum við þau svör að ákveðið hefði verið að opna ekki mötu­neyt­is­þjón­ust­una nema fyrir það fólk sem býr á Þúfunni.“ Þúfan eru par­hús á lóð­unum Hjalla­seli 17-53 sem eru hluti af þjón­ustu­kjarn­anum í Selja­hlíð en eru ekki innan aðal­hús­næð­is­ins þar sem er að Hjalla­seli 55.

Ingi­björg segir að íbúar inni í Selja­hlíð séu ósáttir við þetta. „Fólkið sem býr á Þúfunni er ekki búið að binda sig heima við eins og við, það er frjálst að því að fá gesti og fara hvert sem það vill. Þetta fólk valdi að búa í ein­býli. Við viljum bara að það verði beðið eftir því að við höfum fengið bólu­setn­ingu svo við séum ekki sett í hættu.“

Segir meiri hættu vegna starfsfólks

Margrét Ósvalds­dóttir for­stöðu­kona Selja­hlíðar segir að fólkið sem búi í svo­kall­aðri Þúfu fái heima­þjón­ustu frá starfs­fólki Selja­hlíðar. „Það er sama starfs­fólk sem er að sinna íbúum þar og inni í aðal­bygg­ing­unni svo það er sama hætta á smiti.“ Engu að síður hefur fólkið sem býr á Þúfunni ekki fengið að koma í mat inni í aðal­bygg­ingu Selja­hlíðar frá því að þriðja bylgja Covid-19 hófst í sept­em­ber, síðan þá hefur mötu­neytið verið lokað fólki sem býr utan aðal­bygg­ing­ar­innar. Fólkið fékk þá heimsendan mat og ekk­ert kemur í veg fyrir að hægt sé að halda því áfram. Um er að ræða fjóra ein­stak­linga. „Það stendur til að ég opni fyrir þessi fjögur á mánu­dag­inn kemur,“ segir Margrét.

„Þetta fólk hefur látið veru­lega á sjá með því að missa þessa rútínu sína, færni þeirra er að daprast“
Margrét Ósvalds­dóttir

Spurð hvort hún hafi skiln­ing á áhyggjum íbú­anna sem ekki vilja á mötu­neytið verði opnað játar Margrét því. „Jú, ég skil vel þessar áhyggjur en eins og ég segi þá er starfs­fólkið mitt að þjón­usta þetta fólk og sama starfs­fólk er að þjón­usta þá sem eru að kvarta. Það sem verið er að hugsa um er að þetta fólk hefur látið veru­lega á sjá með því að missa þessa rútínu sína, færni þeirra er að daprast. Það er verið að skerða þeirra lífs­gæði. Ég tel að íbú­unum hérna stafi meiri hætta af okkur starfs­fólk­inu sem hér vinnur og þurfum að sinna því sem þarf að gera úti í sam­fé­lag­inu, og einnig af íbú­unum sjálfum sem fara út í sam­fé­lagið.“

Spurð hvort að vilji þeirra sem búa í þjón­ustu­í­búð­unum inni í aðal­bygg­ingu Selja­hlíðar hafi ekk­ert vægi í ákvarð­ana­tök­unni segir Margrét að það hafi hann vissu­lega. Hún telji sig þó hafa mótrök, þau sem hún hefur rakið. Verið sé að fara þessa sömu leið í öðrum dvalar-og þjón­ustu­heim­ilum borg­ar­innar.

Sem fyrr segir er fyr­ir­hugað að opna mötu­neytið næst­kom­andi mánu­dag. Íbúarnir tutt­ugu á hjúkr­un­ar­heim­il­is­hluta Selja­hlíðar fengu seinni bólefna­spraut­una í gær. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum tekur það bólu­efnið um eina viku að ná fullri virkni eftir síð­ari bólu­setn­ingu. Á mánu­dag verða hins vegar aðeins liðnir fjórir dagar. Spurð hvers vegna fyr­ir­hugað sé að opna þá en að bíða ekki í það minnsta viku svarar Margrét því ekki heldur ítrekar að það sé fyr­ir­hugað að opna þá en ekki ákveðið. Ekki er búið að ræða við umrædda fjóra íbúa um það hvort vilji þeirra standi til þess að nýta þjón­ust­una í mötu­neyt­inu. Ákvörðun um það verður end­an­lega tekin á stjórn­ar­fundi næst­kom­andi mánu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár