Tvöfalt fleiri íbúar á höfuðborgarsvæðinu en gerist á hinum Norðurlöndunum

Íbúum sem búa á lands­byggð­inni fækk­aði um 12 pró­sent á tuttt­ugu ára tíma­bili á meðan að lands­mönnum fjölg­aði um 34 pró­sent. Nálægð við sterka byggða­kjarna hamlar fækkun.

Tvöfalt fleiri íbúar á höfuðborgarsvæðinu en gerist á hinum Norðurlöndunum
Sterkir byggða­kjarnar hamla fækkun Fækkun íbúa í Ísa­fjarð­arbæ er ekki jafn mikil og ann­ars staðar á Vest­fjörðum. Mynd: Shutterstock

Á ríf­lega tutt­ugu ára tíma­bili hefur íbúum á öllum svæðum á Íslandi, utan suð­vest­ur­svæð­inu, fækkað. Þrátt fyrir að lands­mönnum hafi fjölgað um tæp­lega 92 þús­und á ára­bil­inu 1998 til 2020, um tæp 34 pró­sent, hefur sú fjölgun dreifst ærið mis­jafn­lega. Mest hefur íbúum á Suð­ur­nesjum fjölgað, um 77,1 pró­sent en á Vest­fjörðum hefur íbúum fækkað um 16,7 pró­sent á sama tíma­bili.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri græn­bók um byggða­mál sem sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið hefur lagt fram til sam­ráðs. Í græn­bók­inni eru lögð fram lyk­il­við­fangs­efni til að takast á við nei­kvæða búsetu­þróun, sem fel­ast í jöfnun á aðgengi að grunn­þjón­ustu, upbygg­ingu fjöl­breytts atvinnu­lífs, inn­viða­upp­bygg­ingu, umhverf­is­málum og sjálf­bærni.

Tveir þriðju búa á höfuðborgarsvæðinu

Um 64 pró­sent allra lands­manna búa nú á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er það um tvö­falt hærra hlut­fall en gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þannig búa um 36 pró­sent Dana á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu, um 30 pró­sent Norð­manna í Osló og næsta nágrenni og um 26 pró­sent Finna í Helsinki og nágranna­byggðum. Í græn­bók­inni segir að þessi staða hafi, ásamt fámenni hér á landi, orðiðr til þess að „umræðan um byggða­mál hér á landi hefur haft til­hneig­ingu til að krist­all­ast í and­stæð­unum höf­uð­borg­ar­svæði – lands­byggð.“

„Umræðan um byggða­mál hér á landi hefur haft til­hneig­ingu til að krist­all­ast í and­stæð­unum höf­uð­borg­ar­svæði – lands­byggð“

Segja má að suð­vest­ur­svæðið mark­ist af Borg­ar­firði í vestri til Mýrdals í austri. Á því svæði hefur íbúum fjöldað um 45 pró­sent á tíma­bil­inu og búa nú um 80 pró­sent lands­manna þar. Alls staðar ann­ars staðar fækkar íbúum, í heild um 12 pró­sent, ef frá eru talin Akureyri og nágrenni og Fljóts­dals­hérað og Fjarð­ar­byggð þar sem íbúum hefur fjölgað um ann­ars vegar 22 pró­sent og hins vegar 16 pró­sent.

Mislangt að sækja matvöruna

Á vef Byggða­stofn­unar má sjá breyt­ingar á íbúa­fjölda ein­stakra sveit­ar­fé­laga á tíma­bil­inu. Ef rýnt er í þær tölur má sjá að fækkun í íbúa­fjölda er mis­mun­andi í sveit­ar­fé­lögum innan sömu lands­hluta er ærið mis­jöfn. Nálægð við sterka byggða­kjarna virð­ist þar ráð veru­legu um. Þannig fækk­aði íbúum í Ísa­fjarð­arbæ og í Bol­ung­ar­vík um 13,5 pró­sent á tíma­bil­inu, á meðan að íbúum í Stranda­byggð fækk­aði um 29 pró­sent rúm. Á Norð­ur­landi vestra fækk­aði íbúum í Húna­þingi vestra um 14,5 pró­sent á meðan að íbúum í Sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­firði fækk­aði um 6,4 pró­sent, svo dæmi séu tekin. Fleiri og fjöl­breytt­ari atvinnu­tæki­færi og meiri þjón­usta hafa þar vænt­an­lega mikið að segja. Að sama skapi hefur upp­bygg­ing sterkrar ferða­þjón­ustu að lík­indum einnig haft áhrif. Þannig fjölg­aði íbúum Skútu­stða­hrepps í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu á tíma­bil­inu um 9,2 pró­sent en í hreppnum hefur um ára­bil verið rekin öflug ferða­þjón­ustu í kringum Mývatn. Í næsta sveit­ar­fé­lagi, Þing­eyj­ar­sveit, fækk­aði íbúum hins vegar um 23,9 pró­sent á sama tíma­bili.

Meðal þess sem fram kemur í græn­bók­inni er að aðgengi að dag­vöru­verslun er mjög mis­jöfn milli svæða. Þannig búa því sem næst allir íbúar suð­vest­ur­horns­ins í innan við 30 kíló­metra fjar­lægð frá dag­vöru­verslun og lang­flestir íbúar á Norð­ur­landi eystr, Aust­ur­landi og Suð­ur­landi einnig. Í þeim lands­hlutum þar sem byggða­þróun hefur verið hvað nei­kvæð­ust, á Vest­fjörðum og Norð­ur­landi vestra, er hlut­fallið veru­lega lægra, og raunar einnig á Vest­ur­landi. Um tíundi hver íbúi á þessum svæðum býr lengra í burtu en 30 kíló­metra frá dag­vöru­verslun.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár