Mynd: EPA

Netógnir nýrrar aldar: Árásir á lýðræðið

Það er ekki lengur tek­ist á um það af neinni alvöru að netárásir eru not­aðar til að hafa áhrif á hið lýð­ræð­is­lega ferli og til að grafa undan lýð­ræð­is­legum stofn­unum. Það hefur gerst í hverju land­inu á eftir öðru.

Árið 2016 mun í sögu­legu sam­hengi marka vatna­skil í mann­kyns­sög­unni sem árið þegar Rússar hökk­uðu lýð­ræðið og árið þegar netheimar urðu form­lega til sem sér­stakt hern­að­ar­svæði.

Net­ör­yggi spilar mun meiri þátt í lífi okkar en flestir gera sér grein fyrir. Flestar netárásir eru ekki til­kynntar heldur tækl­aðar af einka­að­ilum í kyrr­þey og kom­ast ein­ungis í fréttir þegar afleið­ing­arnar eru upp­götv­aðar. Netógnir hafa verið hluti Inter­nets­ins frá upp­hafi en árið 2016 markar skil í sögu netheima sem árið þegar netá­tök breytt­ust úr skæru­hern­aði og skemmd­ar­verkum yfir í mark­vissan nethernað og valda­jafn­vægi netheima breytt­ist til fram­búðar.

Annars vegar áttu sér stað mik­il­vægar form­breyt­ingar á nálgun Alþjóða­sam­fé­lags­ins til netheima og hins vegar kerf­is­bundnar netárásir á lýð­ræð­is­ríki þar sem veik­leikar opins Inter­nets voru nýttir gegn sköp­urum sínum með afdrifa­ríkum afleið­ingum.

Fyrstu form­legu merkin um breyt­ingar í netheimum má telja í Ise-Shima yfir­lýs­ing­unni sem var sam­þykkt á reglu­bundnum fundi G7 í maí 2016 þar sem stærstu iðn­ríki heims, nú að Rússum und­an­skildum, sam­þykktu ein­staka yfir­lýs­ingu um frjálst, öruggt og opið Internet þar sem þau skuld­bundu sig til að styðja fjöl­hag­hafa-vald­dreif­ingu netheima (Multista­keholder mód­elið) og að virða einka­líf, gagna­varnir og net­ör­yggi eigin borg­ara og ann­arra.

Mánuði síðar breytti NATO form­legri stefnu sinni um netheima í nokkrum mik­il­vægum skrefum. Á leið­toga­fundi sam­bands­ins í júní 2016 til­kynnti Jens Stol­ten­berg aðal­rit­ari sam­bands­ins að netárásir á ein­stök ríki gætu orðið til þess að sam­bands­ríkin virkj­uðu fimmta ákvæði varn­ar­samn­ings­ins um sam­eig­in­legar hern­að­ar­að­gerðir sem and­svar við árás. Þessi yfir­lýs­ing end­ur­speglar mik­il­væga breyt­ingu í hern­aði heims­ins og þeim hættum sem steðja að almennum borg­urum og fram­tíð lýð­ræð­is­ins. Það að netárásir geti komið af stað við­brögðum utan netheima er ekki nytt, en það að netárásir leiði til beinna hern­að­ar­að­gerða í raun­heimum markar óneit­an­leg vatna­skil.

Á leið­toga­fundi NATO 2016 var skipu­lagi varn­ar­banda­lags­ins breytt þannig að Cyberspace – netheimar voru teknir inn sem sér­stakt rými hern­aðar til jafns við land­hernað, lofthernað og sjó­hernað. Þar með voru netheimar form­lega við­ur­kenndir sem sér­stakt svæði þar sem fólk býr, verst og grípur til vopna alveg eins og á landi lofti og sjó.

Þessar form­legu breyt­ingar hjá stærsta varn­ar­banda­lagi jarðar voru við­brögð við þá (og enn) yfir­stand­andi tækni- og áróð­urs­stíði sem fór fram í netheimum tengt mik­il­vægum kosn­ingum hjá tveimur stofn­ríkjum sam­bands­ins: ann­ars­vegar höfðu Bretar, eftir margra ára vafstur og vanga­veltur, sæst á að halda ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní um veru sam­bands­rík­is­ins í Evr­ópu­sam­band­inu og í byrjun nóv­em­ber kusu Banda­ríkja­menn sér nýjan for­seta til að taka við af Barack Obama.

Báðar kosn­ing­arnar voru afskap­lega tæpar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, og nið­ur­stöð­urnar eftir því; Bretar sam­þykktu naum­lega að yfir­gefa ESB með tæp­lega 52% atkvæða; Eng­lend­ingar og Walesverjar vildu fara en Skotar og N-Írar vera áfram. Nið­ur­staðan á Brexit kosn­ing­unum fyrir Bretland varð póli­tísk og efna­hags­leg ringul­reið sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Í byrjun nóv­em­ber var Donald Trump svo kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna með minni­hluta greiddra atkvæða þar sem hann vann kosn­ing­arnar með 77 þús­und atkvæða mun í 3 fylkjum en vegna kjör­manna­kerf­is­ins tap­aði Hillary Clinton þrátt fyrir að hafa fengið yfir 3 millj­ónum fleiri atkvæði í heild­ina. Kjör­manna­kerfið umdeilda hefur nú kostað tvo Demókrata sig­ur­inn; Donald Trump árið 2016 og George Bush yngri sem sigr­aði Al Gore árið 2000 með minni­hluta kjós­enda á bak við sig en Hillary Clinton sagði sjálf í við­tali nokkrum dögum eftir kosn­ing­arnar að tölvu­hakk og lekar hafi kostað sig sig­ur­inn.

Hillary Clinton hefur sjálf sagt að tölvuhakk og lekar hafi kostað hana sigurinn í forsetakosningunum 2016.
Hillary Clinton hefur sjálf sagt að tölvu­hakk og lekar hafi kostað hana sig­ur­inn í for­seta­kosn­ing­unum 2016.

Heill her sér­fræð­inga hefur reynt að útskýra af hverju þessar fyrir fram ólík­legu nið­ur­stöður urðu reyndin og vísað í óánægju kjós­enda með eigin hag, and­stöðu við alþjóða­væð­ingu og fjölgun inn­flytj­enda en þar til nýlega, eftir til­komu Mueller skýrsl­unnar, hafa fáir viljað ræða alvar­lega sönn­un­ar­gögnin sem benda skýrt á áhrif rúss­neskrar hakk- og netá­róð­urs-mask­ínu í útkomu beggja kosn­inga og ára­tuga­löng en mis­jöfn afskipti Rússa af kosn­ingum í öðrum löndum.

Væringar á samfélagsmiðlum

Veturinn 2015 til 16 urðu margir net­verjar varir við und­ar­lega og frekar pirr­andi hluti í netheimum sem virt­ust varla nógu merki­legir til að gera veður yfir þeim. Spjall­svæði í netheimum hafa frá upp­hafi verið plöguð af ein­stak­lingum sem ekki geta fylgt eðli­legum sam­skipta­reglum en þennan vetur tók stein­inn úr í fjölda trölla sem hleyptu upp umræð­unni og (ró)botta sem dreifðu efni á sam­fé­lags­miðlum sem við nán­ari skoðun reynd­ist hauga­lygi.

Margir tals­menn frjálsra netheima héldu því fram að hér væri ekk­ert nýtt á ferð og engin ástæða væri til að hafa áhyggjur. Þeir héldu því fram að net­not­endur væru nógu greindir til að sjá í gegnum lyga­fréttir og að smá troll skipti engu máli, þvert á móti ættu við­kvæmu snjó­kornin sem kvört­uðu yfir net-ofbeldi að læra að harka af sér. Þessi afneitun á and­legum áhrifum áróð­urs og netof­beldis á hugs­ana­gang og hegðun fólks var ekki bara röng heldur drap mik­il­vægri umræðu á dreif og kom í veg fyrir að þjón­ustu­veit­endur upp­fylltu eigin lof­orð og laga­legar skyldur gagn­vart not­endum.

Gögn sem síðar hafa komið fram vegna leka og þrýst­ings frá stjórn­mála­mönnum hafa sýnt að sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækin voru óvið­búin, van­búin og óviljug til að taka á ólög­legum afskiptum af kosn­inga­bar­áttu á net­inu.

Í öllum lýð­ræð­is­ríkjum gilda lög um fram­kvæmd kosn­inga, til dæmis um opið bók­hald, um hámarks­eyðslu, um upp­runa­stað­fest­ingu, um sann­leiks­gildi o.s.frv. Kjós­endur um allan heim fá fréttir um stjórn­mál í síauknum mæli í gegnum netið, þar fer stjórn­mæla­um­ræðan fram og margir taka póli­tískar ákvarð­anir út frá þeirri mynd sem netheimar birta. Á sam­fé­lags­miðlum eiga að gilda sömu lög og í raun­heimum en það var ekki gert í reynd. Sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækin fylgd­ust ekki með því hvort aug­lýs­ing­arnar fylgdu lögum í hverju landi, heldur færðu neyt­endum það hlut­verk að reporta óvið­eig­andi efni og gerðu afskap­lega litlar kröfur til þess efnis sem var hleypt í gegn til til­von­andi kjós­enda. Með því að taka ekki til­lit til sér­stöðu póli­tískra aug­lýs­inga og aug­lýsenda komu sam­fé­lags­miðlar fram við póli­tíska aug­lýsendur eins og aðra aug­lýsendur - en bara þegar svo hent­aði.

Facebook sá sæng sína upp reidda við að ná til sín póli­tísku aug­lýs­ingafé, en einn stærsti þrösk­uld­ur­inn í fram­kvæmd var að fræða þá sem stjórn­uðu eyðslu hvers fram­bjóð­anda um mik­il­vægi sam­fé­lags­miðla til að hafa áhrif á kjós­endur. Í stað þess að búa til betra kennslu­efni, senda sölu­pósta og fá kynn­ing­ar­fundi ein­fald­aði Facebook sölu­ferlið og bauð fram­bjóð­endum „upon request“ eigin starfs­mann til vinnu á staðnum til að sjá um að bóka aug­lýs­ingar og kenna starfs­mönnum kosn­inga­bar­átt­unnar hvernig þeir fengu mest út úr miðl­inum. Þessi þjón­usta var í boði í fjöl­mörgum löndum án þess að allir fram­bjóð­endur vissu af mögu­leik­anum að biðja um Facebook starfs­mann að láni.

Erfitt er að sanna bein áhrif ákveð­inna net-mark­aðs­að­gerða í auknu fylgi kjós­enda en þau gögn sem hafa verið tekin saman um þessa þjón­ustu Facebook sýna óyggj­andi fylgni milli þess að fram­bjóð­andi náði kjöri og þess að Facebook veitti við­kom­andi sér­fræði­þekk­ingu á staðnum. Með því að senda ákveðnum póli­tískum fram­bjóð­endum sér­fræði­þekk­ingu í miðlun póli­tískra skila­boða í gegnum sam­fé­lags­miðla er meira en lík­legt að Facebook hafi vís­vit­andi haft áhrif á val kjós­enda og með aðgerðum sínum tekið virkan þátt í heim­spóli­tík­inni.

Í gegnum sam­starf Facebook, fram­bjóð­and­ans og póli­tískra starfs­manna mynd­að­ist sam­band sem fyr­ir­tækið nýtti sér síðar í póli­tískum til­gangi, til dæmis þegar við­kom­andi land hugð­ist setja reglur um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­komu­lagið og sú nána sam­vinna og teng­ing sam­fé­lags­miðla sem mynd­að­ist við ein­staka fram­bjóð­endur hefur verið harð­lega gagn­rýnd, sér í lagi í Evrópu. Í fyrra breytti Facebook póli­tískri þjón­ustu sinni og aflagði per­sónu­lega aðstoð á staðnum og bjóð­ast öllum fram­bjóð­endum nú sömu upp­lýs­ing­arnar.

Það hefur tekið sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækin langan tíma að við­ur­kenna ábyrgð sína á sam­fé­lags­um­ræð­unni þrátt fyrir að lúra eins og ormur á gulli á ógn­ar­stórum gagna­söfnum sem sýna að til­finn­ingar smit­ast um netheima. Inn­an­húss­gögn fyr­ir­tækj­anna sýna kerf­is­bundna and­stöðu sam­fé­lags­miðl­arisanna á hvers­konar laga­setn­ingu varð­andi starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, sér­stak­lega Facebook/Instagram sam­stæð­unnar sem hýsir per­sónu­leg gögn yfir fjórð­ungs mann­kyns.

Línuveiðar og hakk

Í lok júní 2016 vör­uðu full­trúar Upp­lýs­inga­sam­fé­lags­ins (e. The Intelligence Community) Obama við að Rússar hefðu hefðu bæði brot­ist inn í tölvu­kerfi Demókrata og hakkað sig inn í kosn­inga­bar­áttu og tölvu­póst­kerfi Hillary Clinton og væru búnir að koma gögn­unum áfram. Þá um vorið hökk­uðu Rússar sig inn í stóra hluta af tölvu­kerfi Repúblíkana­flokks­ins og stálu þaðan upp­lýs­ingum sem enn hafa ekki sést opin­ber­lega og höf­undur telur útskýra tryggð Repúblík­anskra þing­manna við Trump. Tölvu­póstar frá Demókrötum og Clinton voru hins­vegar birtar í lok júlí í gegnum Wikileaks, sem Trump mærði mikið á þessum tíma en vill nú ekki kann­ast við, en það er seinni tíma saga.

Aðferða­fræðin sem Rússar beittu í það sinn er kölluð phishing og mætti líkja við línu­veiðar þar sem Rússar höl­uðu út beitu þar sem þeir sendu ákveðnu fólki eða hópi fólks tölvu­pósta sem líktu eftir þekktum þjón­ustum til þess að fá við­kom­andi til að opna slóðir og skjöl sem Rússar nýttu sér til að kom­ast inn í tölvu­kerfi við­kom­andi kosn­inga­bar­áttu eða stjórn­mála­flokks. Þannig var kosn­inga­stjóri Hillary Clinton gabb­aður til að opna exel skrá um skoð­anir kjós­enda á fram­bjóð­and­anum sem hleypti Rússum inn í alla tölvu­pósta og gögn kosn­inga­bar­átt­unnar.

27 júlí 2016 bað Donald Trump Rússland um að hakka Hillary Clinton til að finna „týnda“ 30.000 tölvu­pósta sem áttu að sanna þátt­töku hennar í hinum ýmsu meintu lög­brotum en hafði verið eytt sem per­sónu­legum gögnum af starfs­mönnum hennar. Sama dag réð­ust Rússar inn í tölvu­kerfi Clinton kosn­inga­bar­átt­unnar, en sá gjörn­ingur var að stærstum hluta sjón­ar­spil því Rússar voru búnir að hakka sig inn mörgum mán­uðum áður og settu nú af stað leik­rit með Trump kosn­inga­bar­átt­unni til að hámarka áhrifin og ná höggi á Hillary Clinton. Í fram­hald­inu komu Rússar tölvu­póstum og skjölum yfir til Wikileaks sem birtu gögnin í nokkrum gusum frá júlí fram í októ­ber 2016.

Þrátt fyrir sann­anir um tölvu­inn­brot og afskipti Rússa af kosn­ing­unum var Obama ragur við að grípa til aðgerða af nokkrum ástæðum. Ráð­gjafar hans áttu erfitt með að koma sér saman um við­brögð og sjálfur vildi hann ekki að það liti út eins og hann væri að skipta sér af kosn­inga­bar­átt­unni. Hluti vanda­máls­ins var að Banda­ríkin voru svo vön því að hafa hern­að­ar­lega yfir­burði í netheimum að þeir gerðu sér ekki grein fyrir þeim and­legu áhrifum sem hakkið hafði. Þar að auki ótt­að­ist hann að aðgerðir sínar yrðu til þess að koma af stað skriðu hefnd­ar­að­gerða sem ekki sæi fyrir end­ann á. Net­ör­ygg­is­sér­fræð­ingar telja að það ríki eins­konar ógn­ar­jafn­vægi í netheimum sem minni um margt á kalda stríðið að því leiti að báðir/allir aðilar hafi tæki­getu til að slökkva á raf­magni og tölvu­kerfum hins aðil­ans, en að afleið­ing­arnar yrðu svo alvar­legar að það gæti koll­varpað heims­friðnum. Samfara auk­inni notkun gervi­greindar í hern­aði hafa lík­urnar á því að sjálf­virk varn­ar­við­brögð valdi gagn­verkun stig­vax­andi ógnar einnig auk­ist. Af þessum ástæðum ákvað Obama að grípa til póli­tískra vopna, gefa leyfi fyrir tak­mörk­uðum cyber gagnárásum en auka vægið á varnir og póli­tíska sam­stöðu banda­manna gegn Rúss­landi.

Barack Obama var ragur við að gríða til aðgerða þegar ljóst var að Rússar hefði ráðist inn í tölvukerfi Clinton kosningabaráttunar.
Barack Obama var ragur við að gríða til aðgerða þegar ljóst var að Rússar hefði ráð­ist inn í tölvu­kerfi Clinton kosn­inga­bar­átt­unar.

Í Muller skýrsl­unni segir að Rússar hafi ráð­ist fum­laust og kerf­is­bundið á Banda­ríkin „in a swift and systematic manner“ en rann­sókn­ar­skýrslur sýna líka að árás Rússa fór fram með tveimur sam­þættum aðgerðum; ann­ars vegar með hakki og inn­brotum í tölvu­kerfi og hins vegar áróð­ursmask­ínu sem nýtti sér gögnin og skap­aði falskan net­veru­leika fyrir hluta kjós­enda.

Kærleikskveðjur frá Rússlandi

Innlimun Krím­skag­ans í Rússland 2014 var ein­ungis æfing­ar­leikur fyrir Rúss­nesku áróð­ursmask­ín­una þar sem ráð­ist var á Úkraínu bæði í netheimum og í raun­heimum með hefð­bundnum hern­aði. Fyrst hökk­uðu Rússar raf­orku­kerfið og slökktu á land­inu og rúss­nesku­mæl­andi ómerktir „grænir kallar“ réð­ust inn í landið og þánæst tóku þeir yfir fjöl­miðlun í land­inu og voru með her manna í vinnu við að búa til ringul­reið á net­inu, setja inn falskar upp­lýs­ingar og búa til sundr­ungu meðal heima­manna. Samtímis voru inn­lendir Rúss­neskir fjöl­miðlar nýttir til að efla lög­mæti aðgerð­anna og auka vin­sældir Pútín, sem not­aði inn­rás­ina til að styrkja eigin stöðu.

Næst snéri rúss­neska netárás­arteymið sér að vest­rænum and­stæð­ingum þar sem blönd­uðum netárásum var beitt. Annars vegar ein­beitti hakkteymi sér að því að opna dyr með því að ráð­ast á kjörna full­trúa, flokka og fram­bjóð­endur með línu­veiðum og hins vegar voru reknar sér­stakar ein­ingar sem ein­beittu sér að því að vinna úr gögn­unum og stunda „óhefð­bundna póli­tíska mark­aðs­setn­ingu“.

Þannig ein­beittu Rússar sér að því að hakka kosn­ingar og þing­menn um alla Evrópu með sér­stakan fókus á lönd sem eiga landa­mæri að Rúss­landi og svo þau lönd sem töl­uðu fyrir efna­hags­legum þving­unum gegn rússum og rúss­neskum fyr­ir­tækjum eftir Krím inn­rás­ina.

Árið 2016 kom svo tæki­færi til að hafa áhrif á tvo stærstu óvini Rúss­lands. Rússar hökk­uðu sig inn í tölvu­pósta 91 breskra þing­manna og reyndu sam­tímis með ‚að hafa bein og óbein áhrif á Brexit umræð­una með því að beina lygum og efni sem vekur upp til­finn­inga­við­brögð á ákveðna hópa til að reyna að ýta undir sundr­ungu. Í Bret­landi tókst Rússum ein­ungis að tryggja sér sam­vinnu minni­háttar spá­manna við mótun umræð­unnar, rugl­ing­inn sáu breskir stjórn­mála­menn sjálfir um. Gögn sem síðar hafa komið fram sýna að Rússar deildu millj­ónum punda til breskra sam­taka sem töl­uðu fyrir EU útgöngu auk þess að reka áróð­ur­steymi sem fram­leiddi lyga­fréttir og aug­lýs­ingar sem bent var til vel-val­inna hópa.

Aðal skot­markið var hins vegar Banda­ríkin þar sem gögnin benda til umtals­verðrar sam­vinnu milli Trump kosn­inga­bar­átt­unnar og hinna ýmsu útsend­ara Pútínskra stjórn­valda. Þegar þessi orð eru rituð hafa verið gefnar út 137 ákærur á 34 ein­stak­linga og 3 fyr­ir­tæki í rann­sókn­inni á mál­inu, þar með talið IRA. Þrír nánir sam­starfs­menn Trumps hafa verið dæmdir fyrir lygar eða að neita að segja sann­leik­ann í tengslum við málið, fyrstur Paul Manafort fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóri, þá næst Michael Cohen fyrr­ver­andi lög­fræð­ingur Trump og nú nýlega Michael Flynn skamm­sætur þjóðar­ör­ygg­is­full­trúi Trump, að ógleymdum hinum lit­ríka Roger Stone sem bíður síns dóms.

Spezpropaganda, dezinformatsiya og samfélagsauður

Net­rann­sókn­ar­stofn­unin IRA (The Internet Research Agency) er eitt þriggja rúss­neskra fyr­ir­tækja og 34 ein­stak­linga sem hafa verið ákærð fyrir óeðli­leg afskipti af banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum 2016. IRA var stofnað 2014 og rekið frá Sankti Pét­urs­borg sem einka­fyr­ir­tæki og er eitt af nokkrum netá­róð­urs­fyr­ir­tækjum sem Rússar stofn­uðu um og uppúr inn­rás Rússa í Úkraínu og inn­limun Krím­skag­ans vet­ur­inn 2013 til 14.

Roger Stone er litríkur karakter. Hann hefur meðal annars unnið sér það til frægðar að hafa látið húðflúra andlit Richard Nixon á milli herðarblaða sinna.
Roger Stone er lit­ríkur karakter. Hann hefur meðal ann­ars unnið sér það til frægðar að hafa látið húð­flúra and­lit Richard Nixon á milli herð­ar­blaða sinna.

Rúss­neska áróð­ursmask­ínan var stofnuð með fjár­magni frá nokkrum vell­auð­ugum óli­görkum tengdum valda­kjarna Pútín. Þekktasta dæmið er IRA sem var stofnað af Yevgeni Prygozhin vorið 2014 og hleypt af stokk­unum eins og hverju öðru nýmiðl­unar og mark­aðs­fyr­ir­tæki í netheimum þar sem tækni­fólk, for­rit­arar, „blaða­menn“, graf­íkerar og netá­róð­urs­meist­arar unnu saman að því að búa til falskan veru­leika fyrir net­not­endur ann­arra landa með það fyrir augum að hafa áhrif á kosn­inga­hegðun þeirra.

Aðferð­irnar sem var beitt eru fjöl­breyttar og lyg­inni lík­astar; sam­bland af rík­is­á­róðri, spezpropaganda, afvega­leið­andi hálf­sann­leik dezinformatsiya og kompro­mat, efni sem er notað til að kúga fólk til hlýðni. Dæmi um áhrifa­ríka aðferð var að afrita erlendar frétta­síður með grafík, fréttum og myndefni sem var óþekkj­an­legt frá upp­runa­síð­unni og var sett upp á léni sem líkt­ist hinu upp­haf­lega s.s. abvnews eða hufington­post þar sem raun­veru­legum fréttum mið­ils­ins var blandað saman við áróð­ursefni sem Rúss­arnir skrif­uðu sjálfir og inni­héldu hrað­frystar lygar, hálf­sann­leik og afbak­anir á raun­veru­leik­anum. Rússar eru taldir hafa rekið tuga slíkra frétta­miðl­ara sem dældu út efni til tug millj­óna vest­rænna net­not­enda, en engar opin­berar upp­lýs­ingar hafa feng­ist um umfangið þótt sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækin hafi síðar verið neydd til að upp­lýsa um hversu margar aug­lýs­ingar og efni ákveðnir aðilar hafi dreift.

Aðrir starfs­menn áróð­urs­vél­ar­innar unnu við að búa til memes, til dæmis af Trump í hlut­verki Jesú í sjó­mann við Hillary Clinton í hlut­verki djöf­uls­ins þar sem ein­ungis tak­mörk ímynd­un­araflsins réðu því hvaða lygar voru fundnar upp. Aðrir hlutar sam­steypunnar ein­beittu sér að fram­leiðslu á mynd­bands­klippum þar sem myndir af Clinton voru klipptar til svo hún liti sem heimsku­leg­ust eða ill­gjörn­ust út. Rússar fengu gögn um veik­leika Hillary Clinton frá stolnum gögnum frá hennar eigin kosn­inga­bar­áttu og frá her­búðum Trump sem brutu lög þegar þeir sýndu rúss­neskum full­trúum kosn­inga­gögn og kann­anir þá um sum­arið.

Hvar svo sem veik­leika mátti finna í banda­rísku sam­fé­lagi voru Rússar mættir yfir netið til að höggva í knérunn og beittu sér­stak­lega aðferðum í miðlun sem not­færa sér veik­leika í mann­legri skynjun og ákvarð­ana­töku. Rússar styðj­ast við vís­inda­legar rann­sóknir og raun­gögn af net­inu við bestun á skila­boð­unum, þeir reyndu ekki að nota rök og útskýr­ingar heldur magna upp til­finn­ingar eins for­dóma, reiði og hræðslu hjá fólki sem væri lík­legt til að „gera eitt­hvað í mál­unum“.

Með dyggri aðstoð Trump og sam­vinnu við banda­ríska frétta­miðla eins og Breit­bart og FOX sam­steypuna varð úr geysi­sterk áróð­ursmask­ína sem spilar stóran þátt í því að hat­urs­full orð­ræða jókst stór­kost­lega og hat­urs­glæpum fjölg­aði um mörg hund­ruð pró­sent. Áróð­ursmask­ínan hætti ekki störfum þegar Trump komst til valda heldur hefur eflst síðan með fjölda­ráðn­ingum Rússa á fólki til að fram­leiða þýskt, franskt og spænskt net­efni.

Það er erfitt að sanna bein áhrif þessa orð­færis en mark­miðið er að brjóta upp sam­fé­lags­auð and­stæð­ing­anna og skapa sog inn í nei­kvætt sam­fé­lags­svart­hol. Árið 2017 reynd­ist eitt blóð­ug­asta ár banda­ríkj­anna í ára­tugi þar sem hvítir karl­menn drápu vel yfir hund­rað manns í skotárásum sem var sér­stak­lega beint að börnum, trú­ar­sam­komum, kyn­frjálsum og konum.

Sömu hópar voru skot­mark í netheimum og reyndu Rússar að koma sér fyrir inni í bar­áttu­hópum á net­inu til að reyna að fá þá til að grípa til gagn­að­gerða og til að skapa sundr­ungu á milli þeirra. Fréttir hafa verið fluttar af því erlendis hvernig Rússar mark­visst ólu á sundr­ungu svartra Banda­ríkja­manna og reyndu bæði að fá þá til að sýna borg­ara­lega óhlýðni við lög­regl­una og skapa þar með atvik sem gætu undið upp á sig, og hvöttu þá jafn­framt til að snið­ganga for­seta­kosn­ing­arnar til að sýna óánægju sína með kerfi sem stæði gegn þeim.

Annað dæmi sem hefur farið mun hljóðar er bar­átta Rússa til að egna femínista upp í slag við sam­fé­lagið, bæði með því að ala á óánægju kvenna og beina til þeirra skila­boðum um hræði­lega ofbeld­is­glæpi og með því að búa til mynd­bönd af fölskum femínistum að valda usla t.d. með mynd­bandi þar sem „femínisti“ slettir meintum klór á mann sem var að dreifa of mikið úr sér í lest. Því mynd­bandi var dreift til millj­óna net­not­enda, aðal­lega ungra karl­manna, í gegnum netaug­lýs­ingar sem eng­inn fylgist með og er 14 ára sonur höf­undar á meðal þeirra sem trúði því að um raun­veru­legt mynd­band væri að ræða.

Annað átak Rússa gegn kvenna­bar­átt­unni náði hingað til lands­ins þar sem íslenskar konur voru farnar að senda sín á milli í skila­boðum á Facebook skila­boð sem hvatti konur til að sýna sam­stöðu og mót­mæla óljósu órétt­læti sam­fé­lags­miðla með því að taka sig af net­inu í tvo sól­ar­hringa og setja upp svarta prófíl­mynd í leið­inni sem merki um að þær væru í mót­mælum. Hverju þetta „female media blackout“ átti að skila var óljóst, en skila­boðin voru send af stað haustið 2017 þegar #metoo bylgjan stóð sem hæst og fór af stað aftur ári síðar í kringum ásak­anir í garð Brett Kavan­augh sem þá stóð til að sam­þykkja inn í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna. Ein­hverjar konur féllu fyrir skila­boð­unum en flestar sáu þær ekki ástæðu til að taka sig af net­inu á sama tíma og rödd kvenna þurfti að heyr­ast í netheimum. Hoaxkill síður sem rekja uppi falskar sögu­sagnir í netheimum úrskurð­uðu víral­skila­boðin fölsk en meðal þeirra gagna sem Facebook birti síðar um upp­lýs­inga­um­svif Rússa eru nær sam­hljóða póstar þar sem aðrir hópar voru hvattir til að mót­mæla órétt­læti með sam­fé­lags­miðla­þögn og svartri prófíl­mynd.

Rússar hafa beitt svip­uðum aðferðum frá því löngu fyrir til­komu Inter­nets­ins þegar þeir stund­uðu ekki bara að lauma sér inn í hópa til að skipu­leggja falskar and­spyrnu­að­gerðir heldur sáu til þess að mót­mæl­endur auð­greindu sig á ein­hvern hátt t.d. með klæða­burði til að auð­veld­ara væri að koma auga á þá. Þannig eru dæmi um að KGB hafi boðað til mót­mæla fyrir utan sendi­ráð í Moskvu og aust­an­tjalds­ríkj­unum til þess eins að senda her­lið á stað­inn og fram­kvæma skjótar fjölda­hand­tökur á mót­mæl­endum sem ekk­ert hefur síðan spurst til. 

Átöppun gam­alla með­ala á nýjar flöskur er eitt af sér­sviðum Rússa og óhætt er að segja að árásin á Banda­ríkin hafi verið vel heppnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netárás

Mest lesið undanfarið ár