Fékk óhugnanleg skilaboð um að hún stundaði vændi

Alex­andra Jur­kovičová segir lög­reglu ekk­ert aðhaf­ast eftir að hún til­kynnti um staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi. Kærasti hennar fékk sent skjá­skot með per­sónu­upp­lýs­ingum og verð­lista þar sem látið var líta út fyrir að hún seldi vænd­is­þjón­ustu í Reykja­vík. Hún segir aug­ljóst hver söku­dólg­ur­inn sé.

Fékk óhugnanleg skilaboð um að hún stundaði vændi
Alex­andra Jur­kovičová Með skjá­skoti af vænd­is­síðu var látið líta út fyrir að Alex­andra stund­aði vændi. Mynd: Davíð Þór

„Hefurðu séð þetta?“ stóð á ensku í skila­boðum sem kær­asti Alexöndru Jur­kovičová fékk send í sím­ann sinn í jan­úar. Með skila­boð­unum fylgdi skjá­skot af vef­síðu þar sem vænd­is­þjón­usta er boðin.

Alex­andra er frá Slóvakíu og flutti til Íslands fyrir tveimur árum. „Ég var for­vitin og mig hafði alltaf langað að koma til Íslands,“ segir hún. „Ég hef ferð­ast mikið um heim­inn und­an­far­inn ára­tug og hafði aldrei búið í köldu landi þannig að mig lang­aði að prófa eitt­hvað nýtt.“

Hún hefur starfað í ferða­þjón­ustu og verslun síðan og seg­ist hafa upp­lifað Ísland sem vina­legan stað. „Kerfið virkar líka vel, ég fékk kenni­tölu og allar stofn­anir virt­ust vel tengdar saman. Maður þarf ekki að læsa hús­inu og bílnum, sem er ótrú­legt því að þannig er ekki hægt í Austur-Evrópu. Mér leið öruggri og eins og ég væri á réttum stað,“ segir hún.

Alex­andra segir hins vegar að atburða­rásin eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár