24 þingmenn vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn í Vatnsmýri

Þingmenn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Fram­sókn­ar­flokki, Mið­flokki, Flokki fólks­ins og Vinstri grænum vilja að þjóðin kjósi um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Íbúa­kosn­ing fór fram í Reykja­vík og í aðal­skipu­lagi segir að hann muni víkja fyrir byggð í áföngum.

24 þingmenn vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn í Vatnsmýri
Reykja­vík­ur­flug­völlur Í aðal­skipu­lagi segir að flug­völl­ur­inn muni víkja fyrir byggð. Mynd: Shutterstock

Rúmlega þriðj­ungur þing­heims stendur að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar sem lögð hefur verið fram á Alþingi.

Tillagan hljóðar svo: „Alþingi ályktar að efnt skuli til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli vera áfram í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. Eft­ir­far­andi spurn­ing verði borin upp í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni: „Vilt þú að flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands-, kennslu- og sjúkra­flugs verði áfram í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík uns annar jafn­góður eða betri kostur er til­bú­inn til notk­unar? ▢ Já. ▢ Nei.““

Í íbúa­kosn­ingu í Reykja­vík árið 2001 studdi meiri­hluti kjós­enda að flug­völl­ur­inn verði fluttur annað úr Vatns­mýr­inni. Aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir nú ráð fyrir að flug­völl­ur­inn víki í áföngum fyrir bland­aðri byggð. Einni flug­braut hefur einnig verið lokað.

Sam­bæri­legar til­lögur hafa verið fluttar á Alþingi fimm sinnum áður, að því segir í til­lög­unni. „Flutn­ings­menn telja ljóst að mikil þörf sé á að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um þetta brýna sam­göngu- og örygg­is­mál þjóð­ar­innar,“ segir í til­lög­unni.

Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru 24 þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Fram­sókn­ar­flokki, Mið­flokki, Flokki fólks­ins og Vinstri grænum. Fjórir þeirra eru úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Flutn­ings­menn­irnir eru Njáll Trausti Frið­berts­son, Ásmundur Frið­riks­son, Brynjar Níelsson, Haraldur Bene­dikts­son, Jón Gunn­ars­son, Páll Magn­ús­son, Óli Björn Kárason, Vil­hjálmur Árnason, Halla Signý Krist­jáns­dóttir, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Willum Þór Þórsson, Þórunn Egils­dóttir, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þór­ar­ins­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Karl Gauti Hjalta­son, Ólafur Ísleifs­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Sigurður Páll Jónsson, Þor­steinn Sæmunds­son, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, Inga Sæland og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár