Brynjari hótað fjárnámi vegna félags sem hann hefur reynt að slíta í 17 ár

Brynjar Sindri Sig­urðs­son hefur án árang­urs reynt að slíta sam­eign­ar­fé­lagi sem hefur ekki starfað frá árinu 2003. Nú er honum gert að greiða 340 þús­und krónur í dag­sektir vegna þess að ekki hefur verið komið á fram­færi upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur félags­ins, félags sem honum var lofað að væri búið að koma fyrir katt­ar­nef, síð­ast fyrir tveimur árum.

Brynjari hótað fjárnámi vegna félags sem hann hefur reynt að slíta í 17 ár
Glímir við upp­vakn­ing Brynjar hefur án árang­urs reynt að kveða niður draug sam­eign­ar­fé­lags sem hætti starf­semi árið 2003. Mynd: Úr einkasafni

Brynjar Sindri Sig­urðs­son, bóndi í Miðhúsum í Blöndu­hlíð í Skaga­firði, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið í gær­kvöldi þegar að stefnu­vottur sýslu­manns­ins á Norð­ur­landi vestra renndi í hlað hjá honum og afhenti Brynjari greiðslu­á­skorun vegna ógreiddra dag­sekta til rík­is­sjóðs. Dag­sekt­irnar voru til­komnar vegna þess að ekki hefði verið skilað upp­lýs­ingum um raun­veru­legan eig­anda sam­eign­ar­fé­lags.

Eftir að stefnu­vottur var horf­inn á braut stóð Brynjar eftir á hlað­inu, með kröfu um að greiða 340 þús­und krónur, og klór­aði sér í koll­inum yfir því að hann ætti að bera ábyrgð á að koma slíkum upp­lýs­ingum á fram­færi um félag sem hann hefði fyrst gert til­raun til að slíta árið 2003, hefði ítrekað gert eftir það, síð­ast fyrir tveimur árum og aldrei fengið neinar til­kynn­ingar um að hann bæri ábyrgð á að skila gögnum um raun­veru­lega eig­endur þess.

Forsaga máls­ins er sú að árið 2001 stofn­aði Brynjar ásamt Guðrúnu Helgu Jóns­dóttur konu sinni og þriðja manni sem­eign­ar­fé­lagið JGB-Hljóð sf. á Siglu­firði þar sem þau voru þá búsett. „Þetta félag var stofnað í kringum hljóm­sveit, eða eig­in­lega var það hljóð­kerfa­leiga. Við keyptum eitt­hvað aga­legt kerfi því það var ekk­ert til á Siglu­firði á þeim tíma sem hægt var að nota. Við áttum þetta saman þrjú, J-ið stóð fyrir Jóhann, G-ið fyrir Guðrúnu og ég heiti Brynjar. Félagið var starf­andi til 2003 þegar ég og Guðrún konan mín fluttum frá Siglu­firði.“

„Það var haft sam­band á Siglu­fjörð og við alla nema Guð almátt­ugan held ég til að leggja félagið niður“

Brynjar segir að þegar þau Guðrún hafi flutt frá Siglu­firði hafi græjur félags­ins verið seldar og til­raunir hafi haf­ist við að leggja niður félagið. „Ég tal­aði við sýslu­mann­inn á Siglu­firði strax þarna og gerði það sem mér var sagt að gera þar til að slíta félag­inu. Mér var sagt að ég þyrfti bara að fylla út staðlað form til að slíta þessu og það var gert. Síðan hefur hins vegar alltaf eitt­hvað verið að poppa upp sem teng­ist þessu aflagða félagi. Yfir­leitt hefur það verið áætl­aðir skattar, virð­is­auka­skattur og svona. Ég hef þurft að eyða drjúgum tíma við að leið­rétta þessar kröfur, og það hefur nú alltaf tek­ist, nema þegar kemur að útvarps­gjald­inu. Einhvern tíma þurfti ég að greiða heilan hell­ing af útvarps­gjald­inu, sem ég gerði, því mér var sagt að ann­ars myndi aldrei takast að drepa þetta félag. Ég bara gerði það og reyndi þá enn einu sinni að fá þessu félagi slitið. Það gekk hins vegar ekki, ekki frekar en fyrri dag­inn.“

Stefnuvottur á sjúskaðri Toyotu

Fyrir um það bil tveimur árum síðan fékk Brynjar enn einn gang­inn til­kynn­ingar um að JGB-Hljóð ætti að standa skil á ýmsum opin­berum gjöldum, og þótti honum nú orðið nóg um enda fimmtán ár síðan félagið hætti starf­semi og hann taldi sig hafa slitið því. „Þá fékk ég mér lög­mann og við fórum og hittum sýslu­mann­inn á Sauð­ár­króki. Nið­ur­staða þess fundar var sú að nú yrði þetta sam­eign­ar­fé­lag loks aflagt. Það var haft sam­band á Siglu­fjörð og við alla nema Guð almátt­ugan held ég til að leggja félagið niður. Ég hélt að það hefði nú loks gengið en það hefur greini­lega ekki gert það.“

Brynjar hafði engar póst­send­ingar fengið eða nokkrar aðrar til­kynn­ingar er varða félagið, og engar kröfur um að skrá skyldi raun­veru­lega eig­endur þess, fyrr en í gær­kvöldi þegar að stefnu­vottur „á sjú­skaðri Toyotu“ birt­ist í hlað­inu í Miðhúsum. „Ég var vin­sam­leg­ast beð­inn um að kvitta fyrir mót­töku á þessu skjali. Þetta lítur út fyrir mér núna þannig að þarna fyrir tveimur árum hafi tek­ist að af tengja nöfnin okkar frá þessu félagi, en það er ein­hvern veg­inn enn á lífi þrátt fyrir það. Félagið er bara skráð núna sem JGB-Hljóð, með eigin kenni­tölu og heim­il­is­fang á Siglu­firði. Mitt nafn kemur þarna aldrei fram, á þess­ari kröfu. Samt er þetta keyrt heim í Miðhús. Ég átti að taka við þessu en ekki Guðrún konan mín, sem þó átti þetta á sínum tíma með mér.“

Sautján ár án árangurs

Brynjar kvitt­aði fyrir mót­tök­una og stendur því eftir með kröfu um að borga 344 þús­und krónur, fyrir að hafa ekki gert grein fyrir raun­veru­legum eig­anda félags sem hann hefur nú reynt að láta leggja niður í 17 ár, og vissi ekki betur heldur en að hefði loks tek­ist að afleggja fyrir tveimur árum. Í greiðslu­á­skor­un­inni er skorað á Brynjar að greiða dag­sekt­ina, sem svo er nefnd, innan 15 daga frá mót­töku bréfs­ins. Að öðrum kosti megi hann búast við að kraf­ist verði fjár­náms hjá honum. En hvað ætlar hann að gera í mál­inu? „Ég ætla nú að reyna að ná í lög­mann­inn aftur og biðja hann um að fara og tala við starfs­menn sýslu­manns. Ég ætla helst ekki að gera neitt, nema að borga honum, vegna þess að ég get ekk­ert gert í þessu. Það eru sautján ár sem sanna það að ég get ekk­ert gert í þessu máli.“

„Ég sit eftir með Svarta-Pétur og neyð­ist til að finna út úr því hvernig ég get skilað skömminni, ein­hvern veg­inn“

Brynjar þarf því enn á ný að taka á sig fyr­ir­höfn og kostnað til að verj­ast þessu áreiti hins lífseiga félags. Hann segir óbæri­legt að fá í höf­uðið enn og aftur kröfur vegna félags sem sé í engum rekstri, sem engum skuldi neitt, sem ekk­ert eigi og marg­sinnis hafi verið reynt að afleggja.

„Þetta er auð­vitað óþol­andi, og ég bara trúi ekki að það sé ekki hægt að slökkva á þessu í kerf­inu. Ef ég geri nú það sem ég er beð­inn um núna, að gera grein fyrir því hverjir eru raun­veru­legir eig­endur þessa félags, hvað ger­ist þá? Er ég þá enn á ný búin að vekja upp þetta sam­eign­ar­fé­lag sem ég er búinn að reyna að slökkva á svo árum skiptir? Ég læt þetta svo sem ekki taka mig niður en ég er nú orð­inn frekar þreyttur á að eiga við þetta opin­bera kerfi. Þetta kostar allt, er leið­in­legt og virð­ist aldrei skila neinum árangri. Svo er þessi krafa um að gera grein fyrir raun­veru­legum eig­endum þessa félags að mínu viti líka full­kom­lega til­gangs­laus. Það var alltaf ljóst hverjir stóðu að baki því, og ekki virð­ist það vera flókið að finna út úr því, í það minnsta tókst þeim að finna mig til að afhenda mér kröfu­bréfið. Ég sit eftir með Svarta-Pétur og neyð­ist til að finna út úr því hvernig ég get skilað skömminni, ein­hvern veg­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár