Vinnuslys á Norðurstíg – Einn fluttur á sjúkrahús

Smágrafa valt á hlið­ina við gatna­fram­kvæmdir. Sá sem slas­að­ist er ekki alvar­lega meiddur.

Vinnuslys á Norðurstíg – Einn fluttur á sjúkrahús
Einn slas­að­ist Einn slas­að­ist þegar smá­grafa valt á Norð­ur­stíg í mið­borg­inni í morgun. Mynd: Davíð Þór

Vinnu­slys varð í morgun á Norð­ur­stíg í mið­borg Reykja­víkur þegar að smá­grafa valt þar á hlið­ina. Einn var í gröf­unni og slas­að­ist sá á fæti. Var hann fluttur á bráða­mót­töku með sjúkra­bíl en að sögn lög­reglu á staðnum var líðan hans stöðug.

Lokað var fyrir umferð um Geirs­götu til aust­urs um tíma meðan sjúkra­flutn­inga­menn og lög­regla athöfn­uðu sig. Vinnu­eft­ir­litið hefur verið kallað til og mun fara yfir vett­vang slyss­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár