Flokkur

Netöryggi

Greinar

Reyndi að kúga dreng til kynlífs með nektarmyndum
Úttekt

Reyndi að kúga dreng til kyn­lífs með nekt­ar­myndum

Kyn­ferð­is­leg kúgun ung­menna í gegnum sam­skipta­miðla er vax­andi vanda­mál á Íslandi, sem og um allan heim. Lögregla segir afar erfitt að eiga við þessi mál því oft sé um erlenda aðila að ræða. Í síð­asta mán­uði féll tíma­móta­dómur er varðar kyn­ferð­is­lega kúgun þegar karl­maður var dæmdur fyrir að hóta að dreifa nekt­ar­mynd af 15 ára dreng ef hann hefði ekki kyn­ferð­is­mök við sig. Karlmenn eru í meiri­hluta þolendur í þessum málum hér á landi, að sögn lög­reglu.
Ísland kom við sögu í einni stærstu og flóknustu fíkniefnarannsókn FBI fyrr og síðar
Fréttir

Ísland kom við sögu í einni stærstu og flókn­ustu fíkni­efna­rann­sókn FBI fyrr og síðar

Eitt stærsta mark­aðs­svæði í heimi með ólög­leg fíkni­efni var hýst í íslensku gagna­veri. Menn frá banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni flugu til Íslands í júní árið 2013 og fengu aðstoð íslenskra lög­reglu­yf­ir­valda við að afla gagna í hinu svo­kall­aða Silk Road-máli. Aðgerð alrík­is­lög­regl­unnar var og er enn í dag gríð­ar­lega umdeild en lög­reglu­yf­ir­völd hér á landi neita að tjá sig um málið.

Mest lesið undanfarið ár