Vilja netöryggiskennslu inn í námskrá grunnskólanna

Aukin fræðsla í net­ör­ygg­is­málum á borð við kennslu á mis­mun­andi skóla­stigum er eitt af lang­tíma­mark­miðum í net­ör­ygg­is­málum að sögn fram­kvæmda­stjóra net­ör­ygg­is­sveit­ar­innar CERT-IS. Fjöldi til­kynn­inga um netsvindl hefur marg­fald­ast á und­an­förnum miss­erum.

Guðmundur Arnar Sigmundsson framkvæmdastjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS segir það mikilvægt að kenna börnum snemma hvernig það eigi að umgangast netið líkt og gert er í tilfelli fræðslu um umferðaröryggi.
Guð­mundur Arnar Sig­munds­son fram­kvæmda­stjóri net­ör­ygg­is­sveit­ar­innar CERT-IS segir það mik­il­vægt að kenna börnum snemma hvernig það eigi að umgang­ast netið líkt og gert er í til­felli fræðslu um umferð­ar­ör­yggi. Mynd: Samsett/Kjarninn

Það að fræða net­not­endur og allan almenn­ing um net­ör­yggi er skil­virkasta leiðin til þess að koma í veg fyrir netsvindl, að sögn Guð­mundar Arnars Sig­munds­sonar fram­kvæmda­stjóra CERT-IS, net­ör­ygg­is­sveitar Fjar­skipta­stofu. Hann segir nauð­syn­legt að hefja fræðslu um net­ör­ygg­is­mál snemma, líkt og gert er í til­felli fræðslu um umferð­ar­ör­yggi.

„Við kennum börnum að umgang­ast umferð­ina alveg frá því að þau eru nýbúin að læra að labba af því að umferð er hættu­leg. Hún er líka rosa­lega skil­virk og nauð­syn­leg og við þurfum að kenna fólki að umgang­ast þetta,“ segir Guð­mundur.

„Það er tekið á þessu í nýrri net­ör­ygg­is­stefnu Íslands sem nær til næstu 15 ára. Það er verið að vinna í aðgerða­á­ætlun hennar og inn­leið­ingu og þar er hrein­lega verið að taka á því hvernig við aukum net­ör­ygg­is­vit­und almenn­ings,“ segir hann og bætir því við að að kennsla í net­ör­yggi muni jafn­vel ná inn í námskrá á grunn­skóla­stigi.

Margföldun í tilkynningum til CERT-IS

Í áður­nefndri net­ör­ygg­is­stefnu Íslands sem kom út seint á síð­asta ári er fjallað um fræðslu og kennslu í net­ör­ygg­is­málum. Þar segir meðal ann­ars að „vit­und­ar­vakn­ing og fræðsla um net­ör­ygg­is­mál verði aukin með áherslu á fræðslu við hæfi fyrir þá hópa sem við­kvæm­astir eru,“ og að með „fjöl­breyti­leika í menntun og fræðslu á sviði net­ör­ygg­is­mála á öllum skóla­stigum og á vegum atvinnu­lífs­ins næst fram­þróun þekk­ingar og hæfni sem er nauð­syn­leg hér­lendis og í alþjóð­legri sam­keppni.“

Guð­mundur bendir á að aukin fræðsla, líkt og kennsla á mis­mun­andi skóla­stigum sé eitt af lang­tíma­mark­miðum í net­ör­ygg­is­málum. Til skamms tíma snú­ist bar­áttan fyrir bættu net­ör­yggi fyrst og fremst um að ræða hætt­urnar sem steðja að fólki á net­inu og þær aðgerðir sem fólk getur gripið til. Veruleg aukn­ing hefur orðið á svindl­her­ferðum á net­inu að und­an­förnu, að sögn Guð­mundar en til að mynda bár­ust CERT-IS 446 til­kynn­ingar vegna netsvindls í fyrra sam­an­borið við 181 til­kynn­ingu árið áður.

Fólk geti aukið öryggi sitt með margvíslegum leiðum

Spurður að því hvað sé til ráða segir Guð­mundur: „Það er gíf­ur­lega mik­il­vægt að fara eftir þessum helstu örygg­is­ráðum fyrir fólk sem er með ein­hverja við­veru á inter­net­inu. Þá erum við að tala um að nota lengri og flókn­ari lyk­il­orð og að nota tvö­falda auð­kenn­ingu. Það er senni­lega ein­hver besta aðgerð sem hægt er að fara í, það er að virkja þessa tvö­földu auð­kenn­ingu.“ [links]

Kjarninn tók nýverið saman nokkur ráð sem snúa að net­ör­yggi en til við­bótar við löng og flókin lyk­il­orð og tvö­falda auð­kenn­ingu mælir Guð­mundur með því að fólk nýti sér þjón­ustu lyk­il­orða­banka (e. Password mana­ger). Þá sé mik­il­vægt að fólk passi vel upp á hvaða upp­lýs­ingar það sendi yfir netið og að það beiti tor­tryggni í net­sam­skipti þegar við á, til dæmis þegar óskað er eftir við­kvæmum upp­lýs­ingum eða milli­færslum – jafn­vel þó að þau skila­boð virð­ist koma frá ein­hverjum nákomnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár