Útgerð henti tonni af frauðplasti á kostnað skattgreiðenda

Skinney-Þinganes á Höfn í Horna­firði los­aði sig vði 30 bretti af frauð­plasti, en kostn­að­ur­inn við end­ur­vinnslu þess lendir á útsvars­greið­endum. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er með sér­samn­ing við ríkið og er und­an­þeg­inn því að greiða end­ur­vivnnslu­gjald fyrir á annað þús­und tonna af úrgangi á ári.

Útgerð henti tonni af frauðplasti á kostnað skattgreiðenda
Myndir af vett­vangi Yfir 1000 kíló af frauð­plasti á gáma­svæði Horna­fjarðar

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Skinney-Þinganes henti nýlega yfir einu tonni af frauð­plasti á gáma­svæði Sveit­ar­fé­lags Horna­fjarðar. Plastið ber ekk­ert úrvinnslu­gjald, en það gjald á að sjá um að koma plast­inu í réttan far­veg. Mikill kostn­aður er við að flytja frauð­plastið og koma því í end­ur­vinnslu eða end­ur­nýt­ingu. Um er að ræða yfir 30 bretti sem Skinney-Þinganes los­aði sig við. Sá kostn­aður mun lenda á íbúum sveit­ar­fé­lags­ins. Aðal­steinn Ing­ólfs­son, for­stjóri hjá Skinney-Þinga­nesi, kann­að­ist ekki við málið þegar Stundin hafði sam­band við hann.

Fyrir rúmum tveimur mán­uðum komu starfs­menn Skinn­eyjar-Þinga­ness á gáma­svæði Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar með meira en tonn af frauð­plasti. Um er að ræða gíf­ur­lega rúm­máls­frekan úrgang, þar sem frauð­plast er mjög létt. Var frauð­plastið á yfir 30 flutn­inga­brettum. Greiða þarf sér­stak­lega fyrir úrgang þegar farið er á gáma­svæði sveit­ar­fé­lags­ins, en Skinney-Þinganes greiddi urð­un­ar­gjald fyrir plastið en ekki að koma því í end­ur­vinnslu. Íbúar Horna­fjarðar end­ur­vinna nán­ast allan sinn úrgang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár