Siggi Hakkari „átti að leika lykilhlutverk“ í máli FBI gegn Assange

Rit­stjóri WikiLeaks segir upp­lýs­ingar um starf­semi Julians Assange á Íslandi byggja á lygum dæmds svika­hrapps.

Siggi Hakkari „átti að leika lykilhlutverk“ í máli FBI gegn Assange
Rit­stjóri Wikileaks og faðir Julians Assange Kristinn Hrafns­son og John Shipton, faðir Julians Assange, berj­ast gegn fram­sali Julians Assange til Banda­ríkj­anna, þar sem til stendur að refsa honum fyrir að afhjúpa rík­is­leynd­ar­mál Banda­ríkj­anna sem varðar hernað þeirra í Írak og Afganistan. Hluti upp­lýs­ing­anna birt­ust fyrst í umfjöll­unum íslenskra fjöl­miðla. Mynd: Tolga Akmen / AFP

Ísland kemur víða við sögu í máli sak­sókn­ara sem sækj­ast eftir því að fá Julian Assange fram­seldan til Banda­ríkj­anna frá Bret­landi. Rétt­ar­höldin standa nú yfir í Lundúnum. Í ákæru­skjölum er Ísland ekki nefnt á nafn heldur aðeins kallað „NATO ríki 1“ en mikið af nýjum upp­lýs­ingum um tengslin við Ísland komu fram í rétt­ar­salnum. 

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, segir þetta nýjasta útspil banda­rískra stjórn­valda gegn Julian Assange vera farsa sem byggi á vitn­is­burði manns sem sé dæmdur þjófur, lyg­ari, fals­ari og kyn­ferð­is­brota­maður sem þjá­ist af per­sónu­leika­röskun á jaðri sið­blindu. Maðurinn hafi villt á sér heim­ildir til að kom­ast undan með fé frá sam­tök­unum. 

„Það er með ólík­indum að banda­rísk stjórn­völd dragi fram Sigurð Inga Þórð­ar­son en sýnir ef til vill betur en annað á hvaða veg­ferð þetta ömur­lega mál er í höndum Trump stjórn­ar­innar,“ segir Kristinn í sam­tali við Stundina. Sigurður er betur þekktur sem „Siggi Hakkari“ í umfjöllun fjöl­miðla hér á landi. 

„Þessi svo­kall­aða við­bót sem hent er inn í málið í miðjum klíðum er hald­laust rugl og hefur óskap­lega litla ef nokkra ein­ustu til­vísun í þau 18 ákæru­at­riði sem hefur verið skellt á Julian Assange,“ segir Kristinn. 

„Þarna eru settar fram furðu­legar full­yrð­ingar eins og þær að Julian og Sigurður hafi reynt að afkóða skjal sem stolið hafi verið frá íslenskum banka. Vænt­an­lega er átt við dulkóðað skjal úr gamla Lands­bank­anum sál­uga sem margir reyndu sig að opna. Að full­yrða að þessu skjali hafi verið stolið er hvergi rök­stutt. Margt annað er þarna í graut sem erfitt er að fá botn í.“

 Að sögn Kristins braut Siggi hakk­ari gegn trausti ann­arra í Wikileaks. „Það liggur fyrir að Sigurður fór langt út fyrir þann ramma sem honum var mark­aður sem sjálf­boða­liði hjá Wikileaks árið 2010. Hann laug að fólki að hann væri í innsta hring sam­tak­anna, væri starfs­manna­stjóri, sæi um nýráðn­ingar, væri yfir­maður fjöl­miðla­tengsla svo eitt­hvað sé nefnt,” segir Kristinn. Sigurður er ekki nefndur á nafn í dóms­skjölum en aðeins kall­aður „tán­ing­ur­inn“. 

Mótmæli við dóms­húsiðFjöldi fólks hefur mót­mælt til­raunum til fram­sals á Julian Assange til Banda­ríkj­anna, þar sem hann horfir fram á ákærur með við­ur­lögum allt að 175 ára fang­els­is­vist, fyrir að dreifa upp­lýs­ingum, meðal ann­ars um dráp Banda­ríkja­hers á almennum borg­urum.

Stal frá Wikileaks sem sjálfboðaliði

Kristinn segir að þegar Sigurði var falið að vinna með öðrum sjálf­boða­liða frá Kanada, í að setja upp net­sölu með smávarn­ing merktum Wikileaks, hafi hann séð sér leik á borði. Í sama mán­uði og salan hófst (í febr­úar 2011) hafi Sigurður sent falsað skeyti í nafni Julian Assange til net­versl­unar sem sá um söl­una. Hafi hann þannig látið leggja allan afrakst­ur­inn inn á eigin einka­reikn­ing og stolið jafn­virði um 50 þús­und doll­ara áður en upp komst. 

„Þegar ég hóf að elt­ast við hann vegna þess­ara pen­inga um sum­arið 2011 brá Sigurður á það ráð að skjóta sér inn í banda­ríska sendi­ráðið og bjóða fram aðstoð sína í saka­r­ann­sókn FBI gegn Wikileaks,“ segir Kristinn. 

Við dóms­húsið í LondonStella Moris, t.v., maki Julians Assange, mann­rétt­inda­lög­mað­ur­inn Jennifer Robinson og Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, við kom­una í Old Bailey dóms­húsið í mið­borg London í vik­unni. Ekki tókst að fá mál­inu vísað frá.

„Það er búið að dæma þennan mann fyrir að stela frá okkur og um 20 aðilum öðrum, ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum. Verra er að hann náði að sví­virða fjölda tán­ings­drengja með kyn­ferð­is­brotum á sama tíma­bili. Þennan ófé­lega ein­stak­ling, sem ég á ekki í nokkrum vand­ræðum með að kalla skít­hæl, dregur ákæru­vald Trumps núna upp á dekk í mál­inu gegn Julian Assange,“ segir Kristinn for­viða.

„Þetta hefur ekk­ert með þessar ákærur að gera. Þær snú­ast allar um birt­ingu upp­lýs­inga frá Írak, Afganistan og Guant­anamo Bay ásamt sendi­ráðs­skjöl­unum. Það er vita­skuld ekki nefnt í ákærunni nýju að þegar full­trúar FBI og sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins flugu með einka­þotu til Íslands í ágúst 2011 greip Ögmundur Jónasson, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. í taumana og rak þá öfuga úr landi. Enda hefðu þeir komið til lands­ins á fölskum for­sendum og til­efnið var að leggja gildru fyrir Julian Assange. Auðvitað átti Sigurður Þórð­ar­son að leika þar lyk­il­hlut­verk, og það er greini­legt að honum er enn ætlað að leika stórt hlut­verk í þessum farsa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár