Lögreglan í Namibíu gefur ekki upp hvort til standi að yfirheyra stjórnendur Samherja

Rann­sóknin á Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu er á loka­stigi og er lengra komin en rann­sóknin á Íslandi. Yfir­maður namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unnar, Paulus Noa, segir að namibíska lög­reglan hafi fengið upp­lýs­ingar frá Íslandi og kann að vera að átt sé við yfir­heyrsl­urnar yfir starfs­mönnum Samherja.

Lögreglan í Namibíu gefur ekki upp hvort til standi að yfirheyra stjórnendur Samherja
Sam­skiptin við Ísland Paulus Noa, yfir­maður ACC í Nambiíu, segir að stofn­unin hafi fengið upp­lýs­ingar og gögn frá Íslandi. Líklega skýrist það fyrir lok árs hvort sjömenn­ing­arnir í Namibíu verða ákærðir eða ekki.

Paulus Noa, yfir­maður spill­ing­ar­lög­regl­unnar Anti-corruption Commission (ACC) í Namibíu, seg­ist ekki geta gefið upp hvort til standi að reyna að yfir­heyra eða taka vitna­skýrslur af núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­mönnum útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja í tengslum við rann­sókn yfir­valda þar í landi á Sam­herj­a­mál­inu. ACC leggur nú loka­hönd á að reyna að klára rann­sókn máls­ins fyrir miðjan des­em­ber.

Sjö Namib­íu­menn hafa setið í gæslu­varð­haldi vegna þess, grun­aðir um mútu­þægni og pen­inga­þvætti meðal ann­ars.

Dómari í höf­uð­borg­inni Windhoek hefur gefið ACC frest fram í miðjan des­em­ber til að klára rann­sókn máls­ins og gefið að skyn að sjömenn­ing­unum verði sleppt úr gæslu­varð­haldi að þeim tíma liðnum. „Því miður get ég ekki veitt þessar upp­lýs­ingar þar sem rann­sóknin er í fullum gangi. […] Ég get ekki deilt þessum upp­lýs­ingum með fjöl­miðlum, hvað við ætlum að gera, hverja við yfir­heyrum,“ segir Paulus Noa, aðspurður um starfs­menn Samherja. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár