Rússar náðu sinni mestu framrás í Úkraínu í heilt ár

Rúss­landsher hertók meira úkraínsku landi í nóvember en í nokkrum mánuði árið á undan. Rússland hefur hertekið mun meira land á þessu ári en því síðasta, eða 5.400 ferkílómetra. Á sama tíma hafa Banda­ríkin hætt hernaðar­stuðningi.

Árás nærri Kyiv
Árás nærri Kyiv Fólk gengur fram hjá skemmdum versl­unum fyrir framan íbúð­ar­hús sem stendur í ljósum logum eftir dróna­árás Rússa á borg­ina Vys­hhorod í Kyiv-hér­aði snemma í gær, í miðri inn­rás Rússa í Úkraínu. Dróna­árás Rússa varð einum að bana og særði 11 í útjaðri úkra­ínsku höf­uð­borg­ar­innar, að sögn fylk­is­stjór­ans í gær. Mynd: AFP

Rússneski herinn náði mestu framrás sinni í Úkraínu í heilt ár í nóvember­mánuði, samkvæmt greiningu AFP á gögnum frá bandarísku hugveitunni Institute for the Study of War (ISW).

Í nóvember­mánuði náði Rússland yfirráðum yfir 701 ferkílómetra svæði, sem eru næstmestu land­vinningar í innrás þeirra á einum mánuði, næst á eftir nóvember 2024, ef frá eru taldir fyrstu mánuðir innrásarinnar þegar víglínan var mjög hreyfanleg.

Ráða nú 19,3% Úkraínu

Í lok nóvember réð rússneski herinn yfir 19,3 prósentum af landsvæði Úkraínu, að fullu eða að hluta, samkvæmt greiningu á gögnum frá ISW, sem vinnur með Critical Threats Project.

Þetta nær yfir svæði sem bæði stjórn­völd í Kyiv og hernaðar­sérfræðingar segja að séu undir stjórn Rússlands, auk þeirra svæða sem her Rússa segist hafa yfirráð yfir.

Áður en Rússland réðst inn í febrúar 2022 voru um sjö prósent af landsvæði Úkraínu – Krímskagi og svæði í Donbas-héraði í austri – undir stjórn Rússa.

Fram­sóknin í nóvember á sér stað á sama tíma og diplómatísk viðleitni til að binda enda á átökin hefur aukist, en Banda­ríkin hafa átt í samninga­viðræðum við bæði löndin.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ítrekaði kröfur sínar í síðustu viku um að Úkraína léti af hendi landsvæði – þar á meðal land sem Moskva ræður ekki yfir – til að samkomulag gæti náðst. Annars myndu Rússar „berjast til síðasta Úkraínu­manns“.

Frá því Donald Trump tók við embætti forseta Banda­ríkjanna hafa þau því sem næst hætt öllum hernaðar­stuðningi við Úkraínu.

Frá ársbyrjun 2025 hefur Rússland náð yfirráðum yfir nærri 5.400 ferkílómetrum af landsvæði í Úkraínu, sem er tæpum 2.000 ferkílómetrum meira en á sama tímabili árið áður.

Í nóvember hægði þó áfram á framsókn Rússa í Donetsk-héraði – þunga­miðju bardaganna milli fylkinganna.

Pokrovsk komin að falli

Rússar náðu um 130 ferkílómetrum af Donetsk í síðasta mánuði, saman­borið við meira en tvöfalt það að meðaltali í öðrum mánuðum ársins, og ræður nú yfir meira en 81 prósent héraðsins.

Sveitir Pútíns berjast þar nú um að ná borginni Pokrovsk, hernaðar­lega mikil­vægri miðstöð sem myndi hafa veruleg áhrif á varnir og birgða­flutninga Úkraínu­manna ef hún félli.

Það var þó í Zaporizhzhia-héraði í suðri sem rússneskar hersveitir náðu mestri framsókn í nóvember, þar sem þær náðu 272 ferkílómetrum, jafn miklu og á fjórum mánuðum þar á undan samanlagt, en í Dnipropetrovsk-héraði náðu þær tæpum 200 ferkílómetrum.

Í september 2022 lýstu Rússar því yfir að þeir hefðu formlega innlimað Zaporizhzhia-, Donetsk-, Lúhansk- og Kherson-héruðin, þrátt fyrir að hafa ekki fulla hernaðar­lega stjórn á þeim öllum.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár