Jákvæðar fréttir gera lífið skemmtilegra

Á Facebook-síð­unni Jákvæðar fréttir má finna fréttir sem fjalla um það jákvæða sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu. Sara Rós Krist­ins­dóttir stendur að síð­unni.

Jákvæðar fréttir gera lífið skemmtilegra

Sara Rós Krist­ins­dóttir, félags­liði og NLP-mark­þjálfi, stofn­aði árið 2016 Facebook-síð­una Jákvæðar fréttir. „Mér hefur alltaf fund­ist vera ein­blínt á nei­kvæðar fréttir og það sem vekur athygli fólks eru oft nei­kvæðar fréttir. Það er auð­vitað þörf fyrir að tala um það sem er að ger­ast í heim­inum en mér fannst vanta meiri áherslu á jákvæðar fréttir. Mér fannst Facebook vera góður vett­vangur til að deila jákvæðum fréttum hinna ýmsu fjöl­miðla,“ segir Sara Rós. „Þetta er frekar ein­föld leið til að gera jákvæðar fréttir sýni­legar.“ Þess má geta að í ár bætt­ist Jón Rúnar Jónsson við sem umsjón­ar­maður síð­unnar þannig að þau eru nú tvö í þessu. Síðan er unnin í sjálf­boða­vinnu. Þá má geta þess að Sara og Fanney Þór­is­dóttir halda einnig úti Facebook- og Instagram-síð­unum Til­vilj­un­ar­kennd góð­mennska og Lífs­stefna þar sem er einnig jákvætt og upp­byggi­legt efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár