Sonur Þorsteins Más kemur fram sem talsmaður Samherja

Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, kemur fram sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins í grein þar sem rætt er um mark­aðs­setn­ingu á íslenskum fiski. Fyrr á árinu, í kjöl­far Namib­íu­máls Samherja, var sagt frá því að Þor­steinn Már hefði selt hluta­bréf sín í Samherja til barna sinna.

Sonur Þorsteins Más kemur  fram sem talsmaður Samherja
Átti að verða for­stjóri Eimskips Baldvin Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Samherja og sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, kemur fram sem tals­maður Samherja í nýrri grein í Við­skipta­blað­inu. Hann var nefndur sem næsti for­stjóri Eimskipa en ekki var sam­staða um hann meðal hlut­hafa. Mynd: Fréttablaðið

Baldvin Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, kemur fram í ára­móta­út­gáfu Við­skipta­blaðs­ins sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins jafn­vel þó þar séu starf­andi tveir for­stjórar. Baldvin er sonur ann­ars for­stjór­ans, Þor­steins Más Bald­vins­sonar, og skrifar hann grein um íslenskan sjáv­ar­út­veg undir fyr­ir­sögn­inni „Byggjum upp sterkt íslenskt vöru­merki“ sem birt er með mörgum öðrum eftir stjórn­endur í íslensku við­skipta­lífi.  Aðrir sem skrifa sam­bæri­legar greinar í Við­skipta­blaðið eru yfir­leitt æðstu stjórn­endur til­tek­inna fyr­ir­tækja og stofn­ana  eins og Lands­bank­ans, Seðla­banka Íslands,  Símans og Lands­virkj­unar. 

Alltaf Þor­steinn MárÞor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herjja, hefur verið sá sem komið hefur fram opin­ber­lega fyrir hönd félags­ins í gegnum árin. Sonur hans gerir það nú í grein í ára­móta­blaði Við­skipta­blaðs­ins.

Í gegnum tíð­ina hefur for­stjóri Samherja, það er að segja Þor­steinn Már Bald­vins­son, verið sá sem talað hefur máli fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta var svo allt þar til í nóv­erm­ber í fyrra, þegar greint var frá máli Samherja í Namibíu í Kveik, Stund­inni og af Wikileaks.

Þá steig Þor­steinn Már til hliðar tíma­bundið og Björgólfur Jóhanns­son var gerður að starf­andi for­stjóra.  Björgólfur var tals­maður  fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­farið og hefur hann haldið því áfram að stóru leyti síðan þrátt fyrir að Þor­steinn Már hafi snúið til baka sem for­stjóri við hlið Björg­ólfs í lok mars á þessu ári. 

Eins og kunn­ugt er þá er mál Samherja í Namibíu til rann­sóknar í að minnsta kosti þremur löndum, Íslandi, Namibíu og Noregi. Á Íslandi eru  sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja með rétt­ar­stöðu sak­born­inga í mál­inu, grun­aðir um aðkomu að mútu­greiðslum og pen­inga­þvætti. Sam­herj­a­málið í Namibíu hefur vakið tals­verða athygli alþjóð­lega og leiddi það meðal ann­ars til þess að norski DNB bank­inn ákvað að Samherji ætti ekki ekki lengur að vera við­skipta­vinur bank­ans. 

Samherji hefur gert lítið úr þess­ari aðgerð bank­ans. 

 „Upp­bygg­ing vöru­merkja skiptir máli enda halda við­skipta­vinir tryggð við vöru­merki ef þeir tengja þau við gæði.“

Baldvin ekki komið fram sem talsmaður

Baldvin Þor­steins­son hefur hins vegar ekki áður verið í því hlut­verki að koma fram opin­ber­lega sem tals­maður eða and­lit Samherja í fjöl­miðlum. Raunar hefur það ekki oft gerst í gegnum árin að ein­hver annar en Þor­steinn Már hafi verið í þessu hlut­verki, að und­an­skildum Björgólfi í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu. Samherji hefur auk þess aldrei verið með upp­lýs­inga­full­trúa, þrátt fyrir að vera eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi. Þor­steinn Már hefur alfarið séð um þetta upp­lýs­inga- og miðl­un­ar­hlut­verk. 

Baldvin hefur hins vegar verið nefndur opin­ber­lega sem hugs­an­legur arf­taki Þor­steins Más Bald­vins­sonar á for­stjóra­stóli Samherja og hefur hann verið settur í ábyrgð­ar­stöður á vegum félaga Samherja, eins og til dæmis for­stjóra­stól Jarð­bor­ana og í stól stjórn­ar­for­manns Eim­skipa­fé­lags Íslands. Út á við lítur út  eins og verið sé að búa hann undir fram­tíð­ar­hlut­verk í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu. Baldvin hefur starfað hjá Samherja í ýmsum hlut­verkum, með hléum, í meira en ára­tug og komið að rekstr­inum í Afríku meðal ann­ars. 

Athygli vakti þegar til stóð að hann yrði næsti for­stjóri Eim­skipa­fé­lags­ins, þar sem Samherji er stærsti hlut­haf­inn, en ekki náð­ist sam­staða um meðal allra hlut­hafa. Þá vakti það einnig athygli fyrir nokkrum árum þegar Þor­steinn Már íhug­aði að kaupa sig inn í MP Banka sál­uga en strand­aði fjár­fest­ingin á því að hann vildi fá mann frá Samherja í stjórn bank­ans, Baldvin Þor­steins­son. 

Fyrr á þessu ári var greint frá því að Þor­steinn Már og fyrr­ver­andi eig­in­kona han, Helga Steinunn Guð­munds­dóttir, hefðu selt börnum sínum, Baldvini og Kötlu, hluta­bréf sín í Samherja. Kristján Vil­helms­son, hinn stóri hlut­hafi Samherja, gerði hið sama gagn­vart sínum börnum sam­hliða. Þeir Kristján og Þor­steinn eru því ekki lengur stærstu eig­endur Samherja heldur börn þeirra, meðal ann­ars Baldvin. Á heima­síðu Samherja var talað um við­skiptin með hluta­bréfin sem kyn­slóða­skipti í eign­ar­haldi Samherja. 

Sonur Þor­steins Más sem tals­maður SamherjaBaldvin Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Samherja og sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hefur ekki oft áður komið fram sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins, líkt og í ára­móta­grein­inni í Við­skipta­blað­inu.

Mikilvægi „sterka vörumerkja“

Í grein sinni ræðir Baldvin um mik­il­vægi þess að íslenskt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki taki sig saman um að búa til sterk íslenskt vöru­merki í kringum íslenskan fisk til að hámarka arð­semi í útflutn­ingi. 

Hann ræðir um það hversu mikið vatn hafi runnið til sjávar frá því að faðir hans og frændur, Kristján og Þor­steinn Vil­helms­synir, hófu útgerð saman undir merkjum Samherja árið 1983: „Sjáv­ar­út­vegur hefur verið órjúf­an­legur hluti af mínu lífi frá blautu barns­beini. Faðir minn og frændur okkar keyptu Samherja hf. árið sem ég fædd­ist á tímum mik­illar ólgu og óvissu í atvinnu­grein­inni. Í dag eru breyttir tímar enda hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn verið ein helsta grunn­stoð efna­hags­lífs­ins um margra ára skeið og átt stærstu hlut­deild­ina í gjald­eyr­is­öflun þjóð­ar­bús­ins.“

Í grein­inni segir Baldvin svo enn fremur og meðal ann­ars, og vísar til aug­lýs­inga með Agli Ólafs­syni, tón­list­ar­manni og leik­ara, sem vakið hefur nokkra athygli: „Nú er í gangi aug­lýs­inga­her­ferðin „Fishmas“ eftir að íslensk útvegs­fyr­ir­tæki sam­ein­uð­ust undir slag­orð­inu „Seafood from Iceland“ í því skyni að auka útflutn­ings­verð­mæti íslenskra sjáv­ar­af­urða. Her­ferðin er afrakstur sam­starfs SFS og Íslands­stofu og það verður áhuga­vert að sjá hvort hún skilar árangri. Sam­eig­in­leg mark­aðs­setn­ing á upp­runa­landi sjáv­ar­af­urða og upp­bygg­ing vöru­merkja fyrir afurð­irnar sjálfar er hins vegar sitt hvor hlut­ur­inn. Upp­bygg­ing vöru­merkja skiptir máli enda halda við­skipta­vinir tryggð við vöru­merki ef þeir tengja þau við gæði.“

Þor­steinn Már skrif­aði síð­ustu greinÞor­steinn Már Bald­vins­son skrif­aði síð­ustu grein frá Samherja sem birt var í ára­móta­út­gáfu Við­skipta­blaðs­ins árið 2018. Síðan hefur Namib­íu­málið komið upp og eigna­skipti á Samherja.

Stundin sendi spurn­ingar til for­stjóra Samherja, Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Björg­ólfs Jóhanns­sonar, um ástæðu þess að Baldvin kemur fram fyrir hönd Samherja í við­kom­andi grein. Blaðið hafði ekki fengið svar þegar fréttin var birt.

Þor­steinn Már Bald­vins­son skrif­aði sjálfur síð­ustu sam­bæri­legu ára­móta­grein  frá Samherja sem birt var í við­hafnar­út­gáfu Við­skipta­blaðs­ins í lok árs 2018. Enda var það alltaf Þor­steinn Már sjálfur sem tal­aði máli og var and­lit Samherja fram að birt­ingu frétta um Namib­íu­málið í nóv­em­ber 2019. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár