Atvinnuleysisbætur hækkaðar

Bætur verða hækk­aðar og hluta­bóta­leiðin fram­lengd, sem og lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja, sem hluti að aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar til að spyrna gegn efna­hags­legum afleið­ingum COVID-19 far­ald­urs­ins.

Atvinnuleysisbætur hækkaðar
Kynna efna­hags­legar aðgerðir Efna­hags­legar aðgerðir rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur inni­bera meðal ann­ars leng­ingu á tekju­tengdu tíma­bili atvinnu­leys­is­bóta og hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta. Mynd: RÚV

Hluta­bóta­leiðin verður fram­lengd út maí á næsta ári og grunnatvinnu­leys­is­bætur verða hækk­aðar í rúmar 307 þús­und krónur á mán­uði. Tekju­tengt tíma­bil atvinnu­leys­is­bóta verður einnig lengt. Atvinnu­leit­endur fá þá greidda des­em­ber upp­bót sem nemur tæpum 87 þús­und krónum. Lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja verða fram­lengdir, og ekki verður lengur sett á hámark­s­við­mið á fjölda starfs­manna.

Þetta er meðal þeirra aðgerða sem kynntir voru á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem kynntar voru fram­halds­að­gerðir til að spyrna gegn efna­hags­legum áhrifum kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins.

Álag á atvinnu­leys­isi­bætur verður sex pró­sent á hvert barn sem atvinnu­leit­andi hefur á fram­færi. Þannig munu for­eldrar með tvö börn á fram­færi fá 344 þús­und krónur í grunnatvinnu­leys­isi­bætur. 

Hækkanir á örorkugreiðslum

Skerð­ing­ar­mörk í barna­bóta­kerf­inu verða hækkuð, svo þau fylgi þróun lægstu launa. Þannig getur ein­stætt for­eldri með tvö börn og undir 580 þús­und krónur í tekjur fengið hækkun sem nemur 30 þús­und krónum á ári. 

Greidd verður ein­greiðsla, skatt­frjáls, til örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega, sem nemur 50 þús­und krónum, fyrir 18. des­em­ber næst­kom­andi. Þá verða gerðar breyt­ingar á örorku­líf­eyri á næsta ári sem eiga að skila þeim sem lægstar örorku­bætur hafa um átta þús­und krónum hærri greiðslum á mán­uði, ofan á þegar ákveðna hækkun upp á 3,6 pró­sent. Því hækka bætur tekju­lægsta hóps­ins um tæp­lega 20 þús­und krónur á mán­uði. 

Framlengja lokunarstyrki og kynna viðspyrnustyrki

Lok­un­ar­styrkir verða sem fyrr segir fram­lengdir og við­mið um hámarks­fjölda starfs­manna afnumið, sem muni gagn­ast stærri fyr­ir­tækjum. Þá verðar veittir svo­kall­aðir við­spyrnu­styrkir, sem fram­hald af tekju­falls­styrkj­unum sem veittir hafa verið. Er þeim ætlað að halda fyr­ir­tækjum í rekstri með lág­marks­starf­semi á meðan að áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins varar. Allir tekju­skatt­skyldir rekstr­ar­að­ilar, fyr­ir­tæki jafnt sem ein­yrkjar, eiga rétt á styrkj­unum, hafi þeir orðið fyrir að lág­marki 60 pró­senta tekju­falli.

Styrkir fyrir aðila sem hafa orðið fyrir tekju­falli á bil­inu 60-80 pró­sent geta orðið 400 þús­und krónur á mán­uði á hvert heilt stöðu­gildi, hæst tvær millj­ónir króna. Styrkir fyrir þá sem hafa orðið fyrir tekju­falli á bil­inu 80-100 pró­sent geta fengið 500 þús­und krónur á hvert heild stöðu­gildi, hæst tvær og hálf milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár