Auglýsingaherferð, ekki hakkarar

Skilaboð á raf­rænum aug­lýs­inga­skiltum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þess efnis að skiltin hafi verið „hökkuð“ eru hluti af aug­lýs­inga­her­ferð, en ekki til marks um netárás á rekstr­ar­að­ila skilt­anna.

Skilaboð sem birtust á auglýsingaskilti í morgun.
Skilaboð sem birt­ust á aug­lýs­inga­skilti í morgun. Mynd: Kjarninn

Skilaboð sem sést hafa á umhverf­is­aug­lýs­inga­skiltum víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í morgun eru hluti af nýrri aug­lýs­inga­her­ferð, en ekki verk ein­hverra tölvu­þrjóta.

Þetta segja starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins Bill­bo­ard, sem meðal ann­ars rekur aug­lýs­inga­skiltin sem eru í strætó­skýlum borg­ar­innar.

Blaða­maður Kjarnans fékk þau svör hjá starfs­mönnum Bill­bo­ard að það kæmi í ljós kl. 14 í dag hvaða aðilar stæðu að baki þess­ari her­ferð, sem vakið hefur nokkra athygli á sam­fé­lags­miðlum það sem af er degi.

[adspot]

Á strætó­skýlum og fleiri aug­lýs­inga­skiltum mátti meðal ann­ars lesa, á ensku, að það yrðu engar aug­lýs­ingar í dag heldur „bara ég og öll gögnin þín“, að ein­hverjum gögnum hefði verið læst og að 30 þús­und doll­ara greiðslu í raf­mynt­inni Bitcoin væri kraf­ist.

Á aug­lýs­inga­skilti í grennd við Kringl­una mátti meðal ann­ars sjá mynd af haus­kúpu og í frétt sem mbl.is birti sagði að lík­legt mætti telja að „hrekkj­óttur tölvu­hakk­ari eða -hakk­arar hafi verið þarna [að] verki og brotið sér leið inn í tölvu­kerfi skilt­is­ins“ og svo látið að því liggja að tölvu­áras hafi verið gerð í til­efni þess að í dag er hrekkja­vöku­dag­ur­inn.

Svo er hins vegar ekki, heldur er þarna um aug­lýs­inga­her­ferð að ræða, sem áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár