Banki sagði Samherja tengjast félagi í skattaskjóli sem útgerðin sver af sér

Samherji sver af sér tengsl við eign­ar­halds­fé­lag í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum sem notað var til að greiða laun starfs­manna útgerð­ar­innar í Afríku. Gögn frá DNB-bank­anum sýna hins vegar að fjár­mála­stjóri hjá Samherja hafði rétt­indi til að stýra banka­reikn­ingi félags­ins og að bank­inn taldi félagið lúta stjórn Samherja.

Banki sagði Samherja tengjast félagi í skattaskjóli sem útgerðin sver af sér
Þor­steinn Már Bald­vins­son Gögn frá DNB-bank­anum sýna að fjár­mála­stjóri hjá Samherja hafði rétt­indi til að stýra banka­reikn­ingi félags­ins.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji sver af sér öll eig­enda­tengsl eða yfir­ráð yfir félag­inu Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum sem meðal ann­ars var notað til að greiða laun sjó­manna Samherja í Namibíu. Þetta gerir Samherji þrátt fyrir að fjár­mála­stjóri dótt­ur­fé­lags Samherja á Spáni hafi verið einn þeirra sem til­greindur var sem „not­andi“ banka­reikn­ings Cape Cod FS hjá norska bank­anum DNB og þrátt fyrir að bank­inn hafi talið félagið vera „undir Samherja“ á ein­hverjum tíma­punkti. 

Cape Cod FS var eitt af þeim félögum sem rætt var um í tengslum við umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera í nóv­em­ber í fyrra um mútu­greiðslur Samherja til ráða­manna í Namibíu í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta.  Samherji fjár­magn­aði Cape Cod FS, hafði aðgang að banka­reikn­ingum félags­ins í gegnum starfs­mann sinn og starfs­menn Samherja fengu laun af þessum banka­reikn­ingum. Málið er nú til rann­sóknar í Namibíu, á Íslandi og í Noregi. 

Segir eign­ar­haldið þýsktEiríkur S. Jóhann­es­son, stjórn­ar­for­maður Samherja, sagði í yfir­ýs­ingu að eign­ar­haldið á Cape Cod FS væri þýskt. Norski DNB bank­inn lok­aði á við­skipti félags­ins vegna þess að ekki var ljóst hver átti það en DNB hafði þá talið félagið vera „undir“ Samherja.

Afneitun Samherja á eig­enda- og stjórn­ar­tengslum við félagið Cape Cod FS kom fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn­ar­for­manni Samherja, Eiríki S. Jóhanns­syni, fyrir nokkrum dögum. 

Í yfir­lýs­ing­unni fór Eiríkur yfir túlkun Samherja á ætl­uðum nið­ur­stöðum norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein í athugun sem fyr­ir­tækið gerði að beiðni Samherja á mútu­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Samherji ætlar ekki að birta nið­ur­stöður Wikborg Rein opin­ber­lega, að sinni að minnsta kosti. Stór­fyr­ir­tæki hafa áður kom­ist að sömu nið­ur­stöðu í sam­bæri­legum málum eins og til dæmis í Telia-mál­inu svo­kall­aða í Svíþjóð. 

Um félagið Cape Cod FS sagði Eiríkur  í yfir­lýs­ingu Samherja: „Strax í byrjun vorum við sann­færð um að sumar þess­ara ásak­ana væru til­hæfu­lausar og ættu ekki við nein rök að styðj­ast. Eitt slíkt dæmi varðar áhafn­ar­leig­una Cape Cod sem er í þýskri eigu. Fyr­ir­tækið ann­að­ist einkum greiðslu launa til skip­verja í nokkrum ríkjum en í umfjöllun fjöl­miðla var félagið sagt hafa verið notað í marg­vís­legum ólög­mætum til­gangi í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu.“ 

Fjár­mála­stjór­inn not­andi reikn­ings Cape Cod FSFjár­mála­stjóri dótt­ur­fé­lags Samherja á Kanarí­eyjum, Brynjar Þórsson, var einn af not­endum banka­reikn­ings Cape Cod FS á Marshall-eyjum ásamt tveimur starfs­mönnum kýp­versks eign­ar­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis. Myndin sýnir samn­ing­inn sem gerður var um banka­við­skipti Cape Cod FS við DNB og kemur nafn Brynjars þar fyrir.

Norski bankinn lokaði á Cape Cod

Eins og fjallað var um í Kveik og Stund­inni í fyrra lét norski DNB bank­inn loka banka­reikn­ingum Cape Cod FS árið 2018 vegna óvissu um eign­ar­hald félags­ins á Marshall-eyjum og vegna hættu á því að pen­inga­þvætti kynni að vera stundað í gegnum reikn­inga félags­ins af þessum sökum. 

Í gögnum DNB bank­ans kom fram að á einum tíma­punkti sem reikn­ingum Cape Cod FS var lokað hafi eig­and­inn verið sagður kýp­versk starfs­manna­leiga, JPC Shipmana­gement, sem leigir út sjó­menn til útgerða.  Þrír Þjóð­verjar voru svo sagðir eiga JPC. Starfs­maður DNB spurð­ist fyrir um félögin fékk þessi svör frá starfs­manni JPC. 

Í gögn­unum um starf­semi Samherja í Afríku kemur hins vegar fram að norski bank­inn hafi talið félagið á Marshall-eyjum vera undir Samherja á ein­hverjum tíma­punkti enda kom nafn Brynjars Þórs­sonar, starfs­manns Samherja á Kanarí­eyjum, fyrir í gögnum um upp­setn­ingu banka­reikn­ings fyrir félagið hjá DNB árið 2010.

Í grein­ingu DNB á félag­inu kemur fram að félagið til­heyri Samherja ekki lengur og að í dag séu þrír ein­stak­lingar skráðir eig­endur sam­kvæmt JPC Shipmana­gement: „Ekki lengur undir Samherja. 3 ein­stak­lingar eru efstir í eig­enda­keðj­unni. (Ikke under Samherji len­ger. 3 pri­vat­per­soner på topp i eierstrukt­uren).“

Starfs­maður JPC Shipmana­gement sendi DNB-bank­anum hins vegar aðeins stað­fest­ingu á eign­ar­haldi þess félags en ekki félags­ins á Marshall-eyjum. Kýp­verska félagið sagði að engin hluta­bréf, eða „bearer shares“ á ensku, væru gefin út fyrir félagið í skatta­skjól­inu en að eign­ar­hald félags­ins væri hið sama og á starfs­manna­leig­unni á Kýpur. 

Þegar eftir því var leitað gat starfs­maður kýp­verska fyr­ir­tæk­is­ins hins vegar ekki sent norska bank­anum stað­fest­ingu á eign­ar­haldi Cape Cod FS á Marshall-eyjum. Miðað við þessar upp­lýs­ingar var hvorki Samherji, né nokkur annar, skráður eig­andi þessa félags. Þess vegna lok­aði DNB banka­reikn­ingum félags­ins þar. 

Þegar ban­kreikn­ingum Cape Cod FS var lokað vegna hættu á pen­inga­þvætti árið 2008 hafði félagið milli­fært rúm­lega 644 millj­ónir norskra króna, rúm­lega 9 millj­arða króna, í rúm­lega 13 þús­und milli­færslum. Þessir pen­ingar komu frá félögum Samherja og runnu til starfs­manna félags­ins sem launa­greiðslur fyrir störf þeirra í Afríku, fyrst í Marokkó og Márit­aníu og síðar í Namibíu. 

Í yfir­lýs­ing­unni frá Samherja og Eiríki S. Jóhanns­syni stjórn­ar­for­manni er því gert heldur lítið úr skjal­festum tengslum Samherja við Cape Cod FS þegar félagið er sagt hafa verið í „þýskri eigu“. DNB bank­inn lok­aði einmitt á við­skipti Cape Cod í gegnum bank­ann vegna þess að hann fékk ekki form­lega stað­fest­ingu á eign­ar­haldi félags­ins sem DNB taldi hins vegar hafa verið „undir Samherja“. 

Stofnað vegna gjaldeyrishaftanna

Við þetta bæt­ist að önnur gögn frá DNB-bank­anum benda til þess að bæði Cape Cod FS og móð­ur­fé­lag þess JPC Ship Mana­gement virð­ast hafa orðið við­skipta­vinir DNB bank­ans vegna þess að gjald­eyr­is­höft voru í gildi á Íslandi eftir hrunið árið 2008. Í  áhættu­mati sem unnið var innan DNB áður en ákveðið var að loka ætti á við­skipti félag­anna JPC Shipmana­gement og Cape Cod  kom meðal ann­ars fram að JPC hefði byrjað að eiga í við­skiptum við norska bank­ann árið 2013 út af gjald­eyr­is­höft­unum á Íslandi. Samherji hafði þá þegar notað dótt­ur­fé­lag þess Cape Cod í nokkur ár enda var starfs­maður útgerð­ar­innar á Kanarí­eyjum með umráða­rétt yfir banka­reikn­ingi félags­ins allt frá árinu 2010. 

Andmæla því ekki að greiðslur hafi átt sér staðEitt af því sem vekur athygli í yfir­lýs­ingu Samherja er að fyr­ir­tækið hafnar því ekki að greiðslur til félaga sem tengj­ast Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og sam­starfs­mönnum hans hafi átt sér stað af banka­reikn­ingum Sam­herj­a­fé­laga erlendis.

Orðrétt segir um þetta í skýrslu norska bank­ans, líkt og Stundin fjall­aði um í fyrra: „JPC Ship Mana­gement (á Kýpur) Ltd. hefur verið við­skipta­vinur LCI, sem nú til­heyrir Ocean Industries Global Seafood Oslo. Félagið varð við­skipta­vinur í kjöl­far þess að sett voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008. Við­skipta­vin­ur­inn gekkst undir KYC-athugun (Know Your Client) árið 2017 og var nið­ur­staðan úr henni sú að honum fylgdi mikil áhætta vegna milli­færslna til Rúss­lands og Úkraínu en ekki var brugð­ist við því með nokkrum hætti. Mill­færslur við­skipta­vin­ar­ins til Rúss­lands og Úkraínu (greiðslur á launum) fela í sér mikla áhættu á pen­inga­þvætti og sekt­ar­greiðslur [e. High AML and sanction risk]. Áhættu­matið var unnið vegna þess að upp kom til­felli þar sem end­ur­senda þurfti fé.“

Í enn nán­ari útskýr­ingu í skýrslu DNB segir að til­gang­ur­inn með notkun félag­anna hafi verið að greiða erlendum starfs­mönnum á skipum laun: „Til­gangur við­skipta­sam­bands­ins er að greiða erlendum starfs­mönnum laun, aðal­lega starfs­mönnum frá Austur-Evrópu. Stjórn­enda­teymið hefur verið að vinna fyrir íslensk skip. Vegna gjald­eyr­is­haft­anna á Íslandi bauð DNB íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum upp á greiðslu­þjón­ustu. Gjald­eyr­is­höftin eru ekki lengur í gildi. Við­skipta­vin­ur­inn er ekki með lán hjá okkur, aðeins tvo reikn­inga með Banda­ríkja­doll­urum og einn evru­reikn­ing. Fyr­ir­tækin eru ekki með starf­semi í Noregi eða með norska starfs­menn í vinnu, og þarf þar af leið­andi ekki að greiða skatta í Noregi. JPC Shipmana­gement er með dótt­ur­fé­lag sem er í sams konar rekstri Cape Cod FS Ltd (Banka­af­urðir: Sömu þrír gjald­eyr­is­reikn­ing­arnir),“ segir í skýrsl­unni. 

Miðað við þessar skýr­ingar um við­skipta­sam­band Cape Cod FS og móð­ur­fé­lags þess, JPC Shipmana­gement, við DNB þá var Samherji einnig ástæða þess að þessi félög opn­uðu banka­reikn­inga í DNB. Fyrst Cape COD FS árið 2010 og síðar JPC Shipmana­gement árið 2013. Bankinn taldi einnig og full­yrti að Cape Cod hefði lotið stjórn Samherja á ein­hverjum tíma­punkti.

Tengsl Samherja við Cape Cod FS á Marshall-eyjum eru því tals­vert meiri en stjórn­ar­for­maður Samherja vill láta líta út fyrir í áður­nefndri yfir­lýs­ingu. Rætur við­skipta­sam­band Cape Cod FS og JPC Shipmana­gement virð­ast liggja hjá Samherja á Íslandi þrátt fyrir orð stjórn­ar­for­manns­ins um að Cape Cod FS hafi verið ótengdur þriðji aðili sem Samherji átti í við­skiptum við eins og við hvert annað fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár