Rósa gengin í Samfylkinguna

Þing­mað­ur­inn Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem gekk úr Vinstri grænum fyrr á árinu, hefur gengið til liðs við Sam­fylk­ing­una.

Rósa gengin í Samfylkinguna
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Var andsnúin rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Mynd: Davíð Þór

„Í dag gekk ég til liðs við þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar en ég hef verið óháður þing­maður á Alþingi síð­ast­liðna 3 mán­uði,“ segir Rósa Björk Brynjóls­dóttir, þing­maður í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem þremur mán­uðum eftir brott­göngu úr Vinstri grænum er gengin til liðs við Sam­fylk­ing­una.

Í vik­unni stendur yfir könnun meðal félags­manna í Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík, sem upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins mun hafa til hlið­sjónar við ákvörðun um fram­still­ingu fram­boðs fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar næsta haust.

Rósa vísar til þess að áherslur hennar og Sam­fylk­ing­ar­innar nátengdar þegar kemur að frið­ar­málum og jöfn­uði.

„Póli­tískar áherslur mínar og Sam­fylk­ing­ar­innar eru nátengdar með mik­il­vægi á auk­inn jöfnuð í sam­fé­lag­inu þar sem allir geta notið sín á eigin for­sendum, burt­séð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálf­bærni og opið, fram­sækið og fjöl­breytt sam­fé­lag með áherslu á virka fjöl­þætta utan­rík­is­stefnu.“

Það voru þó lofts­lags­málin sem gerðu úts­lagið hjá Rósu.

„Að und­an­förnu hefur Sam­fylk­ingin að auki lagt mun meiri og skýr­ari þunga á loft­lags­málin, og umhverf­is­málin en áður og lagt fram góða áætlun um græna við­spyrnu út úr Covid-19 krepp­unni. Það gerir úts­lagið fyrir mig þegar kemur að því að taka þessa ákvörðun um að ganga í Sam­fylk­ing­una og þing­flokk hennar. Ég hlakka mjög mikið til að taka þátt í starfi Sam­fylk­ing­ar­innar og að leggja mitt á vog­ar­skál­arnar til að bæta íslenskt sam­fé­lag.“

Upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar hefur það hlut­verk að skila af sér full­búnum, „sig­ur­strang­legum“ fram­boðs­listum fyrir 20. febr­úar næst­kom­andi í kjör­dæm­unum Reykja­vík suður og Reykja­vík norður. Þar eru fyrir í fyrsta sæti þing­menn­irnir Ágúst Ólafur Ágústs­son, í Reykja­vík suður, og Helga Vala Helga­dóttir, í Reykja­vík norður.

Stjórn Full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík ákvað að nið­ur­stöður könn­unar meðal félags­manna yrði trún­að­ar­mál og að engin skuld­bingin væri um að fylgja nið­ur­stöð­unni í vali á fram­bjóð­endum. „Halda skal trúnað um nið­ur­stöður ein­stak­linga í könn­un­inni og nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eru ekki bind­andi fyrir upp­still­ing­ar­nefnd á neinn hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár