Svandís leggur niður læknaráð: „Hún þarf ekki að óttast að vera skömmuð af læknaráði í framtíðinni“

Læknaráð og hjúkr­un­ar­ráð hafa verið lögð niður með lögum. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hafði beðið lækna­ráð um stuðn­ing. Formaður lækna­ráðs segir aðhald minnka með breyt­ing­unni og að for­stjóri Land­spít­al­ans verði „býsna ein­ráður“.

Svandís leggur niður læknaráð: „Hún þarf ekki að óttast að vera skömmuð af læknaráði í framtíðinni“
Svandís Svav­ars­dóttir Á lok­uðum fundi hjá lækna­ráði sagði ráð­herra að það væri mikil áskorun að standa með Land­spít­al­anum.

Læknaráð og hjúkr­un­ar­ráð á heil­brigð­is­stofn­unum, þar á meðal Land­spít­al­anum, hafa verið lögð niður með lögum. Frumvarp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um heil­brigð­is­þjón­ustu var sam­þykkt á loka­dögum Alþingis í júní.

Í jan­úar stóðu deilur um mönnun og fjár­mögnun bráða­mót­töku Land­spít­al­ans hátt og sögðu margir læknar að neyð­ar­á­stand ríkti á stofn­un­inni. Athygli vakti þegar Svandís kom á fund lækna­ráðs og sagð­ist vilja eiga fleiri „hauka í horni“ úr röðum lækna í umræð­unni. „Ég verð bara að nota tæki­færið til að segja það við lækna­ráð að það er tölu­verð áskorun fyrir ráð­herra að standa með Land­spít­ala þegar koma álykt­anir á færi­bandi sem tala um það að þessi stofnun sé nán­ast hætt við,“ sagði Svandís.

Að lokum sagði Svandís að hún vildi skilja það eftir að það fælist ábyrgð í því hvernig er talað. „Ábyrgð lækna­ráðs er líka mikil þegar kemur að því að vera leið­togar í því að þróa heil­brigð­is­þjón­ust­una inn í fram­tíð­ina. Og ég vil biðla til lækna­ráðs að leggja fleiri lóð á þær voga­skálar og færri á þær að tala spít­al­ann niður eins og oft er gert. Þetta varð ég að segja.“

Frum­varpið um málið hafði verið lagt fram í des­em­ber, en var í sam­ráðs­gátt stjórn­valda mán­uð­ina á undan. Í umsögnum gagn­rýndu bæði lækna­ráð og hjúkr­un­ar­ráð Land­spít­al­ans frum­varpið og sögðu algjöran skort á sam­ráði og upp­lýs­inga­gjöf um það. Að mati lækna­ráðs fær­ist enn meira vald til for­stjóra Land­spít­al­ans við breyt­ing­una og verður „rödd lækna­ráðs þögguð niður,“ eins og segir í umsögn ráðs­ins.

„Í lögum erum við ekki lengur til“

„Í lögum erum við ekki lengur til,“ segir Anna Margrét Hall­dórs­dóttir, for­maður lækna­ráðs Land­spít­al­ans í við­tali við Stundina. „Svandís Svav­ars­dóttir fékk þessi lög sam­þykkt með hraði í júní eftir mjög litla umræðu. Samkvæmt því á að vera sam­eig­in­legt fagráð en for­stjóri sjálfur á að skipa það. Læknaráð er núna kosið af læknum spít­al­ans, en það á eftir að útfæra sam­eig­in­lega fagráðið og við erum bara að melta þetta.“

Bíða endanlegra upplýsinga um skipan ráðsins

Endanleg lög hafa ekki verið birt og reglu­gerð ráð­herra um hvernig skipa eigi fagráð heil­brigð­is­stofn­ana hefur ekki verið sett. Því bíður lækna­ráð eftir upp­lýs­ingum um fram­haldið. Anna Margrét segir ljóst að aðhald minnki við breyt­ing­una. „Fólk hefur bent á að eins ágætur og for­stjór­inn getur verið þá er hann orð­inn býsna ein­ráður. Það er ekki stjórn yfir spít­al­anum, heil­brigð­is­ráð­herra gefur for­stjór­anum frelsi til að reka spít­al­ann eins og hann vill. Hann skipar stjórn sína og þetta fagráð þá sem hann má leita til. Hvar er aðhaldið við rekstur spít­al­ans? Það er stóra spurn­ingin.“

„En núna er hún búin að leggja niður lækna­ráð þannig að hún þarf ekki að ótt­ast að vera skömmuð af lækna­ráði í fram­tíð­inni“

Anna Margrét segir að lækna­ráð hafi einnig mót­mælt breyt­ing­unum á fundi vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í byrjun árs. „Svo gerð­ist ekk­ert fyrr en í júní að málið var keyrt áfram,“ segir hún. „Við álykt­uðum end­ur­tekið um bráða­mót­tök­una og Svandís kom á fund lækna­ráðs og húð­skamm­aði lækna. En núna er hún búin að leggja niður lækna­ráð þannig að hún þarf ekki að ótt­ast að vera skömmuð af lækna­ráði í fram­tíð­inni.“

Í frum­varp­inu eru færð fyrir því rök að núver­andi skipan mæti ekki mark­miðum heil­brigð­is­stefnu um teym­is­vinnu starfs­stétta. „Miðar hún að því að sam­starf sé milli stofn­ana og teym­is­vinna og þver­fag­leg heild­ræn nálgun í vinnu­brögðum heil­brigð­is­starfs­fólks með það fyrir augum að tryggja gæði og sam­fellu í þjón­ust­unni,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

„Ákvæði í gild­andi lögum um skipan lækna­ráðs sem leita ber til um ákvarð­anir varð­andi lækn­is­þjón­ustu og hjúkr­un­ar­ráðs varð­andi hjúkr­un­ar­þjón­ustu sam­ræm­ist ekki því mark­miði heil­brigð­is­stefn­unnar,“ segir enn­fremur. „Með þeim breyt­ingum sem lagðar eru til í frum­varp­inu er leit­ast við að heil­brigð­is­stéttir komi að málum í sam­vinnu hver við aðra, enda sé mark­miðið að sjúk­lingar fái sem besta þjón­ustu. Í því sam­hengi þykir rétt að lækna­ráð og hjúkr­un­ar­ráð verði lögð niður en í stað þeirra komi eitt sam­eig­in­legt fagráð fag­stétta heil­brigð­is­starfs­fólks hverrar heil­brigð­is­stofn­unar for­stjóra til ráð­gjafar. Sú breyt­ing kemur þó ekki í veg fyrir að fag­fé­lög starfs­stétta séu sett saman innan heil­brigð­is­stofn­ana. Fagráði er ætlað að vera stjórn heil­brigð­is­stofn­unar til stuðn­ings og ráð­gjafar þegar kemur að mik­il­vægum ákvörð­unum sem varða innra starf og skipu­lag heil­brigð­is­stofn­unar. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að ráð­herra setji í reglu­gerð nán­ari leið­bein­ingar um hlut­verk og skipan fagráða heil­brigð­is­stofn­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.
Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg
FréttirHeilbrigðismál

Til­kynn­ing um her­manna­veiki í blokk fyrir eldri borg­ara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orð­send­ing frá sótt­varn­ar­lækni og Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn her­manna­veik­is­bakt­er­í­unnar hefði fund­ist í einni íbúð blokk­ar­innar. Dóttir níræðrar konu í blokk­inni hefur veru­legar áhyggjur af móður sinni en her­manna­veiki er bráð­drep­andi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár